Leita í fréttum mbl.is

Leiðréttingarsjóður?

Var aðeins að kynna mér þessar hugmyndir eins og Guðmundur í XG lagið þetta fram. Er það rétt skilið hjá mér að óverðtryggðu lánin komi til með að bera 7,6% vexti og vaxtamunur verði um 7% á þessum lánum og lán  leiðréttingarsjóðsins sem verð verðtryggð með 0,25% vöxtum. Og svo eigi vaxtamunur að greiða upp lán Seðlabankans.

Eru menn að segja að vextir þá hér til framtíðar eigi að vera um 7,5% af þessum þá óverðtryggðu húsnæðislánum. Þ.e. að á hverju ári borgi fólk sem nemur 7,5% af lánsupphæðinni í vexti. Þ.e. af 20 milljóna láni borgi fólk þá um 1,5 milljónir í vexti + svo afborgun af láninu. Þ.e. kannski um 2 til 2,5 milljónir, Það gerir þá um 166 þúsund á mánuði fyrstu árin minnst.

Er ekki holt fyrir fólk að skoða að í öllum nágranalöndum okkar eru vextir 2 til 4%. Það kaupir ekkert ungt fólk íbúðir á þessum kjörum ef bankarnir lána á sömu kjörum til nýrra kaupenda og þeirra sem fá lækkun á lánum skv. þessari leið. 

En hér vilja náttúrulega allir hafa krónuna því hún er svo sveigjanleg. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Helgason

Ef ég hef skilið xG hugmyndirnar rétt þá væri trúlega skynsamlegast að hafa lánin úr leiðréttinarsjóðnum á breytilegum markaðsvöxtum því annars myndast uppgreiðsluáhætta. Ef lántakar færu að greiða upp lánin í stórum stíl þá væri tæplega hægt að reikna með því að vaxtamunur myndi dekka niðurfærslu lánanna á raunhæfum tíma, nema að menn færu í að lána uppgreiðslu féð aftur út. Í því tilviki þá væri væntanlega ekki hægt að lána það út á hærri vöxtum en markaðsvöxtum svo að markaðsvextir kæmu kannski bara á lánin að sjálfu sér. 

Benedikt Helgason, 22.10.2013 kl. 08:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband