Leita í fréttum mbl.is

Er að fá upp í háls á þessum bændum í þessu máli.

Væri rétt að minnna þessa labbakúta á þær milljónir sem þeir voru að fá út bjargráðasjóði eða hvað sem þessi hamfarasjóður heitir vegna gosins í Eyjafjallajökli. Og eins að þessar nokkur þúsunund sjátur sem þeir eru með eru minna virði fyrir okkur sem eigum Þórsmörk en að kindur þeirra fái að naga hana í burt.  Minni á að við borgum sauðfjárbændum tugi þúsunda á hvern skrokk í styrki. Eins að þeir eru oft með fleiri tugi hektara sem í sínu heimalandi sem þeir nýta sama og ekkert.  Finnst að ef að þeir treysta sér ekki til að hlífa Þórsmörk við beit þá eigi bara að banna þeim að vera með kindur á þessu landsvæði.
mbl.is Bændur harðorðir vegna Almenninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Magnús Helgi. Það eru víst ekki bændur sem fá krónurnar fyrir afurðirnar. Milliliðirnir ná að fela sinn gróða, og sverja af sér ofurálagninguna á afurðunum. 

Ég hélt annars að Þórsmörk væri afgirt og friðað svæði, en svo er víst ekki.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.8.2012 kl. 21:58

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Samkvæmt nýustu könnunum eru það hestar sem naga svörðinn,svo á sjái,en auðvitað eru þeir ekki í Þórsmörk. Má ég svo minna á 86 ára (kvenm.) bóndann á Laugabóli í Ísafirði,sem berst gegn Láfótu sem leggst á búfénað hennar. Þennan ófögnuð vill yfirráðaapparatið í Brussel friða,þær eru ekki mennskar þessar auðsálir.

Helga Kristjánsdóttir, 5.8.2012 kl. 22:38

3 identicon

"Væri rétt að minnna þessa labbakúta á þær milljónir sem þeir voru að fá út bjargráðasjóði eða hvað sem þessi hamfarasjóður heitir vegna gosins í Eyjafjallajökli" Viltu útskýra þetta bull þitt betur Magnús, hvaða milljónir voru þetta, þær sem fóru í ferðaþjónustuna eða þær sem fóru EKKI til bænda á svæðinu????

"Minni á að við borgum sauðfjárbændum tugi þúsunda á hvern skrokk í styrki." Ef svo væri þá væru ALLIR sauðfjárbændur!!!! komdu nú með útreikninga og sannanir fyrir þessu bulli þínu. Þú ert endalaust búinn að væla yfir því að ESB andstæðingar séu með staðhæfulausar alhæfingar en þú ert engu betri en þeir, ekkert nema bull og drulla yfir þá sem þér þóknast ekki. Glymur hæst í tómri tunnu.......

Keli (IP-tala skráð) 5.8.2012 kl. 22:42

4 identicon

"ÞESSUM bændum"...Hljómar óneitanlega eins og "YOU people" (sem þykir svo móðgandi að það er nánast efni í meiðyrðamál) sem rasistar nota svo oft um svart fólk og aðra hópa sem þeim er illa við. ÞESSUM er bætt við til að auðsýna vanvirðingu, rétt eins og YOU á ensku, enda oftast að finna í setningu sem byrjar á "Hvað er að þessum...." og svo bætist við sá hópur sem þú villt breyta í steríótýpu og vanvirða með einhverjum hætti.

LABBAKÚTUM???? Þetta er orð sem er almennt notað um litla drengi. Að nota það um fullorðna menn er því að auðsýna þeim vanvirðingu, eða sama fyrirbæri og gerist þegar hvítir menn kalla svarta menn "boy", eins rasistar frá Suðurríkjunum eiga enn til.

Að lokum lætur þú sem það sé stórkostleg góðvild að hafa hjálpað bændum að lifa af eyðileggingu í kjölfar stórfelldra náttúruhamfara!!!!!!! Þetta er ekta hugarfar rasista, og eða annars ofstækismanns sem leggur hatur á einhvern hóp manna, til dæmis vegna stéttar þeirra, kynþáttar, litarháttar eða trúarbragða. Þetta er sams konar hugsunarháttur og rasistar beita almennt "What is wrong with THOSE (líka móðgandi á ensku, líkt og 'you') people? Why do they demand so much from us? We send money to Africa and Haiti?" (en svona tala rasistar um það þegar svart fólk dirfist að vilja þiggja sérstaka aðstoð til að bæta fyrir aldagamla misnotkun og nýlendukúgun.

Afhverju leggur þú svo mikið hatur á bændur og landsbyggðarfólk, að þú viljir breyta þeim í einhvern sérstakan hóp hér á landi, sem hafi hér sambærilegt hlutverk og gyðingar gerðu í Evrópu, og menn geti sameinast um að leggja fæð á og neita um sjálfsögð réttindi eða nauðsynlega aðstoð?

Ég skal segja þér afhverju bændur og landsbyggðarfólk kjósa ekki flokkinn þinn almennt. Það er afþví innan hans er að finna of mikið af hræsnurum líkt og þér sjálfir, sem dirfast að kalla sig JAFNARÐARMENN, en eru þó það mikil snobb og elítistar að þeir tala um hina eiginlegu alþýðu, og máttarstólpa þessa lands; landsbyggðarfólkið og sjómennina, líkt og hvítir rasistar tala um svarta menn eða nazistar um gyðinga. Þess konar umtal um nokkurn hóp manna er SVIK við allar eiginlegar hugsjónir vestrænnar menningar, og ljótur arfur frá tímum nýlendukúgunnar, þrælahalds og Evrócentrísk hugsunarháttar þess sem ól loks af sér nazismann, eftir að hafa fætt af sér mörg skyld skrýmsli. Hugsunarhátts sem verður að GANGA AF DAUÐUM ALGJÖRLEGA ef nokkur framþróun á að verða meðal mannkynsins og minnstu líkur á friði, því þetta er EINN heimur!

Skammastu þín bara fyrir að stuðla að sundrungu á Íslandi. Ég er satt að segja SAMMÁLA því að í þessu tilfelli séu umhverfishagsmunir og langtímahagsmunir mikilvægari hagsmunum þessara einstöku bænda, en það réttlætir ALDREI svona sundrungartal sem stuðlar að því að gera einn hóp innan þessa samfélags hornrækan og stuðla að "dehumanization" hans og nota hann sem allsherjar "scapegoat". EKKERT réttlætir að djöfulgera með einhverjum hætti einhvern hóp samfélagsins og stuðla þannig að sundrungu, og loks mögulegri borgarastyrjöld sé ekki gripið í taumana. Og það vita ALLIR sannir jafnaðarmenn, og þeir fyrirlíta fals-jafnaðarmenn sem viðhafa svona tala það mikið að þeir kjósa margir frekar hugmyndafræðilega óvini sína, hægrimennina, á þing, heldur en þína líka, því betri er úlfur sem kemur fram sem slíkur en úlfur í sauðargæru sem skreytir sig með stolnum "jafnaðarmannafjörðum". Íslensk þjóð er ónæm fyrir falsi, fagurgala og hræsni. Þið getið ekki slegið ryki í augu hennar. Og þið eruð algjörlega á eftir og skiljið ekki hvert hinn stærri heimur er að stefna, þegar nýtt heimsskipulag, þar sem gamla Evrópa verður sett í það algjöra aukahlutverk sem hún á skilið, og ekkert betra, eftir arðrán sín og fjöldamorð, tekur við...og það fáið þið ekki stöðvað. Réttlætið og HIN SANNA JAFNAÐARMANNAMENNSKA mun sigra ykkur loddarana sem farið um með ófriði og viðhaldið úreltri heimsskipan!

Nýjir tímar... (IP-tala skráð) 6.8.2012 kl. 03:07

5 identicon

Oft er sagt að það talar hver einn eins og hann hefur vit til.  Vitið er ekki að flækjast fyrir þessum Magnúsi.

Steingrímur Viktorsson (IP-tala skráð) 6.8.2012 kl. 04:01

6 identicon

Eins og engum kemur á óvart, ku Magnús Helgi Björgvinsson þessi hafa lifibrauð sitt sem senditík og einkaþjónn Össurs Skarphéðinssonar og annars rjóma (og úldinn og gamall er sá "rjómi" Samfylkingarinnar, manns sem hefur sama innræti til að bera, en sama gildir um aðra sem segja Magnúsi þessum, beint eða bara óbeint (, því undirgefnin er afl sem knýr þá sem eru haldnir henni til að reyna að þóknast, rétt eins og bæði Magnús þessi og masókistar ESB/AGS þau Össur og Jóhanna vita) fyrir verkum og um hvað hann eigi að blogga.

Karl (IP-tala skráð) 6.8.2012 kl. 05:25

7 identicon

nafni þu ert ruglaður farðu til læknis

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 6.8.2012 kl. 08:52

8 identicon

Það er svo að ef fólki leyfist að koma við kauninn á þessari bændamafíu, þá nota menn ófögur orð,

Bændur og kotrungar þessa lands hafa mergsogið land og þjóð svo öldum skiptir

Kristinn J (IP-tala skráð) 6.8.2012 kl. 14:46

9 identicon

Komið þið sæl; Magnús Helgi - sem aðrir gestir, þínir !

Var búinn; að senda Magnúsi síðuhafa tóninn, á minni síðu, svo sem.

Kristinn J. 

Alrangar ályktanir; af þinni hálfu, ágæti drengur.

Það er; embættismanna slekti fyrri alda - sem og stjórnmálamanna nútímans, sem þú ættir að senda tóninn; ekki Bændum.

Prestar og Sýslumenn; flestir þeirra, voru hinir raunverulegu land- og þjóðníðingar, og eru að hluta til enn - ásamt þeim : Steingrími J. Sigfús syni - Bjarna Benediktssyni - Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, og Jóhönnu Sigurðardóttur, Kristinn minn.

Það er það lið; sem við þurfum að knésetja, á allan mögulegan máta, Kristinn minn.

Með kveðjum; úr Árnesþingi, þrátt fyrir andstreymið, gegn framleiðslu séttunum /

Óskar Helgi Helgason, 

af Vestlenzkum- og Sunnlenzkum Bændum kominn - sem og Húnvetn skum, að nokkru / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.8.2012 kl. 16:19

10 identicon

framleiðslu stéttunum; átti að standa, þar. Afsakið; fljótfærni nokkra.

ÓHH

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 6.8.2012 kl. 17:00

11 identicon

Hvernig geta menn vælt yfir því þegar peningar fari frekar í matvælaframleiðslu frekar en t.d. í gjörsamlega óraunhæfa byggingu og rekstur húss eins og Hörpu?

Það er hægt að tuða yfir öllu og það er nóg af ósamngjörnum hluti í landi. Hvers vegna á sauðfjárbóndi sem hefur Rarik virkjun 2 km frá sér að borga miklu meira fyrir rafmagn en í íbúar í þéttbýli?

Ingi St. (IP-tala skráð) 6.8.2012 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband