Leita í fréttum mbl.is

Ég er ekki alveg að ná þessu!

Ef að hagnaði úr sjávarútveg er ekki skilað til fólksins, hvering á þá að skilja Illuga þegar hann segir:

Lagði hann áherslu á mikilvægi séreignarréttarins til þess að skapa verðmæti.

Nú er nokkuð ljóst að hagnaður þessara 30 til 50 (man það ekki alveg) er skipulega komið i skjól erlendis eða engin skattur greiddur af honum til þjóðarinnar með ýmsum brellum, hvaða hag höfum við þá af þessu. Nokkuð ljóst að við græðum lítið á fjárfestingu í Útgerð því hún er væntanlega í formi nýrra skipa sem eru smíðuð erlendis fyrir lán sem útgerðin tekur hér og erlendis. Þannig að hagvöxtur af þessum fjárfestingum er aðalalega í þeim löndum sem smíða skipin. Þegar þau koma hingað er öðrum skipum lagt þannig að ekki fá fleiri vinnu við það. Mikið af fisknum er fluttur óunnin úr landi og skapar því hagvöxt fyrir fyrirtæki erlendis. Landvinnslan býr við það að hún er mönnuð að stórum hluta af útlendingum því að þar er ekki hægt að borga mannsæmandi laun. Svona miðað við allan hagnaðinn sem á að vera af þessum veiðum og núverandi fyrirkomulagi þá finnst mér að byggðirnar séu nú ekki að njóta þess að neinu mæli. 

Sé ekki af hverju þessu kerfi má ekki breyta.


mbl.is Stefna stjórnvalda óljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér hefur sýnst á blogginu þínu að það sé margt sem þú nærð ekki. Láttu þér það í léttu rúmi liggja!

Ófeigur (IP-tala skráð) 19.10.2011 kl. 22:44

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

Maggi þeir sem helst hafa barist gegn hærri launum í landvinnslu eru verkalýðssamtökin og forystumenn þeirra. allir nema Vilhjálmur Birgisson. þannig að það ættu nú að vera hæg heimatökin hjá þér að hringja í flokksbróður þinn og spyrja afhverju hann er á móti hærri launum í sjávarútvegi. hann varð alveg æfur eftir stöðugleika sáttmálan þegar sjávarútvegurinn hækkaði laun í landverkafólks. það mátti ekki hækka laun þeirra vegna þess að önnur fyrirtæki í landi gátu ekki hækkað laun. annars hafa allar fréttir sem hafa komið bent til þess að fyrirtækin borga mun meira en lágmarkslaun og virðast fréttir frá samherja og fleirum benda til að ríkulegir bónusar og auka greiðslur séu þar á bæ og annarsstaðar.

og miðað við það að launakostnaður í sjávarútveginum sem heild er +30% (nefndu mér einhverja aðra atvinnugrein sem borgar meira í launakostnað) þá er nú varla hægt að segja að hagnaðurinn fari annað en beint til landsmanna í formi aukinnar neyslu og skattatekna hjá ríki og sveitarfélögum. það er gott að kynna sér málið áður en menn byrja að blammera.

og hefuru einhverjar sannanir fyrir þér með þessum orðum:  "Nú er nokkuð ljóst að hagnaður þessara 30 til 50 (man það ekki alveg) er skipulega komið i skjól erlendis eða engin skattur greiddur af honum til þjóðarinnar með ýmsum brellum, hvaða hag höfum við þá af þessu" eða er þetta bara einhver uppspuni sem þú varst að búa til núna við það eitt að slá inn bloggfærslu?

Fannar frá Rifi, 19.10.2011 kl. 23:03

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Magnús. Ég skil þetta ekki heldur, því það á að ganga frá því í eitt skipti fyrir öll, að klíkuflokkar, ráðherrar og þingmenn séu ekki útsendarar svikulla embættisráðinna ræningja, og geti ekki braskað með fisveiðar íslendinga meir en orðið er.

Eitt skal yfir alla ganga jafnt, og það ættu jafnaðarmenn/konur að skilja betur en aðrir.

Sá sem ekki getur borgað af sínum taprekstri er sviptur sínum rekstri á Íslandi í dag.

Það gildir um alla jafnt, og stjórnmálamenn sem vilja láta taka mark á sér, verða að standa saman um að að taka af skarið og innkalla allt heila klabbið til þjóðarinnar án nokkurra vafninga og nýrra svikaleiða. Þetta snýst um hver á að fá arðinn af veiðunum, en ekki svokallaðan "eignarhlut" á útgerð (sem ríkið/þjóðin er bún að bjarga)!

Þjóðin er að borga fyrir tap útgerðanna og svikin, og á þess vegna meir en fullan rétt á að ráðstafa fiskinum og veiðunum. Ekkert annað er réttlætanlegt í mínum augum.

Eitt verður yfir alla ganga.

Það er komið nóg af svika-pólitíkusum sem elta bara eiginhagsmuni og flokkshagsmuni umfram hagsmuni þjóðarinnar í heild. Halldór Ásgrímsson er restin af þessum svikavinnubrögðum, með Össur Skarphéðinsson í svikabrúnni sinni, svo gæfulegt sem það nú er.

Þetta ætti að vera umhugsunarvert fyrir stuðningsfólk Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna í stjórninni, sem velja að þræta um þessi mál við gamla svikahunda stjórnmálanna, og svelta íslendinga, frekar en að leyfa sveltandi landanum að bjarga sér með eigin fiskiréttindum á neyðartímum.

Þetta verður að breytast strax með neyðarlögum ef ekkert annað dugar, ef það á að vera eitthvað að marka velvilja þessara þjóðkjörnu fulltrúa, til að bjarga almenningi umfram sjálfum sér og sínum "heilögu" svika-klíku-flokkum.

Ég hef ekki trú á að svo langt nái jafnaðar-hugsjón þessara stjórnvalda, eftir það sem á undan er gengið. 

Björgunarsveitirnar hafa ekki vald til að framkvæma þetta, annars væru þær löngu búnar að því, til að bjarga mannslífum.

Nú er nóg komið af svikulum vinnubrögðum einhverra "háttsettra/virtra jafnaðargæðinga" jafnt sem annarra flokka "gæðinga", og dauða og djöfuls nauð fyrir almenning, frá hættulegum embættis-sjúklingum.

Annars er ekkert eftir hjá restinni af vinnufæru fólki, annað en að flýja þetta gjörspillta flokka-klíku-land í eitt skipti fyrir öll, til að halda lífi eins og manneskja, en ekki eins og hungraður þræll í vanþróuðu einræðisríki.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.10.2011 kl. 23:29

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hagnaður er nú ekki það sama og launakostnaður. Magnús telur að hagnaðinum sé komið fyrir erlendis. Því tjóir ekki að andmæla með þeim rökum að launin fari til starfsmannanna.

Vandinn með sjávarútveg og séreignarrétt er að meðan flestu fólki með eðlilega réttlætiskennd þykir það réttarbrot að hrifsa réttinn til fiskveiða af almenningi til að afhenda hann fáeinum heppnum útgerðarmönnum eru aðrir sem telja að eignar- eða nýtingarrétt skuli fyrst byrja að vernda þegar búið er að stela honum með atbeina pólitíkusa. Illugi er því miður í þeim hópi.

Þorsteinn Siglaugsson, 20.10.2011 kl. 00:31

5 Smámynd: Theódór Norðkvist

Það sem að sjálfgræðgimenn meina þegar þeir tala um að skapa verðmæti er að þeir sjálfir fái að sölsa undir sig verðmæti landsins og stinga þeim undan skatti. Pilsfaldakapítalisminn í sinni tærustu mynd, einkavæða hagnaðinn en ríkisvæða tapið.

Þetta hélt ég að allir vissu.

Það er naumast sem þjóðin hefur grætt á þessu liði, fréttir að berast af afskriftum upp á fleiri hundruð milljarða til þeirra, meðan þeir sjálfir fá að leika sér í vellystingum eins og ekkert hafi farið úrskeiðis. Ef það koma einhverjar fréttir af þeim, eru það einna helst fréttir af svallveislum þeirra í Séð og heyrt.

Ekki einu sinni reynt að taka eignir þeirra upp í skuldir, hvað þá kvótann. Athugið að ég kalla kvótann ekki eignir útgerðarrisanna, enda eiga þeir hann ekki, þeir stálu þeir honum af þjóðinni. Mér er sama hvað lygabrellur í bókhaldi fyrirtækjanna segja.

Theódór Norðkvist, 20.10.2011 kl. 00:37

6 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Flottur, Maggi þú ert að ná þessu.

Aðalsteinn Agnarsson, 20.10.2011 kl. 09:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband