Leita í fréttum mbl.is

Framsókn búin að gleyma öllu varðandi Rannsóknarskýrslu Alþingis og fleirum

Hér fyrir nokkrum misserum kom út mikið rit í mörgum bindum upp á þúsundir síðana. Þetta var skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis.  Þar var aðdragandi og orsakir hrunsins kortlagt eins nákvæmelga og hægt var. Í kjölfarið og þar á undan var hér almenn umræða um að hér þyrfti að breyta algjörlega um kúrs fyrir Ísland - Nýja Ísland.

Fólk talaði um að hér þyrfti að byrja frá grunni. 

Í skýrslu Rannsóknarnefndar voru fullt af atriðum sem talin voru upp. Og í kaflanum um forsetann sem fólk getur séð stuttan úrdrátt úr hér http://silfuregils.eyjan.is/2011/05/08/rannsoknarskyrslan-um-forsetann/  voru lagðar til 3 hugmyndir varðandi forsetan En þær voru:

- Skýra þarf hlutverk forseta Íslands mun betur í stjórnarskránni.

- Setja þarf reglur um hlutverk og verkefni forseta Íslands og samskipti hans við önnur ríki.

- Æskilegt væri að forsetaembættið setti sér siðareglur þar sem meðal annars yrðu ákvæði um það með hvaða hætti er eðlilegt að hann veiti viðskiptalífinu stuðning.“

Um þetta er forsætisráðuneytið að spyrja forsetann. Og hann truflast úr látum. Hann alveg búninn að gleyma orsökunum fyrir því að nefndin leggur þetta til. Væri rétt fyrir fólk að lesa umfjöllun um forsetann í skýrslunni. Nokkur dæmi.

Hitt er annað mál hvort þeir eða í það minnsta sumir þeirra hafi haft óeðlilega greiðan aðgang að forsetanum og opinberum bústað hans í þeim tilgangi að tryggja ákveðin viðskipti, sbr. þau bréf sem hann skrifaði í þágu einstakra fyrirtækja. Hér skulu tekin nokkur dæmi um boð sem haldin voru á Bessastöðum í þeim beina tilgangi að styðja ákveðin viðskipti, eða með öðrum orðum um það hvernig forsetinn og opinber bústaður embættisins voru notaðir til að sanna fyrir útlendingum að viðkomandi viðskiptamenn væru trausts verðir. Dæmin eru tekin úr bókinni Sögu af forseta. Þar segir m.a.: „Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings banka hefur verið tíður gestur á Bessastöðum og sama má segja um forráðamenn annarra banka.“

 Og held að allir hafi verið sammála um að hann gekk allt of langt t.d með Sigurð Einarsson sem hann mærði í mörgum bréfum sem hann skrifaði fyrir Sigurð um allan heim. 

En sem sagt nú vitum vð að Framsókn vill engu breyta.

Þér vilja ekki:

  • Að farið sé í umbætur sem Rannsókanskýrslan leggur til
  • Að stjórnarskrá sé breytt
  • Að ESB samningar séu kláraðir til að sjá hvaða kjör okkur bjóðast.
  • Að kvótalögum sé breytt
  • Að Landbúnaði sé breytt
Og tillögur þeirra í plani B finnst mér sýna að þeir sjá bara skattalækkanir á auðfólk og svo Álver og virkjanir sem framtíðina þó allir viti að orka okkar dugar í svo 5 til 6 álver til viðbótar og svo er hún að mestu búin. Og börn okkar hafa enga orku að nýta í sínar framtíðasýn því hún verður bundin í þessum álverum til 50 ára minnst. 
Þeir vilja gamla Ísland fyrir hrun óbreytt fyrir sömu forréttindastéttirnar.  Líkt og Sjálfstæðisflokkur enda kannski ekki nema von þegar báðir þessir formaenn eru erfðaprinsar sitthvorar forréttindaættarinnar.
mbl.is Bréf valda þingmönnum áhyggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Magnús. Þessi stjórn er búin að fá sitt tækifæri, og misnotaði það í eiginhagsmunaskyni eins og sú gamla. Hvernig er hægt að verja það lengur?

Þessi stjórn fríaði sín flokks-systkini og stjórnarliða, og ákvað að dæma pólitískt á alþingi, að einungis Geir H. Harde, pólitískur andstæðingur, skyldi yfirheyrður í landsdómi. Slík vinnubrögð hjá núverandi stjórnvöldum eru byggð á sama svikapólitíska eiginhagsmuna-grunninum og var. Það þarf að útskýra fyrir mér hvernig er hægt er að réttlæta slík vinnubrögð á hinu háa alþingi hins nýja Íslands, af fólki sem sat í hrunstjórninni, og útbýtir sendiherrastöðum og ýmsu fleira til gamalla svikarar, eins og Halldórs Ásgrímssonar, sem gaf burt kvótann til vina og vandamanna. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands er vinur vina sinna, það verður ekki annað sagt. En góðmennska hans má ekki verða heiðarlegu fólki og heilli þjóð hættulegri en hún nú þegar er orðin.

Jóhannes Björn sagði á fundinum í Háskólabíói í september að það væri eitthvað að íslendingum, og ekki er hægt að efast um að það sé rétt, miðað við hvað er auðvelt að blekkja stuðningsfólk svikulla stjórnvalda, bæði fyrr og nú. Hægt er að sjá fundinn á hjaraveraldar.is

Minni á vefinn hans Jóhannesar Björns: vald.org

Gullfiskaminni íslendinga er hættulegt, og áhrifagirnin er takmarkalaus, eða er það skammsýni og óheiðarleg græðgi sem knýr suma áfram með óverjandi svikulum vinnubrögðum?

Nú skal talað og skrifað hreinskilnislega um svikul stjórnmálin, ef einhver vill nýtt Ísland.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.10.2011 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband