Leita í fréttum mbl.is

Þetta nú bara ekkert svar!

Sko ef Sigmundur veit það ekki þá er Menntaskólinn í Reykjavík ríkisrekinn skóli. Þar starfar jú einhver bygginarnefnd um væntanlegar viðbætur eða ný hús við skólan. Hún hafði fengið samþykkt hjá Minjanefnd eða forvera hennar að viðkomandi hús yrði rifið. Borgin lagði að ráðuneyti að gera húsið upp. Svo kemur Forsætisráðherra blaðskellandi á facebook og gefur í skyn að það séu borgaryfirvöld í samstarfi við einhverja sem séu að leyfa þetta niðurrif. Sbr.

Ríkisstjórnin hefur engin áform um að láta rífa þetta hús, enda málið ekki hjá henni. Það er furðulegt hvað borgaryfirvöld eru allt í einu til í að leyfa niðurrif jafnvel friðaðra húsa til að troða inn nýjum stórhýsum þar sem þröngt er fyrir

Hefði nú ekki verið viturlegra hjá Forsætisráðherra að tala við sína eigin ráðherra og í framhaldi við fulltrúa í byggingarnefnd MR og stoppa þetta þar. Kynna sér aðeins málin eða er þetta hluti af herferð hans og Framsóknar gegn Samfylkingunni. Þar sem öllum aðferðum skal beitt og lygi og afvegafærsla mála er þar engin fyrirstaða.


mbl.is Sigmundur svarar Degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur Davíð bullar eins og venjulega! Ríkið vildi rífa húsið!

Sigmundur Davíð gerir eins og venjulega! Hann kynnir sér ekki málin. Málið er að Borginn hefur átti í stappi þar sem Ríkið (Sigmundur Davíð) hefur viljað rífa húsið og staðið farst á því.

Af facebooksíðu Dags B Eggertssonar:

Þarna hefði verið skynsamlegt fyrir ráðherra að kanna málið áður en hann settist við tölvuna eða hljóp í blöðin. Ríkið er nefnilega framkvæmdaaðilinn og hefur lagt ríka áherslu á að húsið víki. Umhverfis- og skipulagsráð borgarinnar hefur hins vegar beinlínis beint því til ríkisins með sérstakri bókun 11. nóvember sl. að húsið verði gert upp í upprunalegri mynd, en mér að vitandi hefur ríkið ekki fallist á það, heldur viljað halda sínu striki. Og hver ætli sé nú hinn lögformlegi umsagnaraðili sem blessaði gjörninginn og lagði til að húsið yrði fært annað. Það er Minjastofnun, undirstofnun forsætisráðherra sjálfs,

Þetta er ekki fyrsta skipti sem Sigmundur Davíð leyfir sér svona vinnubrögð og virðist halda að hann komist upp með endalaust að ljúga upp á aðra.

P.s. og Dagur heldur áfram:

í umsögn sinni 8. október sl. Minjastofnun vísar til þess að hún sé bundin af eldri úrskurðum húsafriðunarnefndar ríkisins, sem er rétt. En þó blasir við að forsætisráðherra hefur það algerlega í hendi sér að endurgera friðaða húsið og láta það standa, í takt við tilmæli borgarinnar, enda bæði framkvæmdaaðili og umsagnaraðili í málinu. Hann þarf miklu frekar að reka deilur sínar við sjálfan sig eða önnur ráðuneyti, frekar en borgina í þessu máli.

 


mbl.is „Húsið er friðað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér leiðist svona léttvæg rök eins og Vilhjálmur notar!

Maðurinn ferlega barnalegur í sinni röksemdarfærslu. Hvað á hann t.d. við með IKEA? Nú ætti hann sem lögreglumaður fyrrverandi að vita að fólk má ekki fara með áfengi út af veitingastöðum. Og börn mega hvorki selja né kaupa áfengi. En held að í mörgum...

Hvað kemur Sigmundi Davíð þetta við?

Nú býr Sigmundur Davíð í Garðabæ og er með lögheimili fyrir austan á eyðibýli þar í Fljótsdalshéraði. Svo hvað kemur honum þetta við? Hef ekki heyrt að hann væri spurður út þá fyrirtætlan Kópavogs að selja félagsheimilið þar og flytja bæjarskrifstofur í...

Er ekki ljóst að innan allra trúarbragða leynist illska og skepnuskapur og hefur gert um aldir

Svona í anda þeirra sem tala um múslima og að við eigum að loka landamærum fyrir þeim "skríl" þá væri kannski rétta að spyrja: Eigum við ekki að banna hér Kaþólsku fólki að búa eða flytja hingað? Þau aðhyllast trúarbrögð sem hafa orðið vís að stöðugum...

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Jan. 2016
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband