Leita í fréttum mbl.is

Í ljósi frétta af ummælum Sigmundar er rétt að vísa í þessa frétt.

Af dv.is

Fjórtán milljarða frískuldamark hefði dugað

Frískuldamarkið óþarflega hátt fyrir minnstu fjármálafyrirtækin
MP banki er minnstur viðskiptabankanna fjögurra en hann skuldar þrettán milljarða umfram frískuldamarkið.
Á mörkunum MP banki er minnstur viðskiptabankanna fjögurra en hann skuldar þrettán milljarða umfram frískuldamarkið.
Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Til að undanskilja lítil fjármálafyrirtæki hefði verið nóg að setja fjórtán milljarða frískuldamark vegna sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki, sem í daglegu tali er kallaður bankaskattur. Þess í stað var samþykkt að setja frískuldamarkið í 50 milljarða króna en það veitir MP banka, minnsta viðskiptabankanum, verulegan afslátt af greiðslum sem annars hefðu verið inntar af bankanum vegna bankaskattsins.

DV kannaði skuldastöðu viðskiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja sem lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins og reiknaði út frá heildarskuldum hvers aðila eins og þær birtast í síðasta birta ársreikningi hvað fyrirtækin hefðu borgað með og án frískuldamarksins.

Sparisjóðirnir langt frá markinu

Aðeins viðskiptabankarnir fjórir skulda umfram 50 milljarða frískuldamarkið sem skilgreint er í lögunum. Sjö sparisjóðir sem DV kannaði skulda allir miklu minna en 50 milljarða og eru því langt frá markinu. Enginn þeirra kemur til með að borga bankaskatt í ár vegna marksins. Samkvæmt yfirlitinu er það Sparisjóður Vestmannaeyja sem skuldar mest sparisjóða, með skuldir upp á 11,8 milljarða króna. Hefði frískuldamarkið ekki komið til hefði sparisjóðurinn þurft að greiða sjötíu milljónir króna í sérstakan bankaskatt, langmest allra sparisjóða.

 Svo bendi ég fólki að lesa þetta blogg. Þar sem m.a. segir 

En er Frosti Sigurjónsson svo óhefðbundinn þegar betur er að gáð? Hversu hefðbundinn er forsætisráðherrann sjálfur í þessu samhengi?
Hér segir ráðherrann að viðræður standi yfir við kröfuhafa í þrotabú íslensku bankanna. Hér segir ráðherrann hins vegar að það standi ekki til að ræða við kröfuhafana um eitt né neitt.
Hér lýsir ráðherrann því hvernig samningaviðræður við kröfuhafa eigi að skila peningum til að greiða niður húsnæðisskuldir Íslendinga. Ekkert slíkt hefur gerst, heldur stendur til að millifæra skatttekjur til tekjuhæstu heimila landsins í þessum tilgangi.
Hér segir ráðherrann að áætlun um losun gjaldeyrishaftanna verði kynnt í september 2013 og það muni ekki taka langan tíma að klára verkið. Hér segir hann hins vegar frá því að þetta muni bæði taka stuttan tíma og langan (!).
Hér segir ráðherrann frá því hvað það er einfalt að afnema verðtryggingu á lánum og framsóknarflokkurinn muni ekki taka sæti í ríkisstjórn sem ekki afnemi verðtrygginguna. Ekkert slíkt er að gerast, þvert á móti stendur til að ráðast í aðgerðir sem takmarka aðgengi almennings að lánsfé, sérstaklega þeirra tekjuminni.
Það er af nógu að taka í þessum efnum þessu til viðbótar.
Það getur verið að forsætisráðherra finnist Frosti Sigurjónsson vera óhefðbundinn þingmaður vegna ósannsögli sinnar. En það er ráðherrann líka.


mbl.is Hitt væri trúverðugri samsæriskenning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Árni Páll vildi hafa 50 milljarða frítekjumark.Hann fékk það fyrir hönd Samfylkingarinnar.Ef hann vill einhverja aðra tölu núna á hann að segja það.Ertu að gefa í skyn Magnús að Árni Páll sé einhver bjáni.

Sigurgeir Jónsson, 26.1.2014 kl. 13:39

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Staðreyndin er að MP banki mun þurfa að borga hærri bankaskatt eftir þessa breytingu en áður. Það er ekki stór munur, þrjár milljónir, en samt hækkun. Þannig er það bara lygasaga að verið sé að veita MP banka einhverja eftirgjöf, en þessi saga er fundin upp á ekkifréttastofu Stöðvar 2 af Þorbirni Þórðarsyni sem virðist alltaf finna skítalykt af öllu ætli hún sé ekki bara af honum sjálfum... og svo var þessi grútskítuga smjörklípa gripin á lofti af sjálfsögðu engum öðrum en formanni Samfylkingarinnar sem virðist hafa dalað um nokkur stig á greindarkvarðanum ef hann hélt sig komast upp með þessa lygi. Reyndar þá er rannsóknarefni hvort það eru einhver takmörk fyrir því hversu oft Samfylkingarmaður getur tuggið sömu lygina, allavega er ljóst að ef slík takmörk eru til staðar af náttúrunnar hendi þá hefur Árni Páll allavega ekki fundið þau ennþá. Svo er veðmál í gangi um hvenær hann fattar að það er komin 21. öldin og skotgrafarpólitík er ekki bara úrelt í dag heldur litin hornauga víðast í samfélagi manna. Annað veðmál er líka í gangi um hvort það muni samt verða nóg til að Árni Páll hætti þessu, eða hvort hann fer þá að reyna að berjast fyrir að koma skotgrafarpólitík aftur í tísku, og um leið fleiri úreltum hlutum eins og ljósvakanum, flatjarðarkenningunni, hestvögnum, lýsislömpum og evrópskri einokunarverslun.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.1.2014 kl. 14:02

3 identicon

Frosta til foráttu fátt

fann Simmi og tók hann  í sátt,

því  er engin þörf

að þings truflist störf

þó hugsi hann fléttuna upphátt!

http://www.dv.is/frettir/2014/1/25/frosti-leyfir-ser-ad-hugsa-upphatt/

 

Þjóðólfur í Frekjuskarði (IP-tala skráð) 26.1.2014 kl. 14:03

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég tek undir með Guðmundi og vil koma á enn einu veðmáli um það hversu oft Samfylkingarmaður getur haft rangt fyrir sér áður en hann hefur vit á því að halda kjafti.

Það er sannarlega rannsóknarefni allavega.

Kannski má klóra út einhvern ESB styrkinn í það?

Jón Steinar Ragnarsson, 27.1.2014 kl. 13:00

5 identicon

Ég held að formaður Samfylkingarinnar sé allra óheiðarlegast stjórnmálamaður sem komist hefur á Alþingi Íslendinga.

Maður hefur aldrei á ævinni horft upp á annan eins viðsnúning hjá einum manni frá einum degi til annars, eftir því sem hentar þann daginn.

Snýst 180 gráður í hverju málinu á fætu öðru, allt eftir því sem hentar niðurgangi þessa manns í fjölmiðlum.

Þetta frítekjumark var alveg ljómandi fínt þegar hann samþykkti það sjálfur í nefndinni, en alveg ómögulegt þegar fjölmiðlar fóru að gagnrýna það.

Þessi maður er svo fullkomlega ómarktækur í allri umræðu og ætti snarlega að finna sér aðra vinnu.

Sigurður (IP-tala skráð) 27.1.2014 kl. 13:07

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að benda þér á að Árni hefur ekki í sjálfu sér talað minnst um þetta mál. Það hafa verið fjölmiðlar. Árni var hinsvega að ræða það að það þyrfti að skýra hvernig þessi upphæð 50 milljarðar var fundin út. Hverjir það voru sem komu með upphæðina. Efast um að á einum fundi hafi hann haft möguleika á að finna út hvort viðkomandi upphæð hafi verið heppileg. Eða getað mátað hana við stöðu allra fjármálastofana á landinu.  Enda segir hann ekkert um upphæðina nema að meirihluti haf lagt það til. Sbr:

Meiri hlutinn leggur til smávægilega hækkun sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki í ljósi hugmynda um svokallað frímark heildarskulda undir 50 milljörðum kr. Að mati 1. minni hluta eru tillögur um frímarkið af hinu góða og að það sé nauðsynlegt til að mæta þörfum minni fjármálafyrirtækja.
    Fyrsti minni hluti telur breytingartillögur meiri hlutans jákvæðar og til þess fallnar að bregðast við athugasemdum sem komið hafa fram um álagningu skattsins. 1. minni hluti leggur fram tillögu sem hefur í för með sér að tekjur af sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki verða 6 milljörðum kr. hærri en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sé bankaskattur jafn örugg tekjulind og meiri hlutinn leggur upp með eru engin sérstök rök fyrir því að hann verði ekki nýttur til þess að afla tekna og fjármagna önnur opinber verkefni en niðurfellingu verðtryggðra fasteignalána. Sjálfsagt er að nota skattinn til að fjármagna atvinnuþróunarverkefni. Fjármögnun slíkra verkefna fer vel saman við sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki að því leyti að þau eru tímabundin í eðli sínu líkt og skatttekjur af fjármálafyrirtækjum í slitameðferð.

Síðan kom fram í fjölmiðlum að þetta virtist hafa verið sniðið að MP banka um það gat Árni held ég ekkert vitað. Og því eðlilegt að um þetta sé spurt.

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.1.2014 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband