Leita í fréttum mbl.is

Á tímum google borgar sig ekki að ljúga Bjarni Ben

Þegar Bjarni Ben segir að hann hafi talið fulla þörf á að rannsaka erlenda áhrifavalda hrunsins og þessvegna samið við Félagsvísindastofnun um að taka að sér verkið, gleymir hann því að auðvelt er að googla aðdragandan að þessu verki. En hann er svona:

Verkefnið er unnið að frumkvæði Hannesar Hólmsteins,“ segir Guðbjörg. „Hann kemur með tillögu að þessu verkefni og semur um þetta við ráðuneytið, að þeir greiði fyrir vinnuna við það.

http://www.ruv.is/frett/hannes-atti-frumkvaedi-ad-verkefninu

Hannses hafði jú í umræðunni fyrir þessa rannsókn haldið því stíft fram að Seðlabanki Íslands hafi ekki gert neitt rangt og þetta hafi allt verið vondum útlendingum að kenna og Davíð Oddssyni hafi ranglega verið kennt um að eiga þátt í hruninu hér. Þetta væri bara allt útlendingum að kenna og sjálfstæðisflokkurinn væri gjörsamlega sakaus og ranglega sakaður  fyrir að hafa gert mistök og sérstaklega hefði Davíð aldrei gert annað en rétt.


mbl.is „Tek ekki þátt í þeim skrípaleik“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

He he já þarna var hann gómaður vel. En Bjarni er auðvitað siðblindur glæpamaður. Glæpamaður sem var að makka með Wernerkrimmunum og keyrði svo N1 í þrot. Bjarni er eins spiltur og þeir geta orðið, þyggjandi mútur frá Samherja, Granda og Vísi um leið og hann tryggir svo fjölskyldufirmanu styrki frá ríkinu. Líka hægt að gúgla það allt ;o)

ólafur (IP-tala skráð) 27.4.2015 kl. 18:25

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta frábært hjá ykkur, eða þannig.

Með þessu áframhaldi verður stríðsaðgerð Breta gegn fullveldi íslenska ríkisins aldrei rannsökuð opinberlega sem sá stórfelldi glæpur sem hún var.

Vonandi verður engum að þeirri ósk sinni.

Guðmundur Ásgeirsson, 27.4.2015 kl. 18:38

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Einhverjar kræklaðar krumlur grufluðu í veði danska bankans,sem átti að tryggja endurgreiðslu. Það finnum við ekki í Google.

Helga Kristjánsdóttir, 28.4.2015 kl. 01:42

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það er nánast bara kjánalegt eftir að allar upplýsingar liggja fyrir um hvernig þeir framsjallar ,,stjórnuðu" bönkunum sínum hér fyrir sjallahrun, - að fara að kenna útleningum um afglöp og vanhæfi framsjalla.  Nánast kjánalegt.

Að sjallabjálfarnir fari svo með lúkurnar í sameiginlega sjóði landsmanna og láti einhvern vitleysing innan þeirra raða fá milljónir á milljónir ofan segir svo ákveðna sögu.

Þessi Bjarni lítur sífellt verr út sem formaður eða maður sem á að vera í einhverju forsvari fyrir ríki eða almenning.  

Þjóðin treystir ekki þessum manni.  Svo einfalt er það.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 28.4.2015 kl. 09:52

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ps.  Með þennan danska banka, að þá máttinú alveg segja sér sjálfur að hann væri í vandræðum og ástand þar svona og svona.

Áttu ekki framsjallar hann?  Hvernig var ástand banka sem framsjallar þóttust stjórna?  Jú, rétt eins og allt annað sem framsjallar koma nálægt.  Allt í ruglinu.

Merkilegt með framsjalla, að það er eins og þeir þurfi alltaf að vera með allt niðrum sig í fjármálum.  Svo teygja þeir lúkurnar í sjóði almennings.

Mál danska bankans liggur alveg fyrir.  Allt í ruglinu hjá framsjöllum og annaðhvort þurfti að koma með nýtt fé inní bankann til að viðhalda honum eða að honum yrði lokað.

Hlýtur nú að segja fólki eitthvað að ýmsir sjóðir oþh. í Danmörku fengust til að taka við þessu og greiða úr óreiðunni.  

Það er sennilega bara heppni og velvilji dana að þakka að þá fékkst þessi aur uppí afglöp sjalla.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 28.4.2015 kl. 10:08

6 identicon

Ég næ þessum pistli ekki alveg. Fjármálaráðuneytið semur við félagsvísindastofnun um þetta verkefni, og Hannes vinnur verkefnið.

Hverju er Bjarni að ljúga ? gott væri að fá svona pinnpoint setningu sem sýnir fram á það.

Stebbi (IP-tala skráð) 28.4.2015 kl. 13:24

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Magnús Helgi. Hannes Hólmsteinn hefur skrifað margt umhugsunar og eftirtektarvert eftir banka/lífeyrissjóðs-spilavítisránið 2008, sem ég hef fylgst með.

Öllum er frjálst að viðurkenna eigin mistök, og rannsaka hvers vegna mistökin áttu sér stað, með nýjum upplýsingum.

Það er okkur öllum hollt að nota rökrétt, samviskusamt brjóstvitið og sanngirnina, til að finna út úr okkar eigin takmörkuðu, Háskólablekktu og/eða heims-"fjölmiðla"-upplýstu skoðunum.

Við erum líklega fyrst og síðast sjálf ábyrg fyrir okkar rétt/órétt "fjölmiðlaupplýstu" skoðunum, ásamt eigin kerfisblekkingarstýrðum verkum og gjörðum.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.4.2015 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband