Leita í fréttum mbl.is

Alveg dæmigerð þröngsýni Sjálfstæðismanna

Það er alltaf sama sagan með Sjálfstæðismenn sérstaklega þeir sem teljast ungir. Þeir hafa flestir verið á framfæri foreldra og á námslánum alla sína ævi og hafa ekki í sér nokkra aðra hugsun en að hver sé sjálfum sér næstur og lausn allra hluta sé einkavæðing.

Í þessu máli varðandi almenningssamgöngur sjá þeir t.d. ekki:

  • Með því að gera almenningssamgöngur ódýrari eða ókeypis þá fer fólk alvarlega að hugsa um að gera þetta að sínum aðal samgöngumáta.
  • Með því vinnst m.a. eftirfarandi:
    • Dregur úr mengun
    • Dregur úr kostaði við samgöngumannvirki umtalsvert.
    • Eykur hreyfingu fyrir þá kæmu til með að nota þetta í stað einkabíls og þar af leiðandi batnar heilsa sem svo aftur leiðir til að að sparast peningar í heilbrigðiskerfinu.
    • Sparnaður fyrir fjölskyldur sem svo aftur leiðir til minni þrýstings á miklar launahækkanir.
    • Gerir samgöngur fyrir þá sem eru á einkabílum greiðari og þar af leiðandi er þetta tímasparnaður fyrir alla.

Þegar almenningssamgöngur verða orðnar hluti af lífsstíl bæjarbúa, eftir nokkur ár, þá verður hægt að leggja á hóflegt gjald sem vegna aukinnar notkunar mundi valda því að þessar samgöngur standi betur undir sér.


mbl.is Álykta gegn hugmyndum um gjaldfrjálsan strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Vala

Heyrheyr!!! Þú hefur sagt það um eðli ungra sjálfstæðismanna sem allir eru að hugsa!!!

Rúna Vala, 14.10.2007 kl. 11:42

2 Smámynd: Elfur Logadóttir

Ég verð nú reyndar að segja að ég er að mörgu leyti sammála þeim ungu sjálfstæðismönnum í þessu máli. Á meðan þjónustan er ekkert bætt, ferðum ekki fjölgað og minnkað bilið milli stoppistöðva, þá eru ekki miklar líkur á að þjóðin taki við sér og nýti sér strætó - þó hann sé ókeypis.

Og af tvennu "illu" þá myndi ég miklu frekar vera reiðubúin að greiða fyrir góða þjónustu strætó heldur en hafa ókeypis með lélegri þjónustu.

Stofnleiðir eiga að ganga á max 10mín fresti, jafnvel oftar á álagstímum.

Tímataflan á að breytast meira yfir sólarhringinn, hafa tíðustu ferðirnar á morgnanna, þegar allir eru á leið í vinnu eða skóla.

Lykillinn er hins vegar ekki í stofnleiðunum, því á meðan hverfisbílarnir keyra bara á 30-60 mínútna fresti, þá hefur enginn þolinmæði til þess að treysta á slíkar ferðir. Og þá breytir engu hversu lítið kostar að nota vagnana. 

Elfur Logadóttir, 14.10.2007 kl. 15:32

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Reynslan af því að námsmenn fengu frítt í strætó sýnir að fólk er tilbúið að nota þessa þjónustu ef þeir þurfa lítið að borga. Nú í dag held ég að fargjaldið sé um 280 kr. þ.e. 560 fram og til baka leigubíll á daginn á svona meðal leið kostar 1500. Þetta er bara of lítill munur miðað við að fólk fer í bílnum upp að dyrum. Eins þá má færa rök að því að bensín kosnaður fyrir einkabíl sé svipaður og strætógjaldið.

Það er nokkuð ljóst að sveitarfélög og ríki spara í samgöngumannvirkjum á móti því sem þau þyrftu að leggja Strætó til ef að gjaldið yrði fellt niður eða lækkað í t.d.50 kr.

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.10.2007 kl. 16:47

4 Smámynd: Elfur Logadóttir

Ekki misskilja mig, mér finnst frábært að fjölga farþegum í strætó, með hvaða hætti sem er. Ég tel hins vegar vænlegra til árangurs að gera leiðakerfið og ferðatíðnina með þeim hætti að það verði raunverulegur valkostur við einkabílinn. Akstur leiðar á 30 mínútna fresti gerir það ekki.

Best væri að gera bæði, fjölga leiðum og auka tíðni ásamt því að bjóða lágt verð, en á meðan einungis annað er mögulegt, þá tel ég að tíðnin sé mikilvægari. 

Gjaldfrelsi nær inn skólafólkinu og mögulega frestar þeirra þörf fyrir þriðja bílinn á heimilið, en ég er ekki viss um að það nái inn í almenningssamgöngurnar þeim sem eiga bílinn nú þegar. 

Því er þó við að bæta að auðvelda þarf greiðslukerfið til muna. Strætóbílstjórarnir eiga að selja afsláttarkort í vögnunum þannig að þú getir hoppað inn án þess að þurfa að greiða fullar 280 kr. fyrir með því að kaupa afsláttarkort.

Elfur Logadóttir, 14.10.2007 kl. 17:30

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég sé að við erum nærri því sammála um þetta. Mér finnst þetta a.m.k tilraunarinnar virði. Og jú með breyttu leiðarkerfi. Í dag er þetta náttúrulega ekki hægt.

En þar sem að þessi frétt var frá Sjálfstæðisfélagi í Kópavogi. Þá fór ég að hugsa að ef fólk sem vinnur í bænum hefði öflugt strætókerfi sem kostaði lítið þá vildi það kannski eiga þennan möguleika að geta setið í Strætó og t.d. lesið blöðin í stað þess að vera í biðröð á Kringlumýrarbraut eða svipuðum leiðum í svona 20 til 30 mínútur á morgnana.

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.10.2007 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband