Leita í fréttum mbl.is

Sýnist að Guðni Th. Davíð, Andri og allir hinir geti hætt við.

Sá könnun sem er í gangi nú á utvarpsaga.is sem sumir bloggarar /t.d. Jón Valur) vitna óspart í segja örugga mælingu, að allir nema Sturla Jónsson geta nú bara hætt við framboð sitt og tekið þessu rólega því Sturla er búinn að busta þetta.

konnunutvarpsaga_1281880.jpg


mbl.is Framboð Davíðs kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, Maggi, ég hef aldrei sagt, að ég telji Sturlu Jónsson eiga neinn minnsta löguleika á því að verða forseti Íslands -- og hann þekkir ekki einu sinni stjórnarskrána nógu vel, þótt hann tali oft um hana.

Jón Valur Jensson, 14.5.2016 kl. 14:25

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þú hefur fyllilega vitnað í ýmsar "skoðanakannanir" útvarps Sögu og gefið í skin að þær séu marktækar!

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.5.2016 kl. 14:38

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég veit, að Sturla er vinsæll meðal margra hlustenda ÚS vegna langtíma-innleggja hans þar, en það fær mig ekki til að ímynda mér, að hann hafi sama fylgi almennt meðal þjóðarinnar.

Jón Valur Jensson, 14.5.2016 kl. 15:31

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sem sýnir, að aðferð útvarpsstöðvanna er víðsfjarri viðurkenndum aðferðum í skoðanakönnunum, og í besta falli nokkurs konar samkvæmisleikur.

Ómar Ragnarsson, 14.5.2016 kl. 15:40

5 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

He,he,he,he,he,cool saga, hótel saga.

Jósef Smári Ásmundsson, 14.5.2016 kl. 15:53

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hver á Gallup?

Eru niðurstöður Gallup fyrirfram ákveðnar af þeim sem fjármagna skoðanakannanir Gallup?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 14.5.2016 kl. 16:36

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Punkturinn er að þessar kannanir á ÚS eru ekki marktækar.

Frekar en nokkur sá ósómi sem fer þar fram.

Ósómastöð.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 14.5.2016 kl. 18:04

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Maggi minn. Skoðanakannanir eru ómarktækar og pólitískar hönnunaraðgerðir.

En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Það má finna út úr öllu ánægjuvott :).

Heiðrum nú það viskunnar skáld sem orti þessi viskumiklu og eilífu sannindi. Ég þekki ekki einu sinni nafnið á þessu viskumælandi skáldi, sem er skammarlegt fyrir mig :(

Við gætum kannski vitkast og fetað í þessi viskunnar skáldsins fótspor, með farsælum árangri?

Eða hvað?

Ég er sem betur fer enginn alvitringur. En ég er alvarlega hættulegur og samfélags-ósamþykktur sérvitringur.

Ég er ósamþykktur sérvitringur í fyrirskipuðu kerfis-rétt-trúarsamfélaginu kúgandi?

Það er flókið að vera ég sjálf. Og það er líka flókið fyrir alla aðra að vera þeir sjálfir, í blekkingar-fjölmiðlanna-kúgandi heimi.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.5.2016 kl. 19:35

9 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sturla Jónsson er heiðarlegur baráttumaður alþýðunnar á Íslandi.

Nú vantar bara Herdísi Þorgeirsdóttur (fyrrverandi forsetaframbjóðanda), sem frambjóðanda heiðarleika-kvennastuðningsins. Þar sem hún berst fyrir heiðarlegri baráttu kvenna á jafnréttisgrundvelli. Hún er nefnilega svo stálheiðarleg, skynsöm, réttsýn, vel menntuð, og góð manneskja.

Sturla Jónsson berst svo fyrir heiðarlegri baráttu jafnréttis og þjóðarinnar velferðar, með sínum stálheiðarleika. Og gegn bankamafíunnar lögfræðistjórnsýslunnar-klikkunar-tortímingu.

Sturla Jónsson og Herdís Þorgeirsdóttir í forsetaframboð fyrir réttlátt jafnréttið :)

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.5.2016 kl. 20:09

10 identicon

Undarlegur miðill þess Útvarp Saga. Stundum er málið kært til lögreglu þegar forsvarsmönnum stöðvarinnar finnst könnunin ekki vera í samræmi við þeirra skoðanir. Og síðan að einhver gamall álfur skuli lepja upp þessa vitleysu og gera sér mat úr henni er nátturlega óskiljanlegt, og þó.

thin (IP-tala skráð) 14.5.2016 kl. 22:14

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þessar kannanir á ÚS eru marktækar um þá, sem hlusta á stöðina og hafa aðgang að tölvu. Flestir hafa það nema einna helzt aldraðir.

Spurningar Jóhanns eiga alveg rétt á sér. Kostnaðaraðilar Gallup-kannana geta haft áhrif á, hvernig spurt er, og mismunandi orðalag spurninga getur vel haft marktæk áhrif á hvernig svörin verða tekin eða túlkuð.

Jón Valur Jensson, 15.5.2016 kl. 02:41

12 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón Valur. Skoðanakannanir á öllum fjölmiðlum eru einfaldlega afskekkt, marklaust, og pólitískt áróðursblekkingarkefli.

Skekkjunnar planaða tapvisku-blekkingarverkefni.

Fólk verður að finna sinn eigin sannleika í sínu eigin hjarta.

Ekki láta blekkjast af marklausum skoðankönnunum klíkufjölmiðla.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.5.2016 kl. 03:22

13 identicon

 Elskendur ÚS reyna að benda almenningi á að skoðanakönnun sem þeir gera sé marktæk. Ef hún er stjórnendum ekki hliðholl fáum við að heyra: " Óprúttnir aðilar stóðu að því að könnun sem fram fór hér á vefsíðunni í dag og átti að standa til morguns var eyðilögð með fjöldaatkvæðagreiðslu af þremur mismunandi ip-tölum" . Hægt er að fara inn á könnunina og breyta henni skv. forráðarmönnum stöðvarinnar. Þannig að ALLAR kannaniir frá henni eru semsagt ómarktækar.

thin (IP-tala skráð) 15.5.2016 kl. 08:25

14 identicon

Magnús Helgi, gætirðu leiðrétt það sem stendur efst á síðunni þinni? Þ.e.a.s. breytt "Evrópusinni" í "ESB-sinni". ESB er ekki öll Evrópa, aðeins hluti af álfunni (28 ríki af u.þ.b. 50).

Til samanburðar er ÉG Evrópusinni, en ESB-andstæðingur.

Pétur D. (IP-tala skráð) 15.5.2016 kl. 11:41

15 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona í ljósi þess að öll stærstu ríki Evrópu eru í ESB og megnið af Evrópubúum eru í ESB þá breyti ég því ekki. Enda er ESB samstarf Evrópuþjóða til að koma í veg fyrir stríð innan Evrópu sem og að margar af þeim þjóðum sem ekki eru í ESB eru að vinna að því í framtíðinni að komaast þangað inn eða eru í EES sem eru jú svoan auka aðild.

esb_1281893.jpg

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.5.2016 kl. 12:26

16 identicon

"Svona í ljósi þess að öll stærstu ríki Evrópu eru í ESB"

Þetta er ekki rétt hjá þér, Magnús. Rússland er stærsta ríki Evrópu og er ekki með í ESB. Flatarmál evrópska hluta Rússlands er stærra en samanlagt flatarmál tíu stærstu ríkja ESB og íbúar í evrópska hluta Rússlands eru næstum 30 milljónum fleiri en í fjölmennasta ríki ESB, Þýzkalandi (heimild: Wikipedia).

Það sem þú skrifar breytir því ekki, að aðeins rúmlega helmingur evrópskra ríkja eiga aðild að ESB og þar af leiðandi er ESB ekki Evrópa, langtífrá. Það er jafnrangt að halda því fram að ESB sé Evrópa og að fullyrða að ASEAN-ríkin séu öll Asía eða Bandaríkin séu öll Ameríka. 

Pétur D. (IP-tala skráð) 15.5.2016 kl. 13:44

17 identicon

Öll velferðarríki Evrópu eru í ESB eða með náin tengsl við það.

Ástandið í hinum löndunum er vægast sagt bágborið. Öll vilja þau komast í ESB eða hafa enga möguleika á að uppfylla skilyrðin fyrir inngöngu. Íbúar í ESB-löndunum eru tæp 70% af íbúum Evrópu.

Þannig halda ESB-löndin góðum orðstír Evrópu á lofti meðan önnur ríki að undanskildum þeim, sem eru með náin tengsl við ESB, eru illa séð. Þangað vill enginn flytja og þaðan vilja margir komast.

Hvergi í heiminum eru mannréttindi og lýðræði meira í hávegum höfð en einmitt í ESB-löndunum.

Ásmundur (IP-tala skráð) 15.5.2016 kl. 18:00

18 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvort sem okkur líkar það betur eða verr, þá er Ísland í Evrópu.

Ég skil hins vegar ekki þetta svokallaða ESB-regluverk, sem virkar ekki nema þegar svikulu bankaveldinu hentar?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.5.2016 kl. 00:36

19 identicon

Anna, það er rétt. Ísland er í Evrópu, en ekki ESB, því að ESB er ekki Evrópa. Ég er Evrópusinni, mér þykir vænt um álfuna og þjóðríkin (nema Þýzkaland), þótt 27 af þessum ríkjum eru ekki lengur sjálfstæð. En ég hef megnustu andúð á ESB.

Ásmundur, það var velferð í Vestur-Evrópu fyrir daga ESB. Eftir að ESB var sett á laggirnar ofan á EBE, þá hefur velferðin í norðanverðum aðildarlöndum hríðfallið (nema Þýzkalandi, sem í raun stjórnar ESB). Það sem ég vildi óska er að ESB yrði lagt af og horfið aftur til viðskiptabandalags sjálfstæðra ríkja, eins og það var áður, en að það verði hreinsað til í spillingu og bruðli embættismannaklíkunnar sem herjaði á EBE í sína tíð og herjar áfram á aðildarríkin í ESB.

En það mun auðvitað ekki gerast, því að það væri spor í rétta átt, heldur mun ástandið fara versnandi ár eftir ár, þangað til ESB hrynur að lokum eins og Sovétríkin forðum. Hvort það verður eftir 20 eða 50 ár veit ég ekki, en það mun gerast. Úr ösku ESB munu þjóðríkin rísa og prísa sig sæl að vera komin undan klafa ESB/Þýzkalands, rétt eins og þau gerðu eftir fall Þriðja ríkisins.

Pétur D. (IP-tala skráð) 16.5.2016 kl. 13:09

20 identicon

Pétur D., það eru hrein öfugmæli að velferð í norðanverðri Evrópu hafi hríðfallið. Þvert á móti varð ESB þeim mikil lyftistöng.

Öll hin norðurlöndin og fleiri lönd standa td Íslandi langtum framar á flestum ef ekki öllum sviðum velferðar. Auk þess er spilling langmest hér á norðurlöndunum skv Transparency international.

Margar þjóðir þar sem velferð er minni en hér hafa tekið stór stökk fram á við eftir inngöngu í ESB og enn frekar eftir upptöku evru þar sem það á við.

    • Menn ættu að fara varlega í að hlusta á áróður andstæðinga ESB sem láta eins og ástandið í Grikklandi sé dæmigert fyrir ESB.

    Ásmundur (IP-tala skráð) 16.5.2016 kl. 14:57

    21 Smámynd: Jóhann Kristinsson

    Dream on Ásmundur, velferðarkerfið er að hrynja undan óstjórn jafnaðarmanna og ESB.

    Kveðja frá Houston

    Jóhann Kristinsson, 16.5.2016 kl. 18:35

    22 identicon

    Þetta er ekki rétt hjá þér, Ásmundur. Velferðarkerfin í Danmörku, þar sem ég þekki til, stóðu mjög framarlega, með þeim beztu í heiminum fyrir aðildina að ESB. Frá því að ESB var sett á laggirnar, hafa lífskjörin snarversnað og fjöldinn allur af fyrirtækjum og bóndabýlum hafa farið á hausinn. Ég veit þetta, því að ég bjó tvo áratugi í Danmörku. 

    Pétur D. (IP-tala skráð) 16.5.2016 kl. 20:39

    23 identicon

    Lífskjör í Danmörku eru best í heimi skv mörgum mælingum og svo miklu betri en fyrir ESB-aðildina enda hafa lífskjör almennt batnað mikið síðan þá.

    Ég var í Danmörku bæði í fyrra og hittiðfyrra. Það vakti athygli mína hvað allt leit þar vel út og fólkið virtist sællegt og vel haldið.

    Þegar ég var þar á fyrir nokkrum áratugum fannst mér allt annar bragur á, mannvirki í talsverðri niðurníðslu og lítið um að vera.

    Hér er listi yfir þau lönd þar sem best er að búa i heiminum. Danmörk er talin best, síðan Svíþjóð og Noregur er í þriðja sæti. Mörg ESB-lönd eru framarlega á listanum.

    https://lifestyle9.org/worlds-best-country-to-live-in-2013/4/ 

    Ásmundur (IP-tala skráð) 16.5.2016 kl. 22:39

    24 identicon

    Ásmundur, þú varst í Danmörku í tveimur heimsóknum á löngu tímabili, svo að þú veizt ekkert um hvað þú ert að tala. Ég bjó þar í tvo áratugi frá lokum áttunda áratugarins fyrir daga ESB meðan landið var í EBE og allt fram á tuttugustu öldina. Á þessu tímabili varð ég vitni að hvernig velferðarkerfið danska byrjaði að grotna niður bæði vegna þess mikla atvinnuleysis sem fylgdi því að EBE breyttist í ESB og ágang nágrannaríkjanna Svíðjóðar, Finnlands og Þýzkalands gegn dönskum fyrirtækjum sem voru keypt upp og síðan lokað af fjársterkum alþjóðlegum fyrirtækjum, uppkaup og yfirtökur sem varð mikð auðveldara að fremja mögulegt eftir að ESB var komið á fót, svo og hvernig smærri bændbýli fóru á hausinn hvert af öðru vegna styrkjakerfis EBE og síðar ESB.

    Á sömu tveimur áratugum varð ég vitni að hvrnig óheftur innflutningur af ómenntuðum múslímum eyðilögðu danska þjóðfélagið með tilstilli landráðaflokkanna dönsku (Socialdemokraterne og Radikale venstre) sem stóðu að því að opna landamærin fyrir hentugleikaflóttamönnum og gefa þeim forgang fram yfir Dani. Greiði sem var svarað með frekju og yfirgangi af hæálfu múslíma. Eða eins og sagt er á spænsku: Cría cuervos y te sacarán los ojos. (Ef þú elur upp krákur þá munu þær kroppa úr þér augun).

    Ég hef líka lesið mér til um það hvernig danska þjóðfélagið var áður en Danmörk gekk í EBE og ég sakna þess virkilega að hafa ekki búið í Danmörku á þeim árum, því að það var skemmtilegt og ríkt þjóðfélag þar sem ennþá var gaumur gefinn að norrænum gildum.

    Þegar ég ferðast til Danmerkur um þessar mundir get ég þekkt þjóðfélagið aftur sem ég unni. Danskt menningarlíf hefur vikið fyrir islamskri ómenningu, mikið atvinnuleysi og niðurníðsla í hvívetna.

    Danmörk varð mikið fátækara eftir aðildina að ESB, þar sem Danir misstu að fullu sjálfstæði sitt. Ef þér hefur fundizt það vera fínt þannig, þá ertu ekta Samfylkingarmaður, sem hatar sjálfstæð þjóðríki.

    Pétur D. (IP-tala skráð) 21.5.2016 kl. 09:48

    25 identicon

    Það átti að standa: "Þegar ég ferðast til Danmerkur um þessar mundir get ég ekki þekkt þjóðfélagið aftur sem ég unni."

    Pétur D. (IP-tala skráð) 21.5.2016 kl. 09:49

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Höfundur

    Magnús Helgi Björgvinsson
    Magnús Helgi Björgvinsson

    Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

    Eldri færslur

    Apríl 2024
    S M Þ M F F L
      1 2 3 4 5 6
    7 8 9 10 11 12 13
    14 15 16 17 18 19 20
    21 22 23 24 25 26 27
    28 29 30        

    Twitter

    Teljari

    joomla visitor

    Twitter

    Tenging við twitter

    Um bloggið

    Vettvangur Magga

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband