Leita í fréttum mbl.is

Það er ýmislegt óunnið varðandi jafnrétti!

Svona í ljósi þess að nú er haldið upp á að hundrað ár eru síðan konur fengu kosningarétt var mér hugsað til annars sem tengist baráttu kvenna fyrir jafnrétti. Og sú umræða hefur ekki farið nógu hátt.


Fyrir nokkrum mánuðum heyrði ég viðtal við Helga Pétursson úr RÍÓ TRÍÓ. Hann var að tala um að hann hefði ungur starfað sem kennari. Þá hafi laun hans verið næstum jöfn og laun Alþingismanna. Finnst það athyglisvert að í jöfnu hlutfalli og konur bættust í kennarastétt þá lækkuðu launin miðað við önnur laun í þjóðfélaginu! Þetta er bara ekki ásættanlegt.

Þetta kom upp í huga mér þegar ég nú er að auglýsa eftir deildarstjóra á vinnustað minn þá eru meirihluti umsókna um starfið sem komnar eru frá fólki sem er menntað sem kennarar. Og 2 starfsmenn hjá mér eru menntaðir grunnskólakennarar. Þetta er náttúrulega ekki í lagi. Að ríkið sé að mennta í röðum fólk sem treystir sér ekki til að sinna kennslu barna okkar vegna álags og lélegra launa. Svona til skýringar þá vinn ég við að veita þroskahömluðu fólki aðstoð við að halda heimili.


Eins held ég að sé margar stéttir sérstaklega opinberra starfsmanna að eftir því sem konum fjölgar þar þá síga launin niður launapíramitan ! Og samt eru þessi störf sennilega þau nauðsynlegustu sem fyrir finnast.
Og nú tala ég af reynslu, hafa menntað mig og starað í kvennastétt sem hefur þurft síðustu áratugi að berjast fyrir leiðréttingum á launum sínum í hverjum samningum. Vissulega náð einhverjum árangri en því miður enn mun lægri en sambærileg störf bæði hér innanlands og langtum lægri en bjóðast annarstaðar.


mbl.is Ein gegn Jafnréttissjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það gleymist að það var ekki bara kvenfólk sem fékk kosningarétt þennan dag, af hverju er ekki minst á það? Á ekki að vera jafnrétti?

Ættu karlkyns hjúkrunarfræðinga umsækjendur ekki að ganga fyrir um störf sem hjúkrunarfræðingar? 

Hvar er Jafnréttið, eða er í lagi að ef að það er meirihluti í starfi sem er kvenkyns, þá þarf ekkert jafnrétti?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 19.6.2015 kl. 17:22

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Kvenréttindi eru ekki það sama og jafnrétti.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.6.2015 kl. 18:12

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Er það ekki merki um jafnrétti og réttindi kvenna þega að fjölgun þeirra í ákveðnum stéttum gjaldfellir stéttirnar? Er það ekki vanmat á vinnuframlagi þeirra?

Magnús Helgi Björgvinsson, 19.6.2015 kl. 18:25

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta tal um "vanmat á vinnuframlagi kvenna" er einmitt birtingarmynd þess hvernig einn tiltekinn þjóðfélagshópur hefur eignað sér alla umræðu um jafnrétti og um leið stolið þeim kyndli frá öðrum hópum í þjóðfélaginu.

Jafnrétti getur ekki, samkvæmt skilgreiningu, snúist um réttindi sumra á kostnað annarra, því það er andstæðan við jafnrétti. Ef gætt væri jafnréttis værum við ekki að ræða hér um meint "vanmat á vinnuframlagi" kvenna heldur fólks. Svo eru ekki allir heldur svo heppnir að eiga þess kost að vinna, þannig að ef jafnréttis væri gætt þá værum við ekki heldur að tala um vinnuframlag, heldur réttinn til mannsæmandi lífs, óháð því hvort að um vinnuframlag sé að ræða eða ekki.

Allir ættu að njóta réttar til mannsæmandi lífs, alveg óháð stöðu á vinnumarkaði eða hvað sé ofan í nærbuxunum. Þegar því markmiði verður náð er fyrst hægt að tala um jafnrétti.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.6.2015 kl. 19:26

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sammála því að jafnrétti allra er málið, sem hefur of oft fallið niður um spillingarkerfis-svartholið, í samfélaginu sem býr á Íslandi og víðar í veröldinni.

Með alls kyns ófriðaröfgum tapast alltaf réttindi og/eða virðing þeirra, sem berjast með slíkum vopnum, fyrir jöfnum og sanngjörnum réttundum.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.6.2015 kl. 19:52

6 identicon

Kennarar og hjúkrunarfæðingar eru ekki með verri laun en flestir aðrir háskólamenn innan BHM, það staðfesta allar launakannanir sem hafa verið gerðar.

Umræðan um þessi mál virðist ekki þrífast nema hún styðjist við lygar og afbakanir.  Þannig er það með hina meintu baráttu íslenskra kvenna fyrir kosningarétti.  Staðreyndin er sú að íslenskar konur börðust aldrei fyrir kosningarétti, heldur kom hann án baráttu og það frá yfirvaldinu í köben, enda ekki nema tíu dagar síðan danskar konur fögnuðu sínum 100 ára kosningarétti, sem þær einnig fengu án nokkurrar baráttu.  Merkilegt að ekki nokkur einasti fjölmiðill hafði fyrir því að minnast þess að fyrir 100 árum fengu karlar líka almennan kosningarétt, kannski ekki þjónað feminískum áherslum fjölmiðlaelítunnar.

Svo mættu konur almennt hætta að einbeita sér að því hvað öðrum beri skylda til að gera fyrir þær, og drullast til að gera það sjálfar.  Lítið útum gluggan og teljið upp það sem þið sjáið sem konur hafa gert, fundið upp, byggt, skapað, þróað.  Nánast allt sem þið sjáið hafa karlar gert, fundið upp, byggt, skapað og þróað.

Bjarni (IP-tala skráð) 20.6.2015 kl. 01:05

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Bjarni. Já satt er það. Við konur í öllum veraldarinnar hlutum jarðlífsins, mættum almennt hætta að einbeita okkur að því hvað öðrum beri skylda til að gera fyrir okkur.

Og drullast til að gera allt sjálfar fyrir okkur. Það er bara sanngjörn krafa?

Ef konur eru vanfærar, víða um Móður Jörðina?

Hvað eru þær þá, annað en valdalaus, varnarlaus og auðkúganleg eign valdhafa?

Annarra valdhafa, sem eru einhverra hluta vegna taldir kerfisstjórnunar-hæfastir? Og taldir einfærir og "réttkjörnir", til að stýra fjármálastofnunum, fjölmiðlaumræðum, ritjórnarstýrðum fréttablöðum, ritssjórnarstýrðum netfjölmiðlum, og öllu stýrikerfinu í falspeninga-kerfi heimsins?

Ég er eiginlega komin í hring?

Og sé ekki nein merki þess, að jarðveraldlega valdamestu ritstjórastýrimönnunum finnist siðferðisstýringunni vera neitt ábótavant í fjármálastýringu jarðarinnar?

"Stýrimannaréttkjörnu" ritstjórnarformennirnir?

Jésús Kristur var sagður eingetinn sonur Guðs, sem auðvitað stenst engar jarðneskar staðreyndir.

María "mey" var jafn jarðnesk og mæður allra þeirra karlmanna, sem hafa hertekið ritstjórnun valdafjölmiðlaða og blekkingarsannleikans, hér á Jörðinni.

Án kærleikstakmarks?

Öllu fórnar fyrir kjarnorkutortímingar-þróunina, sem blómstrar sem sem aldrei fyrr, eins og tifandi og djöflastýrð tortímingarsprengja fyrir bæði jarðlífið og annað líf.

Er allt falt fyrir siðleysisvald Mammons hér á Móður Jörð? Líklega.

Lík-lega, en ekki lífbjörgunar læst hliðarlega?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.6.2015 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband