Leita í fréttum mbl.is

Þetta gengur náttúrulega ekki lengur!

Heyrði þessa sögu um daginn frá manni sem heimsótti vinsælan ferðamannastað fyrir Norðan.

 

Gestur: Rosalega er mikið af ferðamönnum hér. Þið hljótið að vera mjög ánægð!

Heimamaður: Uss nei við vildum helst ekki sjá þetta. Það er vissulega fullt af ferðamönnum en við höfum nær ekkert nema ama af þeim. Að minnstakosti erum við fæst að fá nokkara tekjur og sveitarfélagið hefur nær bara útgjödl af þessari fjölgun.

Gestur: Nú en hér eru fullt hótelum og gistingu og það þarf jú að þjónusta fólkið þannig að hér hljóta að verða til miklir peningar.

Heimamaður: Vissulega verða hér til peningar en við sjáum bara minnst af þeim.

  • Hingað koma fullt af rútum með ferðamenn vissulega, en það eru fyrirtæki að sunnan sem eiga þær og þangað fer hagnaðurinn af þeim.
  • Það eru vissulega bílstjórar og leiðsögumenn en þeir eru jú flestir eða nær allir að sunnan og því eru heimamenn ekkki að fá neinar tekjur af þessu.
  • Þá er það gistingin. Vissulega eru hér nokkur hótel og gististaðir. En þeir eru í eigu félaga sem eru staðsett fyrir sunnan og því skaffa þau minnst af tekjum fyrir sveitarfélagið. Þá eru starfsmenn felstir tímbundið ráðnir útlendingar og fæstir Íslendidngar. Enda flest störfin láglaunastörf.
  • Hér eru allir vegir að hrynja undan rútunum og ríkið hefur ekki sýnt minnsta lit að bæta vegakefið.
  • Þú ættir að upplifa það að hafa þúsndir manna daglega í þínu bæjar eða sveitarfélagai sem stæði við garðinn þinn og starði á þig. Jafnvel gerði þarfir sínar í garðinn þinn.

Heimamaður: Ef að þetta væri að skapa okkur tækifæri og tekjur fyrir sveitarfélagið sem og að að fyrirtækjunum gert að skila hér einhverju í líkingu við útsvar til okkar þá væri þetta allt annað mál. Ef að ríkið kæmi verulega inn með uppbyggingu ferðamannastaða og tryggði að heimamenn fengju tekjur af ferðamönnum þá væri fólk jákvæðara. En þangað til fari þessir túristar til andskotans.

Gestur: Það er bara svona. Ekki hafði ég hugsað út í þetta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Svona er þetta bara alls ekki, samkvæmt minni vitneskju. Það má alltaf finna fólk sem málar skrattann á vegginn. Ég þekki vel til þessa úti á landi þótt ég geti ekki fullyrt um alla staði, en þar sem ég þekki til eru miklar tekjur til bæjarfélaganna með fjölgun atvinnutækifæra og útsvarstekjum þeirra sem við þetta vinna. Hótel og veitingastaðir eru undantekningalaust eða lítið skráð í byggðinni og borga sínar skildur til bæjarfélagsins. Það er ansi langsótt að ætlast til að allt sé í byggðinni, eins og fólksflutningar og ferðaskrifstofur.

En eins og ég segi þá má örugglega finna fólk eins og þennan einstakling, sem ekki vill neinar breytingar og framför og fjölbreytni og eru sáttastir með að allt sé með sömu ömurð og áður. Allavega tel ég ljóst að þessi einstaklingur viti ekkert hvað hann er að segja þegar hann fullyrðir um þessa hluti.

Jón Steinar Ragnarsson, 20.4.2016 kl. 11:32

2 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

Sæll Maggi, þetta er óneitanlega rödd sem bæði á rétt á sér og heyrist býsna víða. Einmitt þessi tengsl rútufyrirtækjanna og hótela/mynjagripaverslana/attraksjóna á landsbyggðinni er þannig að rúturnar keyra bara eftir fyrirfram gerðum samningum og því er það nánast ógerningur fyrir minni fyrirtæki að komast að kjötkötlunum.  Þetta hef ég víða heyrt.  Allir eiga að sinna þessari túrhestarækt eins og enginn væri morgundagurinn.  Og alltaf er byggt af stórfyrirækjunum fleiri hótel sem líklega fara í gjaldþrot þegar bólan springur.  Ojæja.

Ragnar Kristján Gestsson, 20.4.2016 kl. 11:58

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

þetta minnir mig á svipað atvik á Hawaii en við stoppuðum á skemmtiferða skipi á stóru eyjunni og við leigðum okkur bíl. Hann var frá Heartz og afgreiðslumaðurinn óskaði þess að eyjan yrði lokuð einn dag í viku en það voru tugir skipa daglega allt árið um kring. Horfið á Geysir og Gullfoss og alla þessa staði og fólk er farið að ryðjast inn á prívat staði fólks og þetta á eftir að versna. Landbúnaður og útgerðin fær ekki hefðbundið vinnuafl og höfum við dæmi út í Vestmanna eyjum.

Valdimar Samúelsson, 20.4.2016 kl. 21:49

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Magnús Helgi. Vissulega verða til peningar vítt og breitt um landið, en við og þið sjá þá peninga ekki.

Húsnæðislausir og ríkisfangslausir þrælar skapa peningana, og peningarnir eru mjög langt fyrir sunnan (suður í Panama og álíka co).

Sannleikurinn á Íslandi er svo ljótur, að margir þola tæplega að horfast í augu við þann sannleika. Horfa bara í hina áttina, og bíða eftir að vandinn hverfi?

Vandinn hverfur ekki, nema vandinn sé leystur.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.4.2016 kl. 02:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband