Leita í fréttum mbl.is

Bendi á ágæta grein um stöðna í Grikkalandi á mannamáli.

Eg vísa í grein af eyjan.is þar sem að rakið er í nokkrum tölusettum liðum af hverju Grikkir eru í þessum vandræðum sem þeir eru í dag.

Þarna segir m.a.

1. Skúrkarnir í málinu eru þeir stjórnmálamenn (og þau sem kusu þá) sem skuldsettu gríska ríkið svo gríðarlega sem raun ber vitni. Að hluta til var sú skuldsetning uppi á yfirborðinu og afleiðing viðvarandi fjárlagahalla, en að hluta var hún falin og „utan efnahagsreiknings“.

2. Í samningum árið 2012 náðu Grikkir, með aðstoð Íslandsvinarins Lee Buchheit, að semja um verulega afskrift (~75%) þeirra skulda sinna sem einkaaðilar áttu. Að því loknu voru lánardrottnar Grikkja nánast eingöngu AGS og sjóðir ESB.

Og svo neðar í greininni:

5. Tillögur Eurogroup um leiðir til að ná umræddum frumafgangi hljóma alls ekki frjálshyggjulega eða óskynsamlega fyrir utanaðkomandi; þar er m.a. gert ráð fyrir hækkun tekjuskatta á fyrirtæki úr 26% í 28%, framhaldi hátekjuskatts og lúxus-skatts á skemmtibáta og snekkjur, að loka ýmsum skattundanþágum, að hækka VSK á hótelgistingu (sem væri upplagt á Íslandi líka), að herða mjög skatteftirlit, og raunar að hækka eftirlaunaaldur í skrefum í 67 ár (eða 62 ár eftir 40 ár í starfi).

Sjá hér greinina í heild

Nokkur grundvallaratriði um Grikkland


mbl.is Spurningin er: evra eða drakma?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kópavogsbúar athugið!

Það er ýmislegt sem er að gerast í bænum ykkar sem vert er að skoða!

Mér er efst í huga að allt í einu núna í júní á að rjúka í að versla 3 hæðir í Norðurturninum sem hefur verið öllum til ama frá því að byggingin hófst.

En það sem vekur mér furðu er leyndin sem hefur verið á bak við þessa vinnu. Lætin sem voru á síðasta bæjarstjórnafundi m.a. að okkur var ekkert kynntir neinir valkosti sem og að engin bæjarbúi var spurður.

Og af því að bæjarstjórn frestaði að taka ákvörðun um þetta mál á síðasta fundi þá tók bæjarstjóri sig til og sleppti því að bæjarstjórn fengi sumarfrí eins og hefur alltaf verið.

Þetta offors í honum vekur grunsemdir að málið sé komið lengra en hann sagði, að eitthvað búi að baki annað en hagsmunir bæjarins. Maður fær svona ónotatilfinningu.

Á vef bæjarins er hægt að lesa skýrslu Mannvits sem var unnin fyrir bæinn og vekur það furðu að þar telur Mannvit sig geta áætlað söluverð Fannborgar upp á rúmar 1.100 milljónir og svo kaupverð í Norðurturni upp á 1450 milljónir. Sem líka er skrítið þar sem að bæjarstjóri sagði að hann væri að óska eftir leyfi bæjarstjórnar til að ganga til samninga um kaupin. Þetta eru óvenju nákvæmar tölur í ljósi þess að hann sagðist ekki vita hvað verðið yrði og heldur um söluvirði Fannborgar.

Eins eru í skýrslunni rök sem halda varla vatni í ljósi þess að Ármann sagði að ekki yrði ljóst hvað yrði byggt í Fannborg. En í máli Ármanns kom fram að væntur ávinningu af því að fólk mundi flytja í Fannborg í íbúðir þar væru upp undir 2 milljarðar. Því þar mundi flytja fólk sem borgaði útsvar og bætti nýtingu á skólum og götum bæjarins.  Þetta er náttúrulega út í hött! Nema að hann sé sérstaklega búinn að semja við einhvern sem kemur til með að fá Fannborg.

Ef fólk veit það ekki var Félagsheimili Kópavogs í Fannborg og Kópavogbíó var í á sínum tíma byggt fyrir fé sem bæjarbúa söfnuðu fyrir á sínum tíma. Þetta hús var byggt um 1960. Mér sýnist að menn tali nú um að rífa það skv. þessu. Helst röksemd fyrir nýju húsnæði er að það gæti kostað 2 til 300 milljónir að gera það upp núna.  M.a. efsta hæðin úr sér gengin.

Það er líka furðulegt að nú telur bærin sig geta komist af með 1000 fm. minna húsnæði en það notar í dag. Þá er ákaft vísað í nýju tískuna að hafa opin rími þar sem starfsfólki er raðað á bása eða starfsstöðvar í opnu rími. Sem ég held að sér stórlega ofmetin hugmynd þó að sumstaðar eigi hún við í smærri hópum.

Þá vekur furðu að bærinn skuli ætla sér í turn í verslunarmiðstöð þar sem óskyld starfssemi verður á 12 hæðum en bærin með 3 hæðir og því erfitt um að stækka við sig ef að útreikningar um stærðarþörf standast ekki og eins til að mæta aukinni þjónustu þegar bæjarbúum fjölgar.

Þá kemur fram í þessari skýrslu að umtalsvert pláss megi spara með minni geymslum. Bíddu í hvað hafa þær þá verið notaðar.

Þá er athyglisvert að lögð er rík áhersla á að starfsfólk fái sturtur og búningsklefa svo það geti hjólað í vinnuna. Og svo heppilega vill til að það er í Norðturninum í einhverjum kjallara.

Nú svo er jú Kópavogur með skuldugustu sveitarfélögum landsins og ef það er satt að engir leynisamninga um sölu bygginga í Fannborg séu á borðinu þá veit bærinn ekki hvort að þær seljast eða hvað fæst fyrir þær. Í þessari tillögu sem var frestað á síðasta bæjarstjórnafundi var verið að biðja um heimild til að gefa út skuldabréf upp á 1,5 milljarð til þessar kaupa. Sem er svo aftur furðulegt ef að bærinn reiknar á sama tíma að fá nærri 1,2 milljarða fyrir Fannborg.

Maður hefur nú síðustu daga heyrt gróusögur um hugsanlegar skýringar á þessum kaupum!

En aðallega fer það í tugarnar á mér að okkur er ekkert kynnt þetta mál.  Og annar fulltrúi Bjartrar Framtíðar talaði á bæjarstjórnafundi að þetta mál væri aðallega milli meirihlutans og bæjarstarfsmanna! Almenningi í Kópavogi kæmi þetta bara ekkert við.

Það eru 3 möguleikar í stöðunni. Gera upp þessi 3 hús sem bæjarskrifstofur eru í! Það gæti kostað skildinginn en hugsanlega hægt að gera það í ákveðnum skrefum. Nú eða byggja nýtt húsnæði sem væri þá klæðskera sniðið fyrir bæinn. Nú eða kaupa húsnæði! Og hugsanlega í þessum turni en þá þarf að tryggja að þetta sé ekki eitt enn leynimakk milli sjálfstæðismanna og einhverja vina þeirra. Það ganga einhverjar grousögur en þær eru óstaðfestar og ekki víst að það sé fótur fyrir þeim.

Eins vekur það furðu ef að meirihlut bæjarstjórnar ætlar að ákveða hvað á að koma í staðinn í Fannborg án þess að spyrja Kópavogsbúa sjálfa að því.

En aðallega vill ég svona hugmyndir séu kynntar okkur almennilega kostir þeirra og gallar og svona sé ekki látið leka í litla frétt í Kópavogsblaðið í febrúar og það sé bara látið duga.

Skýrsluna frá Mannviti má sjá hér

Hér er hægt að sjá upplýsinga um Norðurturnin í Smáralindinni


Maður veltir stundum fyrir sér!

Nú eru menn skv. fréttum hugsanlega að ná saman! En maður spyr sig: Hvversvegna í ósköpum láta menn deilur ganga svona langt þegar öllum aðilum er örugglega ljóst strax eftir nokkarar viðræður ljóst nokkurnvegnin hvaða niðustað fæst. Þetta er ekki í...

Hvað er þetta með Kópavog? - Bæjarskrifstofur í verslunarmiðstöð?

Nú berast fréttir af því að flytja eigi bæjarskrifstofur Kópavogs í Turninn vandræðalega sem er að klárast loks við Smáralind. Þar á að kaupa 2 hæðir. Heyrði þetta fyrir einhverjum mánuðum eða misseri en trúði því ekki. Hvaða bæjarfélag setur skrifstofur...

Sannleikurinn um tilboð ríkisins til hjúkrunarfræðinga!

Skv. mínum upplýsingum var tilboðið þetta: Samningur til 4 ára 17,5% hækkun Sem gerir um 4,35% hækkun á ári á samningatíma að meðaltali Samningur sem er víst lakari en framhaldskólakennarar fengu og engar kynbundnarleiðréttingar á launum hjúkrunafræðinga...

Hvað á þetta eiginlega að þýða?!!!!!!

Að hanga á netinu þegara svona gott veður er uti. Ég er að minnstakosti farinn út! Þið lesið bara önnur blogg á meðan. Enda lekur spekin í stríðum straumum frá mönnum sem setja þar inn hinn endanlega sannleik dag eftir dag. Um hvað við Íslendingar eru...

Hvar er skýrslan um framkvæmd lánalækkunarinnar (leiðréttingarinnar)?

Síðasta vetur í nóvember var Bjarni Ben spurður á Alþingi út í hvernig framkvæmd lánalækkunar hefði farið fram. Hvernig lækkun hefði dreifst á tekjuhópa, miðað við aldur og fleira. Bjarni kaus að bíða með það svar fram í mars þegar hann sagðist mundi...

Nú fagna öfga hægrimenn hér á landi ógurlega!

Held að menn sem eru að sleppa sér í gleði yfir velgegni Þjóðarflokksins í Danmörku og boðaðri hörku í málefnum innflytjenda ættu að hugsa um eftirfarandi. Mikið af bloggurum og Framsóknarmönnum gefa sig út fyrir að vera kristnir. En þeir ala á hatri...

Það er ýmislegt óunnið varðandi jafnrétti!

Svona í ljósi þess að nú er haldið upp á að hundrað ár eru síðan konur fengu kosningarétt var mér hugsað til annars sem tengist baráttu kvenna fyrir jafnrétti. Og sú umræða hefur ekki farið nógu hátt. Fyrir nokkrum mánuðum heyrði ég viðtal við Helga...

Píratar komnir með meira fylgi en báðir ríkisstjórnaflokkarnir til samans.

Á meðan að bloggarar hægri flokkanna eru gjörsamlega fixeraðir í hatri sínu á Samfylkingu, þá hafa kjósendur sífellt meira og meira gefið sig upp á Pírata og nú skv. könnu MMR. Það er allt í lagi að berjast fyrir málstað sínum en held að bæði flokksmenn...

Í sambandi við þessi skrif Björns Inga!

Í kjölfar þessara skrifa hef ég lesið athugsemdir þar sem fólk tengir þessi mótmæli við Samfylkingu og Vinstri græna. Nú er inn á ýmsum hópum Samfylkingar og get upplyst að hvorki Samfylkingin né einstakir hóppar þar komu að boðun þessara mótmæla. Enda...

2009 fannst mörgum sen nú gagnrýna mótmælin sambærileg mótmæli allt í lagi.

Í frétt af mbl.is frá 17.júní 2009 segir: Nokkr­ir mót­mæl­end­ur mættu með skilti niður á Aust­ur­völl í morg­un. Trufluðu þeir nokkuð ræðu for­sæt­is­ráðherra með hróp­um og köll­um. Lög­regla seg­ir þó allt fara vel fram. Lög­regl­an hafði und­ir­búið...

En og aftur til ríkisstjórnarinnar - Smá ráðleggingar!

Ef þið viljið koma á jákvæðara andrúmslofti er það auðvelt! Hugið sérstaklega að þeim sem verst standa í þjóðfélaginu. Ráðið til starfa t.d. Öryrkja sem ráðgjafa um hvað þurfi að bæta. Drífið af að auka starfsendurhæfingu og önnur úrræði sem koma...

Smá ábending til ríkisstjórnarinnar og meirihlutans

Fólk hefur verið að kvarta yfir að fólk ætli að mótmæla á Austurvelli á 17 júní! Ætla að segja ykkur leyndarmál sem ég sem vinstri maður ætti kannski að þegja um! Fólkið sem er að mótmæla er fæst fólk sem við mundum flokka sem millitekjufólk eða...

Hækka lágmarkslaun ekki um 32%

Svona upp undir 20% þýðir væntanlega eitthvað um 6% á ári þessi 3 ár sem samningarnir standa. Það er náttúrulega varla ásættanlegt ef að lægstu laun á markaðnum eru að hækka um 32% þ.e. upp í 300 þúsund. Hjúkrunarfræðingar eru skv. því sem ég hef lesið...

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2015
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband