Leita í fréttum mbl.is

En hvað með kristna Filippseyinga? Ætla menn að beita sér gegn þeim.

Nú eru frægar krossfestingar fólks í Fillipseyjum. Þar sem fólk lætur krossfesta sig til að sanna trú sína. Nú haf verið síðustu ár að berast fréttir þar af hriðjuverkamönnum eins af gríðarlegum manndrápum stjórnvala. Alveg spurning hvort að Íslenska þjóðfylingin ætli að fara að banna þeim að flyjta hingað  Og hverjir eiga þá að vinna störfin sem þeir vinna hér.

Rodrigo Duterte, nýkjörinn forseti Filippseyja, hótar því að ríkið yfirgefi Sameinuðu þjóðirnar hætti þær ekki að skipta sér af málefnum Filippseyja. Duterte segir að ef SÞ haldi gagnrýni sinni áfram muni Filippseyjar ræða við Kína og fleiri ríki um stofnun nýrra alþjóðlegra samtaka í stað SÞ. 

Samtökin hafa gagnrýnt aðferðir Dutertes í stríði hans gegn fíkniefnum harðlega. Forsetinn hefur veitt lögreglu og öryggissveitum að drepa fíkniefnasala án þess að leiða þá fyrir dómstóla fyrst. Um 900 grunaðir fíkniefnasalar hafa verið drepnir eftir að hann tók við völdum 9. maí. Duterte þvertók fyrir það á blaðamannafundi í nótt að dauði fíkniefnasalanna væri lögreglunni að kenna og bauð sérfræðingum SÞ að rannsaka það. Hann sagðist geta sannað að þeir væru verulega vitlausir sérfræðingar. Þá gagnrýndi hann SÞ fyrir að vera að hafa áhyggjur af því að lík glæpamanna hrönnuðust upp í stað þess að fylgja eigin tilskipunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Magnús Íslenska þjóðfylkingin, er ekkert á móti útlendingum, en þjóðfylkingin vill banna Moskur á Íslandi. Og afhverju skyldi það nú vera Magnús. Vegna þess meðal annars Magnús var Stjórnlagadómstóll Tyrklands að lögleiða barnaníð, Múslimskur viðbjóður, 12 ára stúlkubörn í Tyrklandi gefnar eldri karlmönnum sem kynlífsleikfang, þetta er þvílíkur viðbjóður, að mann setur hljóðan. Í öðru lagi að flytja inn flóttafólk af trúarbrögðum, sem viðurkennir ekki jafnrétti kynjanna, eins og 65.gr Stjórnarskrárinnar kveður á um, er augljóst brot á Stjórnarskránni,þannig að réttast væri að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort leifa á þessi trúarbrögð á Íslandi, og það sem fyrst. Þetta eru tveir gjörólíkir menningarheimar, sem eiga enga samleið, hafa aldrei gert, og munu aldrei gera, og margir eru þeirrar skoðunar, að alstaðar þar sem Múslimar hafa sest að á vesturlöndum, hafa þeir alstaðar verið til vandræða. Og ef Múslimum tekst ekki að byggja upp samfélag þar sem þeira geta búið, geta kristnir lítið að því gert. Og lang best fyrir alla að Múslimar haldi sig sem mest heima hjá sér.

Halldór Björn (IP-tala skráð) 21.8.2016 kl. 15:48

2 identicon

Vá, ekki bara illa gefinn, heldur getur hvorki lesið né skrifað sjálfum sèr nè öðrum til gagns.

Bjarni (IP-tala skráð) 21.8.2016 kl. 19:16

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ertu nokkuð með Íslensku þjóðfylkinguna á heilanum, Maggi minn?

Jón Valur Jensson, 22.8.2016 kl. 04:02

4 identicon

Margir kristnir söfnuðir sem og biblían segja konur annars flokks, boðorðin 10 telja konur með búpening og eign karla.
Biblían styður líka við þrælahald, er með verðlista þar sem konur eru mun ódýrari en karlar.

Ef einhver trúarhópur fer gegn landslögum þá er náttlega ekkert í stöðunni annað en að fangelsa slíka vitleysinga, hugsanlega setja þá á geðveikrahæli.

DoctorE (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 10:14

5 identicon

DoctorE  10:14

Eigum við ekki að byrja á því, að færa okkur nær í tíma, en Gamlatextamentið og Mosesbókar, í dag er árið 2016.

Og Stjórnlagadómstóll Tyrklands var að lögleiða þennan viðbjóð í júlí mánuði árið 2016.

Halldór Björn (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 10:33

6 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Halldór Björn. Það er þvæla sem þú heldur hér fram að tyrkneskur stjórnlagadómstóll hafi heimilað að stúlkur væru gefnar eldri mönnum. Hér kemur lýsing Hjörleifs Sveinbjörnssonar eiginmanns Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á því sem þar er að gerast. En hann og Ingibjörg búa í Tyrklandi og  hafa gert í nokkur ár og þekkja því vel til.

"TYRKNESKI STJÓRNLAGADÓMSTÓLLINN LEYFIR BARNANÍÐ. NOT.

Heimsfrétt í gær að tyrkneski stjórnlagadómstóllinn hafi fellt úr gildi lagagrein sem geri það af verkum að börn í landinu séu nú óvarin fyrir kynferðislegri ásælni. Þetta er sem betur fer ekki rétt.

Málið mun vera það að dómstóllinn fékk kærumál til umfjöllunar um kynlíf unglinga. Samkvæmt refsilöggjöfinni mun ekki gerður greinarmunur á brotum í þessu efni eftir aldri þess sem brotið er á. Þannig er lagt að jöfnu kynferðisleg misbeiting gegn fjögurra ára barni, svo maður taki dæmi, og kynferðisathafnir þar sem unglingar eiga í hlut og að beggja samþykki.

Stjórnlagadómstóllinn kvað uppúr um það að ekki væri gætt meðalhófs í lagagreininni, fellldi hana úr gildi og kemur sú niðurfelling til framkvæmda eftir sex mánuði. Stjórnvöld, fyrst og fremst þingið vænti ég, hafa því hálft ár til að betrumbæta þessa löggjöf. Aðhafist þingið ekki eru börn varnarlaus gagnvart kynferðislegri misnotkun.

Fréttir af þessu máli voru ansi hreint þvælulegar og sköpuðu mikinn shitstorm. Góðu fréttirnar eru þær að eftir öll lætin munu stjórnvöld eflaust vanda sig við að tryggja rétt barna hvað þetta varðar í lögum."

 

Hafa skal það sem sannara reynist en það hefur ekki verið sterk hlið hjá ÍÞ hvorki þegar fjallað er um ástandið í ríkjum múslima, nágrannaríkjum okkar svo ekki sé talað um nýju útlendingalögin hér á landi þar sem þeir fara með svo mikið bull um það sem þar er gert að það hálfa væri nóg.

Sigurður M Grétarsson, 22.8.2016 kl. 13:22

7 identicon

Sigurður M  13:22

TV2 segir að lagabreytinguna skelfilega, og stríði gegn réttindum barna.Ekki sé hægt að tala um samþykki ef sextugur einstaklingur og 15 ára barn stundi kynlíf. Samkvæmt alþjóðlegum sáttmálum þá teljast allir undir 18 ára aldri börn. Enn þá, árið 2016, er verið að gifta 6 ára stúlkubörn fullornum körlum í þessum múslimalöndum, þennan múlslimska viðbjóð viljum við ekki til Íslands. og réttast að leggja þetta fyrir þjóðina sem fyrst.

Halldór Björn (IP-tala skráð) 22.8.2016 kl. 22:39

8 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Halldór Björn. Það er ekki búið að gera neina lagabreytingu í Tyrklandi hvað varðar samræði við börn. Það eina sem hefur gerst er að stjórnlagadómstóllinn taldi þessi lög ekki standast meðalhófsreglu stjórnarskrárinnar vegna þess einmitt að þau lög gera ekki greinarmun á kynlífi 60 ára einstaklingur stunar kynlíf með 15 ára stúlklo og því ef jafnaldri hennar gerir það. Stjórnlagadómstóllinn telur það brot á meðalhófsreglu stjórnarskrárinnar að dæmi unling fyrir barnaníð stundi hann kynlíf með öðrum unglingi á svipuðu reki.

Stjólrnlagadómstóllin gaf síðan 6 mánaða frest áður en lögin falla úr gildi sem þingið hefur síðan til að setja lög sem ekki brjóta á þessari meðalhófsreglu og þá væntanlega með ákvæðum sem geir kynlíf tveggja unglinga ekki að glæp.

Það er verið að gifta ung börn bæði í kristnum löndum og löndum hindúa. Reyndar er 40% af öllum barnabrúðkaupum meðal hindúa á Indlandi. Þetta er líka mjög algengt í kristnum löndum Afríku og Suður Ameríku. Þessi siður tengist því ekki Islam á nokkurn hátt heldur er tengist þetta vissum  heimshlutum óháð trúarbrögðum. En ég er alveg samála þér að þennan viðbjóð vil ég ekki til Íslands en við stöðvum það hvorki með því að takmarka rétt múslima til að setjast hér að né með því að banna þeim að reisa hér mosku.

Sigurður M Grétarsson, 23.8.2016 kl. 09:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband