Leita í fréttum mbl.is

Bíðið við! Skv. umræðunni eru hér allir á vonar völ!

En svo les maður svona fréttir. Það eru yfir 8 þúsund manns á leið erlendis í Páskaferðir. Samt hefur þessar ferðir hækkað væntanlega töluvert frá því 2008. Kannski að þetta fólk sumt sé fólk sem hefur farið í bankanna og samið um lækkanir á greiðslubirgði sinni, þannig að hún er nú svipuð hjá þeim og 2007. Kannski að þetta sé fólk sem er meira að spá í að lifa í núinu í stað þess að hugsa um hvað það á mikið í íbúðum sínum. Því ef það er hægt að semja um að greiðslubirgði sé svipuð og fyrir hrun þá á fólk væntanlega svipað aflögu til að gera sé dagamun og áður.

Auðvita margar fjölskyldur sem eiga mjög erfitt. Fólk misst atvinnu og lækkað í launum og er í verri skuldamálum. En ef við lesum blöðin og hlustum á stjórnmálamenn þá held ég að flestir mundu állykta að hér væri meirihluti þjóðarinnar í eða á leiðinni í biðröðina hjá fjölskylduhjálpinni. Þar hefur jú fjölgað frá því fyrir hrun úr 200 í 500 fjölskyldur. En mér er spurn miðað við barlóminn nú - Hvernig stóð á því að 2 til 300 þurftu á aðstoð að halda fyrir hrunið? Og af hverju miðað við allt hefur ekki fjölgað meira en þó er orðið.


mbl.is Þúsundir á leið út um páskana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sverrir Einarsson

Sæll ég er ekki í þessum hópi, en ég er ekki  með nein körfulán, á ekki íbúð til að borga af, leigi. En ég er að fara út, bara seinna á árinu, ég hef þokkaleg laun, varð fyrir vinnuskerðingu (sem lækka launin). Ég á minn bíl skuldlausan enda er hann rúmlega 20 ára (89árg). Bý einn er með eitt skuldabréf (gamalt) sem er að klárast á þessu ári, þegar það er búið þá gæti ég jafnvel farið erlendis 2X á ári. Sem betur fer þá eru til fyrirtæki og fólk sem tók ekki þátt í "gróðærinu", ég er einn af þeim, en ef það eru "bara" 8 þús manns sem eru að fara út þá er það ekki stór hópur af 350 þús manna þjóð, þannig að sennilega er ástandið slæmt hjá mörgum.

kv Sverrir

Sverrir Einarsson, 27.3.2010 kl. 10:34

2 identicon

Doh !

Auðvitað kemst elitan út, það er, og verður verkalýðurinn sem þarf að borga sukkið hjá baugsfjölskylduni og hinum !

við verðum bara að njóta þess að naga skó....

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 27.3.2010 kl. 12:35

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Nú er ég ríkisstarfsmaður með meðallaun. Bý í Búseta og á engar inneignir í bönkum. Ég hef á síðasta ári borgað níður bilinn minn á erlendu láni. Hann kostaði reyndar ekki nema 590 þúsund þar sem ég forðaðist stórar fjárfestingar vegna þess að fyrri reynsla mín af háum bílalánum og Íbúðakaupum í verðbólgu sýndi mér að ég hafði ekki staðfestu til að standa í slíku. Ég lenti í tannviðgerðum fyrir tæpar 2 milljónir og er samt búinn að greiða niður skuldi um 1,5 milljónir á þessum 2 árum eftir hrun. Og gæti svo vel farið út núna. Ég hef búið í 15 ár í Búsetu íbúð þar sem að ég komst að því að betra væri að aðrir sæu um að borga, annast viðhald og annað umstang við íbúðirnar mínar. Skulda í dag um 2 milljónir sem eru leyfar af íbúðaævintýrunum mínum frá því í hring um 1988 til 1995 þar sem ég nýtti alla möguleika til að ná í lán.

Birgir 8 þúsund manns til útlanda eru fleiri en í fyrra og samsvara um 2/3 af atvinnulausum hér á landi. Miðað við hvernig fólk lætur og barmar sér þá hefði maður haldið að það væru bara nokkru hundruð sem hefðu efni á því. Minni á að margir eru búinir að semja við banka og Íbúðalánasjóð um lækkun á greiðslubirgði sem samsvarar því sem þau voru að borga fyrir hrun. Þau haf vissulega tapað eignarhlutum sínum en eru ekki í dag að borga meira en þau gerðu fyrir hrun.

Auðvita eru margir í miklum erfiðleikum en fólk gleymir því að flestir hafa það samt ekki svo slæmt sem af er látið. Það er svo spurning hvort að bankarnir geti ekki komið betur á móts við fólk vegna fjármálahamfarana sem gengu hér yfir. Og þar með myndi neysla mögulega aukast aftur og þar með velta fyrirtækja, ríkis og sveitarfélaga. En held t.d. að lausn á Icesave myndi auka hér veltu og fjárfestingu fyrr. Auk þess sem vextir myndu lækka fyrr. Og þar með yrðu lausnir bankana varðandi óverðtryggð íslensk lán verða meira freistandi. Og þar með kippa stoðum undan verðtryggingunni sem kæmi öllum til góða.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.3.2010 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband