Leita í fréttum mbl.is

Skuldalækkun væntanleg upp á 200 milljarða!

Las einhverstaðar á Facebooki í morgun færslu þar sem Framsóknarmaður hefur eftir Vilhjálmi Birgissyni helsta sérfræðing Framsóknar um verðtryggingu og lánalækkanir að skuldalækkun væntanlega komi tilm eð að kosta tæpa 200 milljarða og Sigmundur Davíð boðar að þetta sé allt á áætlun.

Í framhaldi af því las ég á síðu Verkalýðsfélagas Akranes að í ræðu í Janúar hefði Vilhjálmur Birgisson sagt að verðtryggð lán hemilia væru um 1400 milljarðar.  OK í framhaldi af því fór ég að velta fyrir mér þessum tæpu 200 milljörðum og hvernig þeim yrði dreyft.  

  •  Ef við dreifum þessu á heildarlánin þá fáum við út að 200 milljarðar eru um 14,2% af 1400 milljörðum.  Verður það gert þannig? Það myndi þýða að þeir sem eru nú með skuldir upp á 20 milljónir fengju 3 millljóna lækkun sem þýðir um 12 til 15 þúsund kr lækkun greiðslubirgð á mánuði. Hjálpar það mörgum? Örugglega ekki mörgum sem eru að missa húsnæðið núna!
  • Hverjir eiga að borga þessa 200 milljarða? Eru það skattgreiðendur? Þarf þá ekki að gera ráð fyrir því í fjárlögum?
  • Ef það á að greiðast með vaxtamun. Er það ekki þá að binda háavexti næstu ár og áratug t.d. ef að ný lán þessa fólks yrðu bundin með óverðtryggðum 7,5% vöxtum.
  • Nú ef að ekki allir fá þessa lækkun lána en þurfa að bera kostnað af þessu með því t.d. að þessar upphæðir kæmu frá kröfuhöfum en er útdeilt til valdra hópa en skattgreiðendur þurfa áfram að borga niður skuldir ríkisins sem hefði verið hægt að lækka með þessum sömu fjármunum.

Og svo t.d. með menn eins og mig sem er með lífeyrissjóðslán sem upprunalega komu vegna húsnæðiskaupa sem gengu ekki upp og ég því verið í um 25 ár að gera upp skuldir vegna þeirra. Fáum við t.d. enga lækkun sem höfum þó gengið í gegnum marga forsendubresti af því að lán okkar eru með veð í eigunum annarra?

Það er sennandi tíma í vændum skv. Sigmundi Davíð er þetta allt á áætlun og því innan við 14 dagar þar til maður fær svör við þessu öllu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Magnús Helgi: Eins og þú segir réttilega þá er Vilhjálmur Birgisson eins og er a.m.k. einn helsti talsmaður framsóknar í þessum verðtryggingar- og skuldalækkunarmálum. Vilhjálmur hefur líka merkilegt nokk verið ansi harður í gagnrýni sinni á aðkomu lífeyrissjóðanna að fjármálamarkaðinum á Íslandi. Uppistaðan í þeim tillögum, sem framsóknarmenn eru að smíða núna felst í því, að lífeyrissjóðirnir, sem eru helstu og stundum nánast einu lánardrottnar Íbúðalánasjóðs, verði látnir taka á sig 20% verðlækkun á veðbréfum sínum gagnvart sjóðnum. Það mun auðvitað þýða lækkun á lífeyrisréttindum um nokkuð hærri prósentutölu. Það mun hinsvegar í einhverjum tilvikum og kannski velflestum þýða tvo slæma kosti fyrir ríkissjóð. Í fyrsta lagi myndi það þyngja greiðslubyrði ríkissjóðs gagnvart lífeyrisþegum, því tiltölulega hærra hlutfall af lágmarkslífeyri myndi eftir lækkun koma frá TR. Í öðru lagi myndi það hækka þá snjóhengju, sem yfir ríkissjóði og skattgreiðendum vofir vegna ríkisábyrgðar á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna. Það er orðið nokkuð ljóst að jafnvel hörðustu framsóknarmenn gera sér ljóst, að frá kröfuhöfum í bú föllnu bankanna er ekki neinna fjármuna að vænta og þess utan algerlega ljóst, að margir þeirra eru þegar farnir að undirbúa alþjóðlegar málssóknir á hendur íslenska ríkissjóðnum vegna þess taps, sem erlendir aðilar hafa orðið fyrir vegna falls bankanna. Meiningin er að koma á argentísku ástandi hér, þ.e. að íslenska ríkið og íslensk fyrirtæki verði algerlega á vonavöl og allar okkar tekjur fari til kröfuhafa. 

Ellismellur (IP-tala skráð) 16.11.2013 kl. 20:30

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Vilhjálmur Birgisson er bullukollur og ekur furðu að þessi maður geti verið formaður verkalýðsfélags á Akranesi. Og hver kýs hann til þess? Verkamenn á Akranesi eða? Þetta verkalýðsfélag hlýtur að vera í rúst og hann eihvernveginn hafi nýtt sér að nánast enginn taki þátt í verkalýðsfélaginu. Eg mundi ekki treysta framsóknarmanni til þess að vera í forsvari verkalýðsfélags.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.11.2013 kl. 00:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband