Leita í fréttum mbl.is

Þetta er ekki boðlegur fréttaflutningur

Þarna eru menn að biðja fólk ekki að vera skrifa svona inn á síðu Ara. Finnst það andskoti hart að tengja það við framboð Þóru þó einhverjir sem ætla að kjósa hana séu að skrifa inn á síðu Ara. Enda segir Friðjón Friðjónsson sem er starfandi fyrir Þóru:

„Fyrir hönd framboðs Þóru vil ég taka fram eftirfarandi vegna fyrirlýsinga stuðningsmanna Ara Trausta:
Þessi hugmynd hefur aldrei verið rædd í kosningabaráttu Þóru Arnórsdóttur, engan veginn, aldrei.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Friðjóni. Þegar hann var spurður út í ásakanir aðstandenda Ara Trausta fyrr í kvöld á Vísi.is sagði hann:
„Ég ætla ekki að svara fyrir áttatíuþúsund manns. En þetta hefur aldrei nokkurn tímann verið rætt í herbúðum Þóru." 

Og ef fólk les það sem stendur á síðu Ara þá segir þar m.a. 

Þætti þeim við hæfi að við stuðningsmenn Ara færum inn á síðu Þóru og hvettum hana til að draga framboð sitt tilbaka og styðja Ara Trausta þar sem menn hafa sagt að hann sé hugsanlega sá eini sem geti fellt sitjandi forseta og sátt náðst um ? Það þykir okkur ekki.

Og svo kemur það sem máli skiptir:

Þeir sem hafa litið hér inn í þessum tilgangi segja þó að Ari Trausti sé góður kostur! Við hvetjum fólk til að fylgja eigin sannfæringu og kjósa þann sem þeim þykir hæfastur í embættið

Þetta er sem sagt ábending til þeirra sem hafa verið að skrifa inn á síðu Ara Trausta. Þetta er fólk sem vill Ólaf frá en ekki fólk sem er að starfa fyrir Þóru


mbl.is Hvöttu Ara til að hætta við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

það er ekki alt satt sem Friðjón segir eða ritar...........

Vilhjálmur Stefánsson, 24.6.2012 kl. 22:35

2 identicon

Þú ert mjög andlýðræðislegur maður að því er virðist. Því meiri tveggja turna pólítík sem ríkir í löndum, því minna vald fólksins og áhrif þeirra á eigið líf. Það er margrannsakað og sannað. Tvær fylkingar deila æfinlega í stríði, á friðartímum og í skoðunum fjölmenningar og skoðanafrelsis eru engir "við" og engir "hinir", heldur margir, mjög ólíkir hópar sem hver um sig leggur sitt af mörkum, deila mátulega mikið til að koma hreyfingu á hlutina og stuðla að framförum og jákvæðum breytingum, læra af hver öðrum og gera málamiðlanir. Þar sem tveir deila er þetta ekki hægt, þar ríkir stríð. Það eru andlýðræðisleg og fasísk öfl hérlendis sem vilja kljúfa þjóðina í tvennt til að geta drottnað yfir henni, því tvær meginfylkingar kalla á stríð, eiginlegt að óeiginlegt, og það eru þau sem láta sem svo að í boði séu einungis tveir valkostir, Þóra og Ólafur. Þessi öfl starfa mjög grimmt gegnum fjölmiðla beintengda skuggarmi auðvalds þessa lands, og hafa alltaf gert, enda voru það í raun fjölmiðlar sem komu hér á þöggun og skoðanakúgun, sérstaklega Stöð 2 sem lét reka nokkra menn (þar á meðal flokksbróður þinn núverandi, en ekki þáverandi, hann Sigmund Erni) fyrir að ætla að dirfast að ljóstra upp um leynimakk bankanna. Þessi sömu öfl boða nú Þóru grimmt og stíft, líkt og sértrúarsöfnuður að boða sálarfrelsun og himnaríkisvist. Teknar eru ljósmyndir af henni sem eru eftirhermur af gömlum Maríumyndum (nazistar og kommar hrifust seinna mjög af slíkri list) og henni stillt upp sem einhvers konar gyðju. Haldir eru sjúklegir "Þórudagar", svo ætla mætti að um afmælisdag foryngja Þýskalands fyrrverandi, Hitlers væri að ræða. Ekkert annað framboð er það ófyrirleitið í persónudýrkun og sjúklegum stjörnustælum, ætluðum til að slá ryki í augu lýðsins og svæfa hann djúpum svefni svo ill öfl geti látið greipar sópa hér á meðan lýðurinn sefur. Þóra á að syngja þeim vöggulagið. Hlustum ekki á það falska og holróma mjálm fasismans

Jón (IP-tala skráð) 24.6.2012 kl. 23:00

3 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Haa?

Hverju reiddust þá goðin þegar Sjallar rústuðu nú barasta landinu hérna í gær og mergsugu alla sjóði undir forystu núverandi Forseta? þóru??

Ómar Bjarki Kristjánsson, 24.6.2012 kl. 23:30

4 identicon

Forsetinn er gamall og gegnheill jafnarðarmaður væni. Það eru bara fasistar og þykjustuvinstrimenn sem kalla hann Sjalla. Ég ólst upp við góð gildi í Svíþjóð Olafs Palme og þekki muninn á alvöru jafnaðarmanni, og snobbi með komplex sem vill kalla sig slíkan, en er fasisti í jafnaðarmannagæru eins og margir þessir gömlu refir hér heima, Svavar Gests, Jón Baldvin, frændi Þóru, og hinir hægrikratarnir sem skreyta sig með stolnum fjöðrum. Jóhanna Sig var alvöru jafnaðarkona en hún lætur vont fólk misnota sig. Á Íslandi í dag er alvöru jafnarðarmennska dauð og forsetinn er einn örfárra lýðræðissinna sem enn hafa nein völd hér. 'A meðan stjórna hér fasísk öfl fjölmiðlunum og mata forheimskaðan lýðinn á lygum.

Jón (IP-tala skráð) 24.6.2012 kl. 23:34

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Nuuú, er það svo.

þar lá að.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 24.6.2012 kl. 23:38

6 identicon

"Forsetinn er gamall og gegnheill jafnarðarmaður væni. Það eru bara fasistar og þykjustuvinstrimenn sem kalla hann Sjalla. Ég ólst upp við góð gildi í Svíþjóð Olafs Palme og þekki muninn á alvöru jafnaðarmanni, og snobbi með komplex sem vill kalla sig slíkan, en er fasisti í jafnaðarmannagæru eins og margir þessir gömlu refir hér heima, Svavar Gests, Jón Baldvin, frændi Þóru, og hinir hægrikratarnir sem skreyta sig með stolnum fjöðrum. Jóhanna Sig var alvöru jafnaðarkona en hún lætur vont fólk misnota sig. Á Íslandi í dag er alvöru jafnarðarmennska dauð og forsetinn er einn örfárra lýðræðissinna sem enn hafa nein völd hér. 'A meðan stjórna hér fasísk öfl fjölmiðlunum og mata forheimskaðan lýðinn á lygum."

- Sammála!

Örn (IP-tala skráð) 24.6.2012 kl. 23:48

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Enda er Ari búin að leiðrétta þetta

" Ari Trausti að einstaklingar hafi hringt í hann, bæði fylgismenn Ólafs Ragnars sem vilja ekki Þóru og fylgismenn Þóru sem vilja fyrir engan mun Ólaf Ragnar. Segist Ari ekki líta á þetta sem skipulagða herferð. Hann tekur það skýrt fram að þetta séu ekki formlegir talsmenn Þóru eða Ólafs Ragnars."

Svo minni ég að að málflutningur Ara og Þóru er mjög líkur og það tók mig nokkrar vikur að gera upp á milli þeirra. Ég valdi þann aðila sem hefur meira fylgi og kaus Þóru í dag. Ég vildi gjarnan að það væru færri í framboði því að einlæg ósk mín er að það verði skipt út forseta nú. 16 ár eru ágætu tími og völd spilla. Enda tími til að nýtt fólk komist að borðinu bæði á Bessastöðum og svo næsta vor á Alþingi.  Þá vona ég að endurnýjun verði í öllum flokkum og nýjir flokkas sem hafi raunhæfa stefnu bætist við flóruna á Alþingi.  

En þar sem Ari er með 10% fylgi er bara eðlilegt að einhverjir hafi hugsað sér að það væri nú þess virði að viðra þessa hugmynd því skv. skoðanakönnunum munar ekki nema um 9% á Þóru og Ólafi

Magnús Helgi Björgvinsson, 24.6.2012 kl. 23:55

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þessar kosningar eru ekki venjulegar forsetakosningar,þ.e.a.s. , Ólafur,bíður sig fyrir þjóð sína eingöngu,eftir að mörgþúsund Íslendingar skoruðu á hann,að bjóða sig fram. Hann er öryggisventill og sá eini sem getur stöðvað þessa fasista,illvirkja sem bjóða þóðinni ekkert nema þrældóm.

Helga Kristjánsdóttir, 26.6.2012 kl. 00:45

9 identicon

Helga hefur rétt fyrir sér...Það er ekki boðlegt að ætla að hindra framgöngu lýðræðisins 1940-style með þeim hætti sem Samfylkingarmenn reyna. Það eru nöfn yfir svona menn. Hitler var líka lýðræðislega kjörinn en notaði sér það svo til að eyðileggja lýðræðið. Fasismi kemst oft til valda gegnum lýðræði. Ef þetta fólk væri ekki reglulega stoppað af þjóðinni þá hefði það gengið MUN lengra í fasismanum. Sérstaklega lið eins og Össur, persónulegur vinur margra hryðjuverkamanna, alræðissinna og islamista, með ekki snefil af hvorki frelsis- né lýðræðisást í brjósti.

Jón (IP-tala skráð) 28.6.2012 kl. 21:42

10 identicon

Tek fram ég hef EKKERT á móti venjulegum Samfylkingarmönnum og sumir af þeim eru afburðarfólk, en þeir verða að hafa hemil á andlýðræðislegu fólki sem hefur smyglað sér inn í flokkinn þeirra! Sama gildir um fleiri flokka reyndar...

Jón (IP-tala skráð) 28.6.2012 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband