Leita í fréttum mbl.is

Icesave deilan kannski eitt ár í viðbót! Hvað kostar það okkur?

Engin lausn á Icesave fyrr en eftir kosningar í Bretlandi og Hollandi

Jóhanna segir að það sé að koma á daginn það sem hún varaði eindregið við í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna hafi nú staðfest þetta og meðal annars sagt að engin líkindi séu á lausn Icesave fyrr en eftir kosningar í Bretlandi og Hollandi.

Það er nokkuð ljóst að öllum þeim sem það vilja vita að dráttur á því að ganga frá Icesave kostar okkur gríðarlega.

  • Við fáum ekki lán til fjárfestinga nema á afar kjörum. Sem veldur t.d. Orkufyrirtækjum gríðarlegu tapi að geta ekki byrjað fjárfestingar.
  • Þetta háir stærri fyrirtækjum sem flytja inn miklum kostnaði þar sem þau í raun þurfa að staðgreiða lán.
  • Lánshæfi sveitarfélaga og ríkis er þannig vegna Icesave að þau geta varla skuldbreytt lánum.
  • Engir fjárfestar vilja líta við okkur við fjárfestingar nema einhverjir ævintýra áhættufjárfestar.
  • Auk þess sem þetta tefur að einhverju leiti allar okkar áætlanir um endurreisn.

Magnús Orri Schram sagði í Fréttablaðinu:

Aðalhagfræðingur SÍ sagði við sama tilefni að seinkun á Icesave þýddi að stórframkvæmdum myndi seinka, landsframleiðsla myndi lækka um fimm prósent og atvinnuleysi yrði tveimur prósentum meira.
Tveggja prósenta aukið atvinnuleysi þýðir að a.m.k. 3.300 einstaklingar bætast í hóp atvinnulausra.

Nær öll hagmunafélög atvinnulífsins hafa bent á þetta. Og menn gengið svo langt að segja að til lengri tíma litið þ.e. til framtíðar kosti Icesave okkur tugi milljarða fyrir hvern mánuð sem þetta dregst. Við höfum 2x vitað hvað við höfðum í höndunum og nú fyrir þjóðaratkvæði var okkur boðinn samningur sem hefði þýtt 3 ár vaxtalaus og í stað fastra vaxta þá var okkur boðið breytilegir vaxtir með álagi vegna stöðu okkar en nei hinu alvitru Indefence og stjórnarandstaðan taldi okkur geta fengið miklu betri kjör. Við myndum bara setjast að samningaborði eftir þjóðarakvæðagreiðsluna og hefðum þá öll okkar tromp í höndunum og Bretar og Hollendingar bara lyppast niður og semja við okkur um hvað sem er. Og sér í lagi með nýja samningamenn. Þessu yrði bara reddað fljót og örugglega. En nú kæru landar fáum við Icesave kannski í eitt ár í viðbót. Þið getið mætt á Austurvöll og hrópað af ánægu yfir að það hefur kannski tekist að framlengja kreppunna um ár í viðbót.


mbl.is Ósamstaða VG veikir stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Það er takmark stjórnarandstöðunnar, möguleikarnir að komast í stólana aukast.

Finnur Bárðarson, 27.3.2010 kl. 14:48

2 identicon

Er til í dæminu að það séu ekki bara yfirvofandi þingkosningar í Bretlandi og Hollandi sem tefja samningaviðræður um Icesave málið?

Er ekki hugsanlegt að þar í löndum ríki ákveðin vantrú á getu íslensku ríkisstjórnarinnar til að fá samþykki Alþingis (forsetans og þjóðarinnar) fyrir "Icesave samningum" sem íslensk samninganefnd kynni að skrifa undir?

Agla (IP-tala skráð) 27.3.2010 kl. 15:10

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Já Maggi minn, það er alveg skelfilegt að ríkisstjórnin skuli ekki valda því að leysa þetta Icesavemál. Hún hefur að vísu viðurkennt að það hafi verið í ljósi sögunnar algjörlega ófært af Steingrími að senda óhæfa samningamenn út til þess að semja. Það er jú í boði VG. Í seinna skiptið var Svavar að vísu skilinn eftir heima, en klúður engu að síður. Aftur í boði VG. Kerlingarræksnið er alveg farin á taugum, og hún sem ætlaði fyrir löngu að vera komin á elliheimilið. Maggi láttu nú gamla konu vera, hennar tími í kyrrðinni er kominn.

Sigurður Þorsteinsson, 27.3.2010 kl. 15:40

4 identicon

Auðvitað er hér ekki við stjórnarandstöðuna eina að sakast, heldur það að ríkisstjórnin hefur ekki meirihluta á þingi til að klára málið af röggsemi. Hún hafði sér í lagi ekki meirihluta til að binda endi á málþófið í haust, en það bjó í haginn fyrir synjun forseta. Hún hafði ekki meirihluta til að klára samningana fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.

Það er spurning hversu lengi Samfylkingin getur látið þetta viðgangast landi og þjóð til tjóns. Stjórnmálaflokkur eins og Vg sem ekki getur stutt eigin ríkisstjórn þegar mikið liggur við er ekki stjórntækur eins og komið hefur í ljós.

Ómar Harðarson (IP-tala skráð) 27.3.2010 kl. 22:03

5 identicon

Kæri Finnur.

Límið í ráðherrastólunum er mun sterkara en svo að annað hrun og nokkur verkföll komi núverandi sigggrónu rössunum þaðan.

Nú er svo komið á flestum vinnustöðum landsins að 67 ára eru senttir út af sakramentinu. Af hverju ætti hið sama ekki að gilda um Alþingi?

Lady Gagasnýr sér nú í allar áttir í leit að einhverjum til að styðja sig. Hækjur til stuðnings ESB.... ljóst er orðið að hún ætlar að láta Nágrím róa, þar sem að hann hefur allt svikið má mála hann sem skrattann og kenna um allt. Svo fer Jóhanna til Sjallanna og biður um áframhald á afturhaldi og flugmiða aðra leið til helvítis Hollands.

Að falli er komið á ný og Lady Gaga ætlar sér að sjálfsögðu að sitja sitt "þrítugasta og margt"-ár á þingi.

Nú reynir hún að kaupa vinsældir með þjóðaratkvæði um mál sem auðveldlega getur sett þjóðina í annað ef ekki líka þriðja þrot auk seríu af verkföllum. Nú er þjóðaratkvæði af hinu góða... þar sem að það þjónar gildum hennar hátignar...

Eldsumbrot er það sem er að bjarga þjóðinnji í dag. Eldsumbrot sem koma í veg fyrir að Gaga og Græningjarnir komi fleiri bönnum í gegnum þing.

Getur Gaga ekki bara bannað kótakerrfið? Þá er allt leyst og hverfur.....

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 28.3.2010 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband