Leita í fréttum mbl.is

Eitthvað rímar þetta illa við það sem Heimssýn og Páll Vilhjálmsson hafa verið að segja!

Skv. Heimssýn og bloggurum á þeirra línu er Bretlands rétt um það bil að kveðja ESB! En úps:

 Sam­kvæmt könn­un­inni eru nú 44% Breta hlynnt ver­unni í Evr­ópu­sam­band­inu en 36% henni and­víg. Þetta mun vera mesta fylgi við áfram­hald­andi veru í sma­band­inu frá því í sept­em­ber 2010.

Hvernig væri svo að menn sem eru andvígir samvinnu okkar við önnur lönd reyndu nú að segja okkur rétt frá. SKv. því þetta lið hér hefur verið að blása yfir bloggið og fleiri staði var svo yfirgnæfandi Brata sem vildu ekki vera í ESB áfram að þetta væri bara spurning um dagsetningu á brotför.  Og þeir hafa komist upp með að ljúga þá sem ekki nenna að kynna sér málin fulla um þetta mál. 


mbl.is Fleiri vilja vera áfram í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú þarft nú aðeins að athuga muninn á samvinnu við önnur lönd og aðild að forsjárhyggju batteríi eins og ESB.

Samvinna við önnur ríki er möguleg, ef ekki einfölduð án aðildar að ESB.

Hins vegar felast mikil afskipti af einkalífi fólks og starfsemi fyrirtækja í aðild að evrópska efnahagssvæðinu og ESB.

Margar reglugerðir þeirra eru sérsniðnar þeim tilgangi að gefa stórum evrópskum fyrirtækjum forskot á minni fyrirtæki í asíu, sem eru þó mun stærri en það stærsta sem hefur sést á íslandi.

Þar af leiðandi eru kröfur ESB fyrir samvinnu, eins og þú kallar það, mjög óhagstæðar og draga verulega úr lífsgæðum íslendinga ef farið er eftir þeim að fullu.

Pollinn (IP-tala skráð) 18.6.2014 kl. 21:09

2 identicon

Skrif Evrópuvaktanna, Páls Vilhjálmssonar, Heimssýnar, Nei við ESB (Jón gaurinn Bjarnason!) gegn mestu menningar- og lýðræðisríkjum Evrópu eru orðin svo „platitudinous“ að maður skammast sín fyrir Ísland.

Jafnvel „honorable“ fv. ritstjórar og ráðherrar taka þátt í ruglunu. Og LÍÚ borgar hálfvitaganginn!

 

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 18.6.2014 kl. 21:51

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

ekkert að marka heimssýn allavega né þessara svokölluð nei sinna. yfirleitt ekkert nema lygi og bull um esb. allavega man ég ekki eftir neinum rökum frá þeim um hvers vegna við ættum ekki í esb

Rafn Guðmundsson, 18.6.2014 kl. 23:01

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Páll Vilhjálmsson og heimssýn? Hahahahahahaha.

Mesta samansafn af vitleysingum sem um getur á seinni árum.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 18.6.2014 kl. 23:48

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þær eru misvísandi þessar kannanir, þótt ég hafi takmarkaðan áhuga á hvað Tjallinn vill. You Gov gerði könnunina fyrir götublaðið Sun,það eykur líkurnar á þessari niðurstöðu. Það hrukku nú margir við eftir skoðanakannanir í aðdraganda borgarstjórakosnganna.

Helga Kristjánsdóttir, 19.6.2014 kl. 00:57

6 Smámynd:   Heimssýn

Það má líka líta á þessa frétt svona:

http://www.heimssyn.blog.is/blog/heimssyn/entry/1400200/

Heimssýn, 19.6.2014 kl. 07:51

7 identicon

http://avpixlat.info/2014/06/18/sd-i-samma-eu-grupp-som-ukip/

Nigel Farage og hans partí hefur aukið fylgi sitt, því bretar hafa fengið nóg af EU.

Það eru þjóðirnar sjálfar, sem eiga að taka ákvarðanir um mikilvæg mál sem snúa að þeim og þeirra lýðræði, en ekki krata- pappírsróbótarnir í brussel.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 19.6.2014 kl. 08:30

8 identicon

"Auðvitað er löngu tímabært að ræða af fullri alvöru hvernig við komum fram við og búum að fólki af erlendu bergi brotnu sem gerir okkur þann heiður að vilja byggja þetta land með okkur. Það samtal getur hins vegar aldrei orðið um trúarskoðanir fólksins, frekar en litarhátt þeirra eða kynhneigð,“ skrifar Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður og bendir á nokkur atriði varðandi innflytjendamál sem ræða þurfi um, svo sem hvernig hægt er að gera líf innflytjenda sem best og bærilegast og sjá til þess að erlendir verkamenn fái sómasamleg laun.

 

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 19.6.2014 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband