Leita í fréttum mbl.is

Svona fara menn að því að svindla á Íbúðalánasjóði út á landi

Var að lesa Bæjarslúðrið bloggið hans Björgvins Vals. Þar lýsir hann því hvernig menn þarna út á landi eru að svindla á Íbúðarlánasjóði. Ætla að stelast til að brirta góðan hluta eða bara alla þessa færslu hjá honum:

Svona fer þetta fram:  Jón Jónsson kaupir hús í þorpi úti á landi fyrir lítinn pening, segjum eina milljón, enda húsið gamalt og ef til vill svolítið hrörlegt.  Jón auglýsir húsið til sölu eftir einhverjar vikur og vill fá fyrir það sjö millljónir.  Fyrirtækið Svik og prettir ehf. sem er í eigu Jóns Jónssonar og stofnað í síðasta mánuði, gerir Jóni tilboð uppá sex milljónir og hann tekur því. 

Svik og prettir fá 90% lán hjá Íbúðalánasjóði sem í þessu tilfelli eru 5,4 milljónir króna en greiðir aldrei krónu til baka og fer á hausinn.  Jón fær peningana hinsvegar inn á sinn reikninig og að frádreginni milljón sem fór í að kaupa húsið og annarri sem notuð var til að stofna Svik og pretti og greiða annan kostnað, hefur Jón Jónsson grætt tæpar þrjár og hálfa milljón króna á svindlinu.

En það eru ekki allir jafn mannúðlegir og Jón Jónsson.  Þeir gera gömlu fólki eða nýlögráða unglingum gylliboð og nota þeirra nöfn í stað Svika og pretta ehf.  Að sjálfsögðu lendir þá gjaldþrotaskellurinn á gamalmennum eða börnum en svikahrapparnir hirða milljónir og halda leiknum áfram, undir nýjum nöfnum og kennitölum.

Æ já, ég var að lýsa því hvernig glæpamenn svindla fé út úr Íbúðalánsjóði og ég veit um fjögur slík dæmi í 240 sála þorpinu hvar ég bý.  Svo er bara að margfalda.

Alltaf verið að reyna að svindla. Og þannig verða menn ríkir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég var bara að vitna í Björgvins Val hann býr þarna fyrir austan í litlu bæ og þekkir 4 tilfelli sjálfur. Ég er ekkert að segja að þetta sé fólk á staðnum heldur einmitt kannski braskarar úr höfuðborginni sem fara nú um landið og kaupa hús og jarðir sem hægt er að hagnast á. ALveg sama þó þeir séu að fara í hring um lög. Þannig eru t.d. eignamenn sem eru búnir að kaupa upp heilu dalina við ár í Skagafirði og pressa svo á að þar verði virkjað til að þeir fái bætur frá landsvirkjun.

En ítreka að ég fékka þessa færslu hér að láni frá Björgvin Val sem býr á Austfjörðum og er vitni að þessu. Sjá http://sludrid.blog-city.com/svik_og_prettir_ehf.htm

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.6.2007 kl. 22:05

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég held að fyrirtæki fái ekki að yfirtaka lánin hjá íbúðalánasjóði.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 1.7.2007 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband