Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Ísland

Allt er nú til!!!!!!!

Lögreglumenn geta lent í ótrúlegustu aðstæðum og verða ávallt að vera við öllu búnir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík barst tilkynning um umferðaróhapp í austurbænum um helgina þar sem bíll hafði farið út af veginum og hafnað á vegg.

Ökumaðurinn var með beltið spennt en loftpúði í stýri bílsins hafði sprungið út. Ekki var að sjá neina áverka á ökumanninum en hann virtist meðvitundarlaus þegar að var komið. Hann var því fluttur á slysadeild til frekari rannsóknar en bifreið hans var fjarlægð af vettvangi.

Á slysadeild kom hins vegar í ljós að maðurinn var alls ekki meðvitundarlaus. Hann hafði verið með leikaraskap allan tímann og reynt að villa um fyrir lögreglunni. Ekki er fyllilega ljóst hvað vakti fyrir manninum en þegar hugað var að sárum hans fannst áfengisþefur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Því var brugðið á það ráð að taka úr honum tvö blóðsýni í þágu rannsóknar.

Ég á ekki orð!!!!


mbl.is Þóttist vera meðvitundarlaus eftir umferðaróhapp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu var ekki farið að draga umtalsvert úr þennslu?

Bíddu hefur ráðherra síðustu vikur ekki verið að  tala um að þennslan væri í rénun. Og því væri hægt að hefja aftur vegaframkvæmdir eftir 3 mánaða stopp og nú er hægt að lækka matarskatta korter fyrir kosningar en svo les maður þetta í dag:

Bankarnir spá 7,4% verðbólgu

Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs fyrir október í fyrramálið klukkan 9. Spár markaðsaðila eru samhljóða að þessu sinni, en allir spá 0,4% hækkun á vísitölunni. Gangi spárnar eftir nemur 12 mánaða hækkun 7,4%. Þetta er lítils háttar lækkun frá september þegar 12 mánaða hækkunin var 7,6%

Reyndar held ég að það væri verðugt verkefni fyrir einhvern að skoða þessar spár greiningadeilda. Mér finnst að þeir breyti áherslum mánaðarlega. Eins og spár þeirra fyrir 2 árum um húsnæðismarkað sem leiddi  til fólk tók 100% lán því að það spáðu allar greiningardeildir stöðugt hækkandi verði .  Og hálf hvöttu fólk áfram í brjálæðið. Og nú súpa margir seiðið af því. Þær leyfa sér að tala um verðbólgu skot. En það hefur nú staðið í 2 ár. Og einn aðal áhrifavaldur eru jú sömu fyrirtæki og reka þessar deildir Þ.e. bankarnir sem í tilraun sinni til að kæfa Húsnæðissjóð lánuðu allt og öllum án þess að hirða sérstaklega um hvort fólk gæti borgað til lengdar. Eins þá eiga bankarnir megnið af öllum nýbyggingum því að verktakar eru bara eins konar leppar. Og þegar bönkunum finnst að verði sé ekki að hækka eða jafnvel farið að lækka, þá hnippa þeir í verktakana og segja þeim að hægja á sér eða stoppa í mánuði eða ár. Þannig var það með Grafarholtið það var í nokkur ár eins og lager með hálf kláruðum húsum og blokkum sem ekkert var unnið með. En síðan á 2 til 3 árum er það nú að verða fullbyggt.


mbl.is Bankarnir spá 7,4% verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg er ég viss um að þetta á eftir að fara út fyrir allan þjófabálk.

Ég man í gamla daga þegar sögur gengu um að ákveðið fólk sem átti skyldmenni voru virk í Fylkingunni og þvílíkum félagsskap fengu ekki áritun til að fara til USA. Í ljósi nýjustu frétta Björn Bjarnason   Leyniþjónustu og her áhugamaðurþá leyfi ég mér að áætla að þessar upplýsingar hafi m.a. komið frá litlu leyniþjónusunni okkar. Já þar voru víst aðeins 3 til 4 starfsmenn en við vorum jú aðeins um 144.þúsund(eftir ábendingu) þá Þetta samsvarar því á sama tíma væru um 5000 starfsmenn ef að þessi leyniþjónusta heði verið í USA miðað við þessa frægu höfðatölu.

Það er nú bara þó nokkuð.

Ragnar Stefánsson "Skjálfti" og fleiri segjast hafa sett upp tilbúna fundi í síma til að sannreyna að löggan var mætt á staðinn. Þannig að leyniþjonustan var því vel virk.

Það sem að veldur því að ég hef   stóran fyrirvara um þetta er að hér á Íslandi tíðkast að ráða í allar æðstu stöður innan ríkisins eftir flokkslínum og sjálfsstæðis- og framsóknarflokkur ráða þeim nú öllum. Því væri það freisting fyrir flokkana að leita til vina sinna sem eru komnir til valda í leyniþjónustu til að afla upplýsinga um andstæðinga sína.  

 


mbl.is Dómsmálaráðherra kynnir tillögur starfshóps um öryggismál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að lækka gjöldin frekar

Ég er orðin dálítið þreyttur á allri góðmennskunni sem geislar af fyrirtækjum og þá sérstakalega þeirra sem eru í opinberri eigu. Orkuveitan er að hugasa um að stofna menningarsjóð til að styrkja listamenn. Hverning væri að þessi fyrirtæki hugsuðu kannski frekar um að lækka gjöldin til okkar fyrst að þau eiga svona mikinn pening aflögu.
mbl.is Lagt til að stofnaður verði menningarsjóður OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband