Leita í fréttum mbl.is

Þar fór Bjarni með það!

Á ég að trúa því að einhver Sjálfstæðismaður sé svo vitlaus að trúa þessum rökum. Þ.e. að draga umsóknina til baka vegna Icesave.

  • Svona til að byrja með þá tengjast þessi mál ekkert. Nema að Bretar beiti sé geng aðild okkar að lokum samningum. Því að samningar við ESB fjalla ekkert um óleystar milliríkjadeilur.
  • Síðan rétt að benda á að ekkert í þeim 35 liðum sem samið er um fjalla um þetta.
  • Því væri það fyrst þegar samningar hafa náðst um öll atriði að Bretar og Hollendingar gætu farið að beita sér gegn samningi við okkur.
  • Það er talið að samningaviðræður taki 2 til 4 ár. Og ljóst að Icesave verður löngu leyst fyrir þann tíma. Því að þá verður það komið fyrir EFTA dómsstól og búið að dæma í þessu máli.

Held að Bjarni og félagar eigi bara að viðurkenna að LÍÚ hefur beitt sínum áhrifum og skipað þeim að vera á móti ESB. Og jafnvel fengið til þess stuðning frá bændum.  LÍÚ vill ekki að nokkur hreyfi við valdi þeirra yfir fiskveiðiauðlindinni sem þeir fengu gefins um árið. Og sjálfstæðismenn hlýða. Það er jú búið að kaupa handa þeim heilt dagbalað í Hádegismóum og flokknum ber að hlýða.


mbl.is Leggja aðildarumsókn til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Sæll Magnús !

Svosem rétt ígrundað hjá þér, ef þú tekur bara Icesave "argúmentið" eitt og sér, en nú sagði Bjarni líka:"Ekki bara vegna framkominna hótana um að ekkert verði af samkomulagi nema við göngum að afarkostum Breta, heldur er líka mikilvægt að við nýtum alla okkar krafta til að sigrast á þeim efnahagserfiðleikum sem við er að glíma."

Og þarna er ég allavega fyllilega sammála Bjarna, glapræði að vera í þessum viðræðum eins og málum er háttað a landinu í dag, en hann hefði líka getað nefnt kröfu þjóðverja um hvalveiðistopp, en bæði það og Icesave tenging breta, eru aðeins lóð á vogarskálina, ekki avgerandi eins og þú bendir á.

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 25.6.2010 kl. 17:32

2 identicon

hárrétt hjá Bjarna, reyndu ekki að búa til einhverjar samsæriskenningar um þetta burt með esb ruglið.

óskar (IP-tala skráð) 25.6.2010 kl. 17:56

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Kristján! Ef þú eins og ég hefur ígrundað hvað það var sem aðallega fór með okkur í hruninu. Þá hlýtur þú að vera sammála að það var KRÓNAN sem fyrir 2008 var allt of hátt skráð og kynnti undir þennslu hér á landi. Hún hrundi síðan með tilheyrandi hækkun lána, verbólgu og lánum einstaklinga. Krónan er okkar helsti dragbítur og hefur verið um áratugaskeið. Málið er að bankar hættu að fá lánað vegna hennar og erlendir aðilar vilja ekki sjá hana. Bara þessvegna er hvert ár sem við bíðum með að komast í samstarf um semeiginlega mynnt, hættu tími þar sem að smá hikst hjá okkur getur endanlega sent gengi krónunar niður til andskotans varnalega. Krónan var um 1980 eftir að 2 núll voru tekin af hann jöfn danskri krónu en er nú 1/20 af verðgildi danskrar krónu. Og ef við förum aftur til 1920 þá voru krónunar jafnar en í dag hefur krónan okkar fallið um 2000% miðað við danska krónu. Hér á Íslandi hafa komið reglulega svona dýfur. Og gjaldeyrishöft er nú komin og ekki nema um 15 ár sem engin höft hafa verið á krónunni.

Samningaviðræður taka um 2 til 3 ár. Og eina sem við græðum á því að fresta þeim er að það verður hér enginn möguleiki á stöðugleika, afnámi verðtrygginar, lágir vextir eða annað fyrr en þá langt inn í framtíðinna. Við eigum nátturulega að klára þessa samninga þó ekki nema vegna þess að við fáum þá aðgang að stuðningi við krónuna í aðlögunarferli að upptöku evru. Og þó ekki væri nema vegna þess að reynsla annarra t.d. Svía er að vöruverð lækkar um 20 til 40% með aukinni samkeppni á mörkuðum. Og þó ekki væri nema vegna þess að við erum nú þegar búin að taka upp 60 til 80% af reglum ESB án þess að njóta ávinnings sem ESB þjóðir nóta af samstarfin.

Nú ef að samningurinn verður ömurlegur verður hann ekki samþykktur, en vinnan verður áfram til ef að við reynum aftur síðan.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.6.2010 kl. 18:02

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Óskar og hvaða ESB rugl ert þú að tala um. Bendi þér á að um 90% af allri Evrópur er í eða að sækja um aðild að ESB. Það eru kannski allir ruglaðir nema við? Og margar þjóðir ESB gengu þar inn í kjölfarið á kreppu eða fjármálkrísum.

T.d. Svíar, Finnar og löngu áður Danir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.6.2010 kl. 18:09

5 identicon

Ég held því miður að þú hafir rétt fyrir þér Magnús.

Það er LÍÚ auðvaldið sem kaus Bjarna til formanns Sjálfstæðisflokksins sem talar í gegnum hann núna.

LÍÚ er búið að tryggja sér meirihluta á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þetta veit Bjarni Ben. LÍÚ er búið að segja honum frá því að þeir eru með meirihluta að fundinum.

Þess vegna syngur Bjarni Ben eins og Kanarífugl söng LÍÚ í setningarræðu sinni á Landsfundinum.

Sjálfstæðisflokkurinn er nú endanlega orðin málpípa og hægri hönd LÍÚ.  Fyrir 25 árum kom sama stað upp hjá Framsóknarflokknum. Þá breyttist Framsóknarflokkurinn í hagsmunasamtök fyrir SÍS.

Örlög Framsóknarflokksins bíða nú Sjálfstæðisflokksins þegar Sjálfstæðisflokkurinn einangrar sig við sértæka hagsmuni ákveðinna aðila í viðskipalífinu.

Með sama áframhaldi endar Sjálfstæðisflokkurinn sem 5% til 15% flokkur sem er einskorðaður við hagsmuni ákveðinna einstaklinga og fyrirtækja eins og Framsóknarflokkurinn er í dag.

Sniddan, klippt og skorin (IP-tala skráð) 25.6.2010 kl. 21:33

6 identicon

ég

snorri (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 00:36

7 identicon

ég finn til með ykkur sem eruð hlynnt umsókn að ESB ég held því miður að þið vitið ekki hvað þið eruð að tala um!!!!!!!! þetta er einfaldlega afsal af sjálfstæði okkar! mig langar til þess að þið hugsið ykkur aðeins um áður en þið gerið endanlega upp huga ykkar "ekkert annað" annars bið ég ykkur vel að lifa og hafið það gott

snorri (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband