Leita í fréttum mbl.is

Alveg er það furðulegt að hafa ekkert heyrt um þennan mann áður.

Alveg merkilegt hvað hagfræðingar eru orðnir miklir sérfræðingar í lagalegum útskýringum!

  • Það væri líka gaman að vita hvaða aðgerðir Hollendinga gegn okkur hafi verið ólöglegar. Því í þessum texta hér á mbl.is stendur

Kregel segir aðspurður aðgerðir breskra og hollenskra stjórnvalda til að fá fé sitt til baka í deilunni „ólöglegar“ og að Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, hafi ekki rétt til að senda Íslendingum reikninginn.

Hvaða aðgerðir Hollendinga gegn okkur voru ólöglegar? Hélt að það væru aðgerðir Breta um frystingu eigna og það að þeir keyrðu dóttur banka Kaupþings í þrot!

  • Eins væri gaman að hann hefði tjáð sig um þau lögfræðiálit sem við höfum um hættuna á að fara með þetta mál fyrir dómstóla. Sú hætta er reifuð í öllum álitum um þetta mál sem við höfum fengið. Þ.e. að við verðum dæmd til að greiða alla upphæðina sem Bretar og Hollendingar greiddu. Að öll upphæðin yrði gjaldfeld strax og svo framvegis.
  • Eins væri gott að hann skýrði hvernig að við sem erum ekki í ESB ættum að koma þessu máli fyrir Evrópudómstólinn. Því hann tekur ekki nema í undantekningar tilvikum upp mál milli ESB þjóða og svo þjóða utan þess.
  • Síða er það furðulegt ef rétt sé að hann hafi verið ráðgefandi fyrir norðulandaþjóðinar varðadni  Icesave að þær virðast ekkert hafa hlustað á hann.

Það væri líka gaman að einhver hefði spurt hann sem hagfræðing um stöðu okkar ef að neðangreindar upplýsingar séu réttar:

  • Innlent | Morgunblaðið | 20.1.2010 | 05:30

    Icesave tæki eitt til þrjú ár fyrir dómstólum

    Fari svo að ekki náist samningar í Icesave-deilunni og ef Bretar og Hollendingar kysu að höfða mál vegna þess fyrir íslenskum dómstólum gæti slíkur málarekstur tekið á bilinu eitt til þrjú ár, að mati tveggja lögfræðinga sem þekkja vel til starfsemi dómstólanna.

  • Lars Seier Christensen bankastjóri Saxo Bank segir að Íslendingum beri að greiða Icesave skuldir sínar og það sé engin leið fyrir þjóðina framhjá því. (www.visir.is )

 

Það er ljóst að hægt er að finna út um allt menn sem standa með okkur í raun er hægt að fá álitsgjafa sem bakka upp allar skoðanir. En hvað gagnast þetta okkur? Er nema von að maður spyrji um af hverju Norðurlöndin hafa þá þessa afstöðu að við þurfum að klára Icesave ef þau hafa fengið aðstoð frá þessum manni?

Held að fólk þurfi að átta sig á að það hugsanlegt en þó ekki víst að okkur takist að semja um aðeins lægri vexti eða eitthvað í þá áttina. En þó alls ekki víst.


mbl.is Ber að vísa Icesave-málinu til Evrópudómstólsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Maggi alveg skil ég að þú undrist að hagfræðingar tjái sig um lögfræðileg álitaefni. Það vill reyndar svo til að oft eru lögfræðiáfangar í viðskiptanámi. Samt sem áður gera flestir viðskiptafræðimenntaðir aðilar sér grein fyrir því að þeir eru ekki sérfræðingar í lögræði. Annað á við um t.d. þroskaþjálfa. Þannig veigar Maggi þroskaþjálfi í Kópavoginum, ekki við að gera lítið úr einum fremsta lögskýranda Íslands Ragnari Hall þegar hann gerði alvarlegar athugasemdir við Icesave samninginn. Ragnar átti þannig ekki að hafa mikið vit á málunum. Síðan tóku Alþingismenn málið fyrir og þrátt fyrir að þeir virðist aldrei sammála urðu þeir þó sammála um eitt, og það er að allar athugasemdir Ragnars Hall voru teknar til greina og menn sammála um að þær væru réttmæt gagnrýni. Á  Alþingi eru þetta kallað Ragnarsákvæðin og voru sett í fyrirvarana sem samþykktir voru á Alþingi.

Þrátt fyrir að Maggi þroskaþjálfi í Kópavogi sitji einn eftir með Samfylkingarbullið í sér, skilur hann ekki að hann hafi farið út fyrir þekkingarmörk sín, hann heldur bara áfram að bulla.

Sú eina sem styður hann í rökleysunni er Hólmfríður Bjarnadóttir frá Hvammstanga. Hún er alveg af sömu tegund og Maggi. Hún viðurkennir þó að hún sé oft teygð á asnaeyrunum, sjálfsagt rétt eins og Maggi.  Nú kemur spurning til þín í greindarprófinu Maggi. Hvað er það sem er á milli asnaeyranna á ykkur?

Sigurður Þorsteinsson, 21.1.2010 kl. 21:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband