Leita í fréttum mbl.is

Fyrirgefið en ég vildi gjarnan fá óháða rannsókn á þessu!

Þessi rannsókn þeirra er náttúrulega hlutdræg frá upphafi. Ef þetta væri rétt þá væri náttúrulega hægt að tala um landráð. En varðandi þessa skýrslu þá set ég m.a. fyrirvara um heimildarskrá sem þau birta. 6 heimildir. En það væri gaman að minna á að kröfuhafar áttu væntanlega bankana allann tíman í gegnum kröfur í þá. Þá mætti líka minna á að við erum nú þegar búin að eignast 2 af þessum 3 bönkum.

Steingrímur hlýtur að svara fyrir þetta og eins þá hlýtur Alþingi að láta rannsaka þetta og þá sækja annað hvort Steingrím til saka eða þau Guðlaug Þór og Vigdísi fyrir að reyna að koma sögum á hann.

 

heimildir_1292364.jpg

 

 

 

 

 

 


mbl.is Tugmilljarða meðgjöf með bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta fer núna væntanlega til ríkissaksóknara.

Kristján Jón Sveinbjörnsson (IP-tala skráð) 12.9.2016 kl. 17:41

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Þetta er vonandi bara upphafið að uppfjöri fráfarandi ríkisstjórnar. Þessar upplýsingar hafa líka verið að koma fram smátt og smátt. Nú þarf að endurvekja rannsóknarnefndina og fara í saumana á þessu og m.a. grafa upp týndu fundargerðir Steingríms J.

Geir Ágústsson, 12.9.2016 kl. 18:14

3 identicon

Maður sem situr á þingi með 198 atkvæði á bak við sig

vegna mismunar á atkvæðum og úreltra prókjörsreglna,

hlýtur að geta sýnt fram á, að hans verk voru í

framkvæmd meirihlutans.

Ég meina hann var lýðræðislega kosin á þing með

198 atkvæði.

Geri aðrir betur í lýðræðissamfélagi.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 12.9.2016 kl. 18:33

4 identicon

Hvernig er hægt að treysta manni sem safnaði tæpum 25 milljónum í kosningasjóð sinn og hefur aldrei þurft að standa skil á sínum málum?  Bara það eitt gerir þessa skýrslu að skeinipappír....................

thin (IP-tala skráð) 12.9.2016 kl. 20:18

5 identicon

Ég velti fyrir mér hvort þetta bull sé sett fram í dag til að draga athyglina frá frétt dagsins sem er uppljóstrun á þeim lygum SDG að brotist hafi verið inn í tölvuna hans.

Hann lét kanna það og var niðurstaðan sú að engin merki þess voru sjáanleg. Enn ein lygin og hann vill halda áfram eins og ekkert sé.

Það sýnir kannski best skilningsleysi Vigdísar og Guðlaugs að þau tala um einkavæðingu rétt eins og ríkið hafi átt nýju bankana í upphafi.

Þeir voru reistir á rústum gömlu bankanna og þær rústir voru að sjálfsögðu eign kröfuhafa. Eign ríkisins gat í upphafi ekki verið meiri en það fé sem það lagði fram.

Mikil lifandis skelfing er ég orðinn þreyttur á svona gjörsamlegu óhæfu fólki á Alþingi. Vegna bullsins í þeim fer ótrúlegur tími og vinna til spillis svo að aðkallandi mál komast ekki að.

Lygar SDG standa þó upp úr eftir daginn svo að nú ætti það að vera hægðarleikur að losna við hann fyrir fullt og allt.

Ásmundur (IP-tala skráð) 12.9.2016 kl. 20:34

6 Smámynd: Jónas Ómar Snorrason

Bæði Guðlaugur Þór og Vigdís eru að berja sér á brjóst, að þessi ríkisstj. hafi stuðlað að því allt fé hafi innheimst. Samt er forsendan fyrir því, lögin sem síðasta ríkisstjórn setti, þar sem þrotabú bankana voru sett undir gjaldeyrishöft, í óþökk núverandi ríkisstj.flokka, sem er forsendan fyrir innheimtu þess fé sem fékkst. Hefði átt að vera margfallt hærra.

Jónas Ómar Snorrason, 12.9.2016 kl. 20:59

7 identicon

Eftir að hafa lesið þessa skýrslu, sem væntanlega þingmenn hafa soðið saman er nokkuð ljóst að ekki þeir skörpustu hafa verið að verki (gaman væri að sjá nöfn höfundanna).

Sérstaklega óheppilegar eru fullyrðing að með neyðarlögunum hafi verið til heimild til að

1) Breyta öllum eignum (skuldabréfum) og skuldum (innistæðum) í íslenskar krónur. Þetta virðast menn byggja á bráðabirgðaplaggi FME þegar eignir og skuldir voru VERÐMETNAR í ISK.

2) Að stofnun nýju bankana með eignum frá gömlu bönkunum sem hluta eiginfjár væri mögulegt án þess að kröfuhafar (eigendur) þeirra yfirfluttu eigna fengju hlut eða greiðslu á móti.

Skýrslan gagnrýnir að uppgjörin (gengi m.a.) sé miðað við stofnefnahagsdag en ekki dagsetningu undirritunar samningsins sem er mun seinna. Nú þurfa menn aðeins að hugsa málið hvað sé eðlilegra þegar eignir eru fluttar á milli á stofndegi...

Það eina sem er óumdeilt þessu er að ríkið tók í tilviki Landsbankans (ekki hinna bankanna tveggja) rekstrar- og endurheimtunaráhættu.

Gunnar Sigfússon (IP-tala skráð) 12.9.2016 kl. 23:55

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Magnús, það færi best á því að þú skilgreinir hvað í þínum huga er "ÓHÁÐ".  En það virðist vera eitur í þinum beinum og annarra Vinstri manna að nokkuð sé fjallað um voðaverk stjórnarinnar á síðasta kjörtímabili....

Jóhann Elíasson, 13.9.2016 kl. 08:02

9 identicon

Meira að segja Brynjar Níelsson sagði á penan hátt að þetta væri skeinipappír.  Þingkonan VH virðist hafa verið send í leiðangur til að rétta hlut Víglundar Þorsteinssonar og sóar núna almannaféi á síðustu metrum síns þingferils síns til þeira mála. Hver skyldi hafa fengið hana í þetta? Sambýlismaður hennar??  Fjárfestir sem er að hjálpa öðrum fjárfesti (VÞ)??? 

thin (IP-tala skráð) 13.9.2016 kl. 09:17

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

"thin", það er merkilegt hvað þú setur þig í líma við að snúa öllu á haus og verja félaga þína í "Vinstri Hjörðinni". cool wink

Jóhann Elíasson, 13.9.2016 kl. 10:04

11 identicon

Menn geta ekki haft mikið milli eyrnanna ef þeir taka mark á Vigdísi og Guðlaugi Þór í ljósi pólitískrar sögu þessara þingmanna.

Hér er ekkert nýtt sem skiptir máli. Það hefur margoft komið fram hjá til þess hæfum aðilum að enginn fótur er fyrir þessum rógi sem kom fyrst fram svo að ég yrði var við hjá SDG.

Víglundur reyndi að notfæta sér ummæli SDG til að ná sér niðri á Steingrími vegna þess að fyrirtæki hans fékk ekki skuldaniðurfellingu og varð því gjaldþrota.

Það er fróðlegt að rifja það upp að meðan Steinunn Valdís sagði af sér vegna hárra styrkja situr Guðlaugur þór enn sem fastast þó að hann fengi tvöfalt á við hana. Auk þess voru styrkir til Steinunnar fyrir tvö framboð en Guðlaugur Þór var aðeins með eitt.

Alvarlegra var þó hvernig Guðlaugur Þór misnotaði aðstöðu sína hjá OR til að fá stórfyrirtæki sem hugðu á orkuútrás til að styrkja Sjálfstæðisflokkinn um margfalt hærri styrki en höfðu áður þekkst.

Sjálfstæðisflokkurinn sá sér ekki annað fært en að lofa að endurgreiða þessa háu styrki þegar orkuútrásarævintýri OR lauk skyndilega og ekki var lengur hægt að hygla þessum fyrirtækjum fyrir greiðann.

Af mörgum spillingarmálum Sjálfstæðisflokksins er þetta með því allra versta.  

Ásmundur (IP-tala skráð) 13.9.2016 kl. 10:59

12 identicon

Jóhann minn, hverju hef ég snúið á haus? Það eina sem ég hef bent þér á, að eins og ætíð áður, þá fer vinkona þín og flokksfélagi fram með þvílíkum gassagangi og offorsi í ankaralegum tilgangi. Það er búið að sýna fram á það oftar en einu sinni að ekkert athugavert var í gangi en blessuð konan gerir sig að þvílíku fífli að láta teyma sig út í eitthvað fúafen fyrir einhverja sérhagsmuni. Eins og ég benti þér á það skyldi þó ekki vera að fjárfestirinn, sambýlismaður hennar, og VÞ "fjárfestir", byggingaverktaki o.fl. séu að krulla eitthvað saman?

thin (IP-tala skráð) 13.9.2016 kl. 12:05

13 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sammála þér, Magnús Helgi.  Það þarf heiðarlega rannsókn á þessu máli; þetta eru alvarlegar ásakanir.  Efnt var til Landsdóms hér áður og þarf að gera aftur, núna.
Óþolandi fyrir alla aðila að láta það ógert.

Kolbrún Hilmars, 13.9.2016 kl. 15:32

14 Smámynd: Jóhann Elíasson

Reyndar er Vigdís EKKI vinkona mín (þekki manneskjuna ekkert) og alls ekki flokksfélagi, enda eru þessar fullyrðingar þína í samræmi við annan málflutning þinn wink.  En mér sýnist á því sem þú skrifar að þú hafir EKKI LESIÐ UMRÆDDA SKÝRSLU en þú hefðir gott af því "thin" og sjáum til hvort þú hefur eitthvað fram að færa eftir það að minnsta kosti ætti bullið eitthvað að minnka.

Jóhann Elíasson, 13.9.2016 kl. 15:48

15 identicon

Jóhann minn. Úrgangspappír sem þessi skýrsla er er gerð  OG greidd af Formanni og Varaformanni Fjárlaganefndar. Þau vissu upp á sig skömmina og ákváðu að greiða þetta sjálf enda hafa þau að því virðist vera verið sjálf að leika sér við að klambra henni saman í frítíma sínum. Að lokum vil ég benda þér á eftirfarandi klausu tekna af mbl.is "Hæpið er að líta á skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefnd­ar um end­ur­reisn fjár­mála­kerf­is­ins sem „al­vöru plagg“ þar sem alla umræðu og at­huga­semd­ir minni­hluta nefnd­ar­inn­ar vantaði við gerð skýrsl­unn­ar. Skýrsl­an virðist frek­ar til þess gerð að skapa hávaða og vera póli­tísk í stað þess að vera hluti af eft­ir­lits­hlut­verki þing­nefnda með fram­kvæmda­vald­inu. Þetta seg­ir Sig­ur­björg Sig­ur­geirs­dótt­ir, dós­ent í op­in­berri stjórn­sýslu við Há­skóla Íslands, í sam­tali við mbl.is."  Svona vinnubrögð flokkssystur þinnar verð þú með oddi og eggi.

thin (IP-tala skráð) 13.9.2016 kl. 16:15

16 Smámynd: Rafn Guðmundsson

sennilega er EKKERT að rannsaka - er ekki komið í ljós að þessi 'skýrsla' er bara prump

Rafn Guðmundsson, 13.9.2016 kl. 16:50

17 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Dósentinn heldur það já,? Hávaði gagnaði andstæðingum ríkisstjórnarinnar,þar til allir hættu að taka mark á þeim,0,16%.. Nú sýnist hana vanta umræðu og athugasemdir minnihluta fjárlaga-nefndarinnar,Skýrslan er nú opin öllum.- - Pólitískir andstæðingar afgreiddu lög um innflytjendur þar sem engin umræða fór fram,sem er þó bráðaðkallandi,prófið að vera réttlát einhvern tíma!

Helga Kristjánsdóttir, 13.9.2016 kl. 16:52

18 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ertu að ritskoða Magnús?

Helga Kristjánsdóttir, 13.9.2016 kl. 17:03

19 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bíddu hvað! Nei ég ritskoða ekki. Er fólk en að tjá sig við þessa frétt. Nú vita allir að þetta var bara tómt upphlaup. Vigdís og Guðlaugur hafa bæði sagt að engir peningar hafi tapast á þessu af því að Sigmundur Davíð og co hafi náð svo miklu til baka frá Kröfuhöfum. Þetta hafi bara verið áhætta. Vona að Víglundur Þorsteinsson láti nú gott heita og hætti að eyða tíma vinnandi fólks í eitthvað sem er ekki neitt og nota til þess nytsama sakleysingja eins og skötuhjúin Viggu og Gulla.

Magnús Helgi Björgvinsson, 13.9.2016 kl. 18:30

20 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ok vinur,ég kíkti hér ca.5 min eftir sá þetta ekki.-- En hvenær verður friður á þessu landi? Það verður ekki meðan maður skynjar einhliða fréttir ljósvakamiðlanna,rétt eins og þeir væru ekki af okkar þjóðerni.

Helga Kristjánsdóttir, 13.9.2016 kl. 18:58

21 identicon

NÝTT ....................   NÝTT...................

Varaformaður fjárlaganefndar lagður af stað á flótta með skeinipappírinn og farinn að gefa út afsökunarbeiðnir vinstri hægri eftir að hæstaréttalögmaður hótaði honum. Segir núna að hægt sé að breyta orðalaginu. Hann ætti að sturta þessum pappír niður um klósettið hjá sér og láta sig og Viggu fara með.

thin (IP-tala skráð) 15.9.2016 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband