Leita í fréttum mbl.is

Áskorun til þingmanna Hreyfingarinnar

Það á náttúrulega ekki að þurfa að benda þessu fólki í Hreyfingunni að þau þurfa kannski að skoða stöðu sína líka fyrst að þau eru að hnýta í aðra.

  • Fyrir það fyrst þá kaus enginn kjósandi í síðustu kosningum Hreyfinguna
  • Því má segja að þessi flokkur þeirra sé umboðslaus á þingi.
  • Þau sitja þar fyrir mörg atkvæði sem stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar fékk. En þau klufu sig úr henni innan nokkra mánaða.
  • Þannig að þau sitja nú með stefnu sem þau mótuðu eftir að hafa verið kosin á þing á öðrum forsendum.
  • Þetta er ekki akkúrat eitthvað sem styrkir trú fólks á lýðræði.

Ekki það að ég tel að það sé gott að fólk taki ábyrgð á sínum gerðum og segi af sér ef þau hafa ekki staðið sig.

En einhverstaðar verður að stoppa og nýir þingmenn á Alþingi hafa ekki vakið traust hjá mér. Þeir halda uppi gjörsamlega ómálefnalegri gangrýni í stað þess að vinna að því að koma landinu til bjargar. Málflutningi sem snýst um "að allt sem kemur frá stjórnvöldum er slæmt og þarf að berjast gegn".  Ekki komið neitt til móts við stjórnvöld þó menn viti að flestar lausnir eru og verða málamiðlanir á milli ólíkra skoðana.

Ekki endilega að segja að Hreyfingin far fremst í því en framkoma þeirra sl. sumar þegar þau ætluðu að nota ESB aðildarviðræður sem þvingun á stjórnvöld það var svik við það sem þau höfðu staðið fyrir og Borgarahreyfingin hafði sagt og þá bar þeim að segja af sér og hleypa varamönnum að.


mbl.is Þingmenn Hreyfingar skora á þingmenn að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Boðum til kosninga...

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 16.4.2010 kl. 17:42

2 Smámynd: Þórður Björn Sigurðsson

Stefna Hreyfingarinnar er sú sama og Borgarahreyfingin bauð fram.  Hana má lesa á vef Hreyfingarinnar: www.hreyfingin.is

Þórður Björn Sigurðsson, 16.4.2010 kl. 17:44

3 identicon

Magnús heiðursmaður,

Af hverju ekki að fara úr skotgröfunum og breyta hlutunum! 

Það er ekkert að breytast.  Þingmenn segja af sér tímabundið þrátt fyrir misgjörðir sem kalla sannanlega á afsögn til framtíðar.  Það þarf verulegan uppskurð á þingi og stjórnsýslu.  Við þurfum í raun að krefjast afsagnar á minnstu mistökum til að þetta skiljist meðal ráðamanna.  Fyrr vaknar fólk ekki, mannlegt eðli ekki satt,.

Það skiptir engu í hvaða flokki fólk er eða hefur verið.

itg (IP-tala skráð) 16.4.2010 kl. 17:55

4 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Þetta er glæsilegur vitnisburður Magnús Helgi um hið nýja siðferði vinstri stjórnarinnar. Já, endilega ráðist í hreingerningar á þeim stöðum sem koma akkúrat EKKERT hruninu við og þeim atriðum sem koma fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Það er ekki laust við að hrollur fari um mann ef þetta eru hugsunarháttur stjórnarliða.

Jón Baldur Lorange, 16.4.2010 kl. 17:57

5 identicon

Jón Baldur,

Nú veit ég ekki hvort þu beindir þessu að mér ásamt Magnúsi.

En finnst þér í raun ekki að uppskurður sé þarfur?.  Og hvað í okkar kerfi tengdist ekki hruninu með einum eða öðrum þætti?.  Það var jú fjármálakerfið sem hrundi.  Er eitthvað í okkar þjóðfélagi sem ekki tengist því?.

itg (IP-tala skráð) 16.4.2010 kl. 18:05

6 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Jú, jú itg. Það sem ég átti við að það er óþolandi hvernig stjórnmálahreyfingarnar í skotgröfunum benda hver á aðra, alveg eins og með hrunverjana í skýrslunni góðu.

Auðvitað þarf endurbætur og siðbót. Skýrslan er grundvallarplagg til þess.

Jón Baldur Lorange, 16.4.2010 kl. 18:53

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég tel að þingmenn sem kjósa að víkja tímabundið á meðan að mál þeirra séu rannsökuð eða segi af sér alveg sé bara fínt en það sem ég óttast eru þeir sem taka við. Ég verð að segja að þingmenn sem hófu störf fyrir ári vekja ekki hjá mér öryggistilfinningu margir.

Ég hef lagt á mig að hlusta á umræður á Alþingi þá verð ég stundum bara hræddur. Þar fer fólk í ræðustól og hreinlega bullar endalaust. Þetta fólk á ekki eftir að leiða okkur út úr einu eða neinu.

Nægir að nefna:

Vigdísi Hauksdóttur og allt landráðatal hennar.

Gunnar Braga

Höskuld Þórhallsson

Lilju Mósesdóttur

Ásmundur Daði og fleiri og fleiri

og miklu fleiri.

Ömurlegt að heyra svo þessa stjórnarandstöðu tala um nauðsyn samvinnu en vilja svo bara skoða leiðir sem þau stinga upp á en berjast á móti öllu sem stjórnarmeirihlutinn segir eða leggur til. Þó allir viti að þeir myndu taka það upp alveg eins ef þau kæmust til valda.

 Tek fram að ég ekki endilega að tala um Hreyfingunna. En minni þó á að þó þau í Hreyfingunni hafi tekið upp stefnumál Borgarahreyfingarinnar þá voru þau ekki kosinn inn á þeim forsendum. Það voru um 10 þúsund sem kusu þau undir allt öðrum formerkjum. Og þau gátu ekki unnið nema nokkra mánuði með því fólki sem þau voru kosin út á.

Er ekki viss um að neitt yrði gert ef að þetta fólk kæmist til valda. Það færi allt í flottar ræður um útópíu og hvað eigi ekki að gera en svo yrði ekkert gert.

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.4.2010 kl. 20:20

8 identicon

Góðir punktar.  Það er auðvelt að gagnrýna.

ASE (IP-tala skráð) 16.4.2010 kl. 21:17

9 Smámynd: ThoR-E

"Og þau gátu ekki unnið nema nokkra mánuði með því fólki sem þau voru kosin út á".

Sem þau voru kosin út á ?? kaus semsagt enginn þau ? efsta fólkið á lista Borgarahreyfingarinnar?

Þú segir fréttir.

ThoR-E, 17.4.2010 kl. 14:22

10 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Hreyfingin hefur með framferði sínu hreint ekki vakið traust - klofningurinn í upphafi - Þráinsmálið - hrokafullir dómar Þórs - og sjálfbirgingshátturinn í þessum kröfum þeirra núna.

er þessu fólki ekki ljóst að fylgi þeirra er nálægt 0 punktinum?

Ólafur Ingi Hrólfsson, 19.4.2010 kl. 06:58

11 Smámynd: ThoR-E

En Sjálfstæðisflokkurinn Ólafur? hafa þeir með framferði sínu vakið traust ?

Lestu skýrsluna maður.

Þótt vaxtaverkir áttu sér vissulega stað með hreyfinguna að þá eru þau að starfa fyrir þjóðina. Ekki FLokkinn.

Ég las pistilinn þinn Ólafur þar sem þú sagðist vera ósammála því að Illugi vék. Afþví að þín kynni af manninum eru góð.

Ertu að grínast ?

ThoR-E, 19.4.2010 kl. 08:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband