Leita í fréttum mbl.is

Er Ásmundur Einar að boða þarna möguleg Landráð?

Ásmundur Einar Daðason skrifar grein í Moggann í dag. Þar sem hann sýnist mér boða að ef að áframhald viðræðna við ESB yrði samþykkt í þjóðaratkvæði, þá mundi núverandi stjórnvöld fara til Brussel með sýna hörðustu ESB andstæðinga til að eyðileggja möguleikana á viðundandi samningi. Hann segir:

Það yrði aðildarsinnum líklega mjög til framdráttar ef hörðustu ESB-andstæðingar landsins mættu til Brussel í þeim tilgangi að semja um hvernig aðlögun næstu ára verði háttað. Ef utanríkisráðherra er ekki tilbúinn að setja undirritaðan í forystu fyrir þessari sveit er ekki ólíklegt að t.d. Jón Bjarnason, Guðni Ágústsson eða Styrmir Gunnarsson verði fyrir valinu.  Það gæti orðið enn fróðlegra að fylgjast með því þegar einstök atriði er varða ESB-samningana verða rædd í utanríkismálanefnd Alþingis þar sem Birgir Ármannsson, einn öflugasti ESB-andstæðingur þingsins, gegnir formennsku og undirritaður varaformennsku. IPA- og Taiex-aðlögunarstyrkirnir fá eflaust flýtimeðferð hjá fjárlaganefnd þar sem Vigdís Hauksdóttir, formaður Heimssýnar, ræður ríkjum og varaformaðurinn, Guðlaugur Þór Þórðarson, mun eflaust berjast ötullega fyrir málinu. Forseti Alþingis mun örugglega halda okkur öllum við efnið enda „mikill“ áhugamaður um aðild Íslands að ESB,

Svona í ljósi þess að ef þjóðin vildi að viðræðum yrði haldið áfram og besti mögulegi samningur yrði lagður fyrir þjóðina, þá sé ég ekki betur en að Ásmundur sé að hóta því að núverandi stjórn sé tilbúin að vinna gegn því með öllum ráðum. Og það að hóta því að vinna kerfisbundið gegn hagsmunum þjóðarinnar hlýtur að jaðra við LANDRÁÐ.

Og því er ljóst eftir svona hótanir þá hlýtur Ásmundur og þeir sem hann nefnir að þurfa að segja af sér samþykki þjóðin áframhald viðræðna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Magnús Helgi - sem og aðrir gestir þínir !

Dala drengurinn Ásmundur Einar - er einfaldlega ekki marktækur í Loforðaflokks (''Framsóknarflokks'') órum sínum með framvindu íslenzks samfélags.

Því miður - gildir það sama um vini þína kratana sem og meðlimi : A - D og V lista Magnús minn.

Vanþróunarlandinu Íslandi - er bezt komið sem Kanadískri og Rússneskri cóloníu héðan af. Landsmenn eru einfaldlega of frumstæðir til þess að halda úti heilbrigðu og eðlilegu samfélagi / undir Þýzka hramminn að leggjast væri algjört glapræði þar sem Ísland er jú órjúfanlegur hluti Norður- Ameríku og Berlínar - Brussel öxulinn aðeins ógæfuvaldur sem dæmin sanna.

Þetta eru - mín LÖNDUNAR RÁÐ á framtíðar skipan mála hérlendis Magnús Helgi !!!

Með beztu kveðjum sem oftar - af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.1.2014 kl. 12:50

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Jú, þetta er rétt. Þingmannsvitleysingurinn segir s sona að hann og hans gengi ætli að vega að Íslandi og hagsmunum þess. Reka rýtinginn í bak landi sínu og niðurlægja á allan hátt.

Afsögn strax! Burt með þennan vitleysing.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 16.1.2014 kl. 15:46

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

ESB hefur aldrei sagt að íslendingar fengju einhvern samning.Það kom fram síðast í gær.Þannig að allt tal um að kosið verði um einhvern samning,eftir einhvern ótiltekinn tíma er bull.Það var kosið um það í kosningunum í vor hvort íslendingar vildu ganga í ESB Þeir flokkar sem stjórna núna fengu yfirgnævandi meirihluta í þingkosningunum.Báðir flokkarnir lýstu því yfir fyrir kosningar að þeir vildu ekki ganga í ESB.Þess vegna er málið dautt og verður þar til ríkisstjórn tekur við sem vill ganga í ESB.Áfram Ásmundur.

Sigurgeir Jónsson, 16.1.2014 kl. 16:25

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þú þarft Magnús Helgi að lesa bók Össurar.Þá munt þú sjá hverskonar ruglflokki þú ert í.Svo ráðlegg ég þér að setja mjólk í könnuna, frá MS og Guðna Ágústsyni.Það hefur læknað margan kratan.

Sigurgeir Jónsson, 16.1.2014 kl. 16:31

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta er nefnilega málið með öfga-kjánaþjóðrembinga.

Þeir virðast bókstaflega njóta þess að níðast á landi sínu. Líkt og þeir fái kikk útúr því.

Hvenær sem kjánaþjóðrembingsbullustampar sjá tækifæri til að skaða landið sitt og lýðinn - þá segja þeir ekki nei.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 16.1.2014 kl. 16:44

6 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Rétt hjá Magnúsi, þetta jaðrar við landráð, þar sem þarna er hótað að vinna gegn hagsmunum þjóðarinnar.

Sveinn R. Pálsson, 16.1.2014 kl. 17:04

7 Smámynd: Rafn Guðmundsson

má svo sem segja að hann boði skemmdarverk almenningur vill klára samninginn sýnist mér

Rafn Guðmundsson, 16.1.2014 kl. 17:41

8 identicon

Ásmundur er að verja hag 60% þjóðarinnar.

ESB snúðarnir eru  líklegri til að fremja landráð.

þór (IP-tala skráð) 16.1.2014 kl. 20:07

9 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Klára samninginn, er einhver"samningur" og verður einhver" samningur.Eins og áður er sagt kannast ESB ekki við að byrjað hafi verið á einhverjum "samningi",hvað þá að staðið hefi til að ljúka honum.Það eina sem ESB kannast við er að Ísland hafi sótt um aðild að ESB og verið í aðlögunarferli í framhaldi af því, og því aðlögunarferli hafi verið hætt.Og byrjar ekki aftur, ef stjórnarflokkarnir standa við landsfundarsamþykktir sínar, þar sem segir að hvorugur flokkurinn styðji aðild Íslands að ESB. 

Sigurgeir Jónsson, 16.1.2014 kl. 20:12

10 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég botna ekkert í hvað er að gerast bak við tjöldin hjá öllum flokkum. Enda er mér ekki ætlað að vita það, og ég er ekki með í leikritinu. Ég er áfram bara ég, og engin breyting þar.

Enda ekki reiknað með að almenningur skilji upp né niður í bullinu sem viðgengst í baktjalda-áróðurheimum. Afskaplega þægileg tilfinning? Eða þannig?

Ekki dettur nokkrum manni í hug að velta því fyrir sér, þessa áróðurs-dagana, að huga að EES/ESB-fiskistjórnsýslunni allraflokka-meðvirku, sem fjármagnar áróðurs-"sannleiks"-fræðin?

Hvers vegna ert þú Magnús Helgi, ekki að berjast fyrir því að Steingríms J.-Samherjinn og co, fari ekki með allan togaraflotann til Grænlands, án þess að Íslands-niðurgreiðslu-skattaþrælar fái neitt í sinn hlut, af söluverðinu?

Það er eiginlega stórmerkilegt, að almenningur skuli selja sig svona ódýrt til áróðursmeistara Lífeyrissjóðs-ræningjanna og allra Landsbanka-ranghala-ræningjanna? ESB-já-sinnar hafa sinn eigin skilning á orðinu LANDRÁÐAMENN.

Það er ljómandi gott að hafa sína eigin sönnu sannfæringu og skilning á orðinu Landráðamaður. En það gefur engum leyfi til að telja sína eigin sannfæringu, þá einu sönnu sannfæringu, fyrir velferð valdalausra skattaþræla EES/ESB-stjórnvalda.

En endilega kennið Ásmundi Einari Daðasyni um þau skipulögðu stjórnmála-leikritasvik Steingríms Jóhans Sigfússonar, og svika Framsóknar-VG-co. Drengurinn hefur breieðara bak en híenur ESB-áróðursmeistaranna. DV-meistaranna sem ætlað var/er að gera Ásmund Einar Daðason ómarktækt aðhlátursefni, vegna staðfestu sinnar og sannfæringu gegn ESB.

Hjörðin fylgir fjölmiðla-bankamafíu-Rokkefellerunum, hér í siðblinda Íslands-brjálæðinu.

Grunnskólamafíu-stjórnsýslan hefur því miður náð mörgum í heilaþvotta-síu-grunnskólunum, til að stjórna bönkunum. Siðblinda, er dóplóminn (alþjóðadiplómi) sem gefur aðgengið að æðstu stjórnsýslunni Alþjóða-banka-mafíuóðu.

Kannski fá einhverjir aðeins rúmlega 2% kauphækkun og jafnvel orður, fyrir trygglyndið við ESB-bankamafíuna í Rokke-fellunum. Það hlýtur að þykja mikilvægt? 

Þorvaldur Gylfason, sá góði drengur, fór dálítið vitlaust að, við að redda staðfestunni og réttlætinu, og fleiri eru á sama OECD-heilaþvottarólinu í vestrænum rétt-trúnaðarsiðfræðum.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.1.2014 kl. 20:14

11 identicon

Eru það nú orðin landráð að fylgja ekki vilja Árna Páls...

Sigurður (IP-tala skráð) 17.1.2014 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband