Leita í fréttum mbl.is

Ég bara hef ekki trú á Lilju Mósesdóttur

Það er vegna þess að ég sé ekki lausnir hennar framkvæmanlegar T.d. talaði hún á dögunum um að nú væri gegnumstreymislifeyrissjóðir það sem við ættum að taka upp. En viti menn hér er kafli úr frétt héðan af mbl.is um stöðunna í Svíþjóð þar sem þeir eru með gengumstreymis lífeyrissjóða. 

Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, vill að landar hans séu á vinnumarkaði þar til þeir ná 75 ára aldri. Hann hvetur atvinnurekendur til þess að vera opnir fyrir því að ráða fólk sem er eldra en 55 ára.

Reinfeldt sagði í viðtali við sænska dagblaðið Dagens Nyheter að velferðarkerfi landsins og lífeyriskerfi gæti vart borið sig miklu lengur án þess að fólk væri reiðubúið að vinna lengur.

Og svona er það með flestar hugmyndir hennar að þegar skoðað er hvernig þær eru að reynast annarstaðar þá eru þær því miður umdeilanlegar eða ekki að reynast vel.

 

PS kannski rétt að benda á að í Svíþjóð borgar fólk um 18,5% í lífeyriskerfið. 16% af því fer í gengumstreymislífeyrissjóðir en 2.5% er sett í sjóði og hefur fólk val um hvaða sjóð það er geymt í. Þetta kerfi er viðkvæmt mjög fyrir stærð árganga og fjölda eldriborgarar sem eru komin á eftirlaun. Þannig að stórir árgangar sem fara á eftirlaun valda meiri og meiri vanda því það eru hlutfallslega færrri sem koma á ungir inn á vinnumarkað í staðinn því að árgangarnir eru ekki eins stórir og þeir voru um 1960


mbl.is C-vítamín þarf í samfélagið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Óskarsson

Að hvaða leiti er það neikvætt að atvinnurekendur séu hvattir til að ráða fólk yfir 55 ára ?

Víða er það vandamál, þar með talið hér á landi að það er ekki auðvelt að fá vinnu eftir fimmtugt.

Vandamál allra kerfa varðandi framtíðarlífeyri eru að aldurskipting er að breytast.  Fjölgun er á þiggjendum greiðslna og fækkun greiðenda og stutt í það, sama hvaða kerfi er í gangi, að ekki sé hjá því komist að skerða réttindi lífeyrisþega vegna þess að það er ekki hægt að sækja meira til núverandi inngreiðenda.

Á Íslandi þarf að endurskoða lífeyrissjóðskerfi ofan í kjölinn.   Blandað kerfi er æskilegt.   Aðgreina þarf og aðskilja ólíka starfsemi, svo sem örorkuhlutann, almenna sértryggingahlutann og séreignahlutann.   Fjarlægja þarf megin hluta atvinnurekenda og verkalýðsforkólfa úr stjórnum sjóðanna (væri svo sem í lagi að hvor ætti 1 fulltrúa af 5 manna stjórn) og kjósa í það minnsta helming úr hópi almennra sjóðfélaga.    Setja þarf þak á ofurlaun stjórnarmanna og stjórnenda sjóðsins.    Gera þarf meiri hæfniskröfur og stjórn á ekki að hika við að láta forstjóra/framkvæmdastjóra sjóðanna víkja verði sjóðnum á fjárfestingamistök.

Jón Óskarsson, 7.2.2012 kl. 20:32

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Lilja stendur fremst Íslenskra lýðsskrumara.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 7.2.2012 kl. 20:41

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Það er auðvitað alveg hræðilegt að eitthvað nýtt og jafnvel óhefðbundið skuli skjóta upp kollinum. Stefnur, ráð og framkvæmdir gömlu flokkana hafa nefnilega dugað svo æðislega vel.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 7.2.2012 kl. 21:22

4 Smámynd: Jón Óskarsson

@Arinbjörn:  Góður :)

Jón Óskarsson, 7.2.2012 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband