Leita í fréttum mbl.is

Þetta er nú meira ruglið!

Held stundum að fólk erlendis í samskiptum við okkur hljóti að halda að við höfum orðið fyrir andlegum skaða við hrunið.

Ef fólk les þingræður varðandi Icesave í sumar og haust voru athugasemdir fólk við Icesave aðallega eftirfarandi:

  • Vextir: Þeir þóttu of háir, ættu að vera breytilegir, ósanngjarnt að borga þá frá upphafi árs 2009 þar sem að frestur til að gera kröfur í Innstæðutryggingarsjóð rann ekki út fyrr en 23 október 2009
  • Nú er verið að bjóða okkur vaxtalaust tímabil árin 2009 og 2010, breytilega vexti.
  • Og svo það sem við þegar vorum búin að skrifa undir í haust. Þar sem að samningar kveða á um að greiðslur okkar miðið við stöðu efnahagsmála. Þar sem mikið tillit var tekið til fyrirvarana sem við sjálf settum í lögunum frá því ágúst.
  • Og óvissa um eignir Landsbankans hefur minnkað og líkur á því að þær nemi nú um 1200 milljörðum á móti 3 til 400 milljörðum sem svartsýnir þingmenn spáðu. Og eignir koma því til með að dekka allt að 90% af höfuðstól Icesave lána.

Það sem er verið að bjóða eru kjör sem að nær allir andstæðingar Icesave hafa talið að stæðu fyrri samningum fyrir þyrfum.

Þetta var klárlega ekki inntakið málflutningi eins né neins á Alþingi né í umræðunni nema að litlu leiti.

En nú er allt í einu allt breytt. Nú eru menn þrátt fyrir alla umræðu á því að við eigum ekki að fá nein lán. Eignir Landsbankans eigi bara að ganga upp í þessar skuldir. Og annað ekki ásættanlegt.

Hvað halda menn eiginlega? Viðsemjendur okkar hafa fylgst með umærðum á Alþingi þýtt þær og unnið úr þeim. Og koma svo með tillögur byggðar á ummælum stjórnarandstæðinga á þingi. En þá hafa bara allir skipt um skoðun.

Held að við séum á hraðleið inn í hóp ríkja sem ekkert er að marka. Og loforð og samningar er eitthvað sem aðrar þjóðir eiga erfitt með í framtíðinni að treysta á.

Auðvita er skuldatryggingarálag upp á 2,75% ofan á breytilega vexti full mikið en um það mætti kannski semja ef við værum ekki svona ömurlega óábyrg og tvístígandi. Annað sýnist mér vera nákvæmlega það sem menn voru að tala um á Alþingi.


mbl.is Ísland fallist á forsendurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Guðbjörnsson

Við eigum ekki að fallast á ríkisábirgð,það er aðal málið.

Sævar Guðbjörnsson, 23.2.2010 kl. 12:09

2 identicon

Okkur ber ekki skylda til að veita neina ríkisábyrgð á þessum endurheimtum úr þrotabúi Landsbankans. Þetta er stóra málið, það er ekki skýrt að íslenskir skattgreiðendur beri ábyrgð á þessu.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 14:07

3 identicon

Burt med Samspillinguna úr Ríkisstjórn og drogum ESB umsóknina tafarlaust til baka.

Gunnlaugur Ijngvarsson (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 15:46

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og hvað græðum við þa því Gunnlaugur? Furðulegur málflutningur. Eigum við ekki að seja okkur úr Sameinuðuþjóðunum af því að Bretar og Hollendingar eru þar líka. Og kannski Nató? Hættu þessu bulli.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.2.2010 kl. 16:38

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Síðan væri gaman að vita af hverju þú kallar samfylkinguna "Samspillingu"? Ert þú að halda því fram að Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn séu ekki spilltari?

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.2.2010 kl. 16:39

6 identicon

Skemmtilegt hvað Samfylkingarfólk verður alltaf fúlt. Gunnlaugur skrifaði aldrei neitt um D eða B en Magnús samfylkingarmaður ályktar greinilega að fyrst þeir flokkar voru spilltir... nú þá er lagi að vera spilltur, ef maður bara passar að vera aðeins minna en hinir!! 

ESB: hvað telur þú að við græðum á þeim brandara? 

Ríkisstjórn þín var búin að segja okkur kjósendum að við kæmumst alls ekkert lengra með Icesave samningana - en í dag erum við allt í einu komin mun lengra með þá! Það er ekki bara stjórnarandstöðunni sem er ekki treistandi - líka ríkisstjórninni sem lígur upp í opið geðið á okkur. Ætli Bretar og Hollendingar hafi ekki líka látið þýða fyrir sig dómsdagspárnar sem flugu af vörum stjórnarliða ef við myndum ekki samþykkja samningana.

Var það ekki líka Jóhanna sem "lofaði" okkur því að um leið og við myndum sækja um í ESB myndi krónan styrkjast og allt yrði eins og best væri á kosið?

Bullið í þessum stjórnmálamönnum. Og þú að lepja það upp eftir þeim!  

Daníel (IP-tala skráð) 23.2.2010 kl. 21:54

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég var að velta fyrir mér hvað hann átti við með því að kalla Samfylkinguna "samspillingu" Daníel. Því var það sem ég spurði. Ef hann vill Samfylkingu frá þá vill hann væntanlega Sjálfstæðismenn og framsókn inn og því benti ég honum á að þar fara þeir flokkar sem hafa verið við völd hér á landi í gegnum alla einkavæðinguna, skerta eftirlitinu og einkavinavæðingu eða helmingaskiptin.

Varðandi ESB þá bendi ég þér á að hér erum við að einangrast á hjara veraldar. Það kom nú heldur betur í ljós við hrunið. Og ekki er krónan gjaldmiðill sem hægt er að byggja einhverjar langtíma áætlanir á því engin veit um gengi hennar frá ári til árs.

Þegar Jóhanna sagði að krónan myndi styrkjast þá var það væntanlega í tengslum við að myndum klára Icesave og áætlun okkar gengi eins og stefnt var að. En eins og menn vita þá bæði er fyrst núna sem ESB er að ákveða hvort og hvenær aðildarviðræður hefjast, icesave er enn ófrágengið og við höfum ekki gjaldeyrisforða til bakka upp krónuna eða aflétta gjaldeyrishöftum og því er ekki von að krónana styrkist.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.2.2010 kl. 22:08

8 identicon

Það vantar pælingar eins og þessar á Skuggaþing - http://skuggathing.is - Ég er sjálfur ekki sammála þér en mér finnst skipta mestu að allar hliðar málsins heyrist sem víðast!

Gunnar (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 00:47

9 identicon

Èg vil gjarnan þakka þér fyrir að standa vaktina hérna, Magnús.

það er ekki auðvelt að berjast hér á móti ólgusjó Icesave fáránleikans, í bloggheimum MBL.

En hvort að það þjóni einhverjum tilgangi að reyna að koma skynsamri hugsun inn hjá múgsefjuðum bloggurum Morgunblaðsins, er nokkuð sem ég efast um.

En takk fyrir samt sem áður.

Ragnar Thorisson (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband