Leita í fréttum mbl.is

Hvað er formaður Sjálfstæðisflokksins að hugsa?

Nú hefur Hannes Hólmsteinn og vinir verið ráðnir til að skrifa skýrslu um af hverju vondu útlendingarnir settu Ísland á hausinn og neituðu að lána okkur neyðarlán á sínum tíma. Þó er það held ég flestum ljóst. Og eins er verið að ráða nýjan Seðlabankastjóra.  Í þessu sambandi er rétt að fólk geri sér grein fyrir hvaðan þessir menn eru að koma. Þessar aðal persónur í þessum 2 málum sem nú eru mest í umræðunni eru t.d. aðalsprauturnar í rnh.is sem er hugveita og (rannsóknarsetur) sem er í beinum tengslum hefur maður heyrt við hugveitur í Bandríkjunum sem reknar eru af Koch bræðrum sem m.a. fjármagna Teboðshreyfinguna.  Í stjórn RNH eru:

Rannsóknarráð: Dr. Ragnar Árnason hagfræðiprófessor, formaður, dr. Hannes H. Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor, dr. Birgir Þór Runólfsson hagfræðidósent. Hannes Hólmsteinn er forstöðumaður rannsókna og ritstjóri rita frá RNH. Hér er ræða, sem hann hélt í febrúar 2012 um verkefnin framundan. Þeir Birgir Þór og Hannes Hólmsteinn blogga báðir reglulega.

Þarna eru 2 sem eiga að vinna þessa skýrslu um vondu útlendingana og svo Ragnar Árnason sem er jú frægur fyrir vinnu sína m.a. fyrir LÍÚ um kvótan og svo hugmyndir um að ríkið eigi ekki að reka heilbrigðiskerfi heldur eigi þeir sem þurfa þá þjónustu að kaup hana sjálfir af einkareknum stofnunum eða kaupa til þess sérstakar tryggingar ala USA. 

Hvernig dettur Bjarna í hug að þetta verði til að auka álit fólks á Sjálfstæðisflokknum?  Bara skil þetta ekki. Hef lesið blogg eftir Birgir Þór og Hannes og heyrt viðtöl við Ragnar og nær allt sem þeir segja og leggja til er þvert á það sem samkomulag er með nærri allri þjóðinni um samtryggingu og samhjálp sem og jöfnuð.


Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júlí 2014
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband