Leita í fréttum mbl.is

Kæri Geir!

Þetta eru nú ekki rök sem halda:

Geir sagði, að ef Ísland væri í Evrópusambandinu hefðu stjórnvöld ekki haft jafn svigrúm til að laga sig að breytingum í alþjóðlegu umhverfi eins og gert hefði verið á síðustu mánuðum. Íslandi væru þá allar bjargir bannaðar við núverandi aðstæður. Þá hefði gengi gjaldmiðilsins verið fast og vextirnir ákveðnir í Seðlabanka Evrópu. Eini vettvangurinn, þar sem svigrúm gæfist, væri á vinnumarkaði, þar sem hægt væri að segja fólki upp og auka þannig atvinnuleysi. „Viljum við það? Ég vil það ekki," sagði Geir.

Held að það sé nokkuð ljós að værum við ESB og með Evru þá hefðum við ekki lent í þessari verðbólgu nú! Og þá má nefna að þetta ástand sem nú er kallar líka fram samdrátt og óþægindi fyrir fólk. Það er að ef að þetta ástand verður viðvarandi þá minnkar kaupmáttur og fólk missir eignir þannig að ástandið hér nú er ekki burðugt með þvær tegundir af krónum gengistryggða kr´nu á flestum lánum en óverðtryggða krónu í launum.


mbl.is Geir: Ég vil ekki ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ekki sjálfstæðismanneskja, ég er óflokksbundin, en ég tek ofan fyrir Geir. Hlustið þið á það sem hann er að segja, því það er sannleikur. Ég bjó í hjarta evrópu í 30 ár og er ný flutt aftur heim. Ég varð vitni að því þegar evrópa sameinaðist, landamærinn opnuðust og allt breyttist. Svo kom evran og rústaði restinni fyrir meðalmanninum. 11 milljón þjóðverja búa UNDIR fátækramörkum,,, í köldum íbúðum...   4 hvert barn í Berlín líður skort. TIL HAMINGJU EVRÓPA!!!  Flott mál maður! Þetta er svipað í allri evrópu nema Lúxemburg sem er ennþá ríkt land.

 Geir talaði úr mínum munni í kvöld. Við ERUM mjög sérstök þjóð. Viljum við selja okkur fyrir efnishyggju? Halló? Ég ráðlegg hverjum einasta íslending með skoðanir, að lesa ÖLL evrópulögin áður en þeir dæma Geir og hans staðreyndir. Síðan ættu þeir að lesa allt um Jón Sigurðsson heitinn. Nei ég hef ekki lesið öll evrópulögin en ég upplifði tonn af þeim. Rockhard reality!

Ég elska þetta land og dáist að þjóðinni með allann sinn dugnað, og þegar maður upplifir í hnotskurn hvað þetta evrópusamband er, þá þakkar maður fyrir að koma hingað heim og taka þátt í samhentu reddingarþjóðfélagi sem stendur sig eins og stórveldi. Það má margt betur fara hér á landi, en ég vona að ég þurfi aldrei aftur að upplifa að búa undir evrópubákninu. Að ég þurfi aldrei aftur að borða bara útlenskt kjöt eða grænmeti. Íslensk matvara er lostæti!

Ef þið bara vissuð hvað Ísland er mikil paradís. Ég bjó í 88 miljón manna þjóðfélagi og borgaði 6 sinnum meira í rafmagn og hita en ég borga hér á landi. Ég þakka Guði í hvert sinn sem ég drekk ískalt vatn úr krananum, því það er ekki búið að fara 7 sinnum í gegnum mannslíkamann. Mér finnst að þjóðin mætti taka sig aðeins á, og Geir mætti rassskella alla ríkisstjórnina opinberlega á Austurvelli :=)

anna ragnhildur (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 20:50

2 identicon

Það væri ekki jafn mikil verðbólga hérna ef við værum með evru, það er rétt. Hinsvegar er lausafjárkreppa í Evrópusambandinu, rétt eins og utan þess, og við þyrftum að taka það út með einhverjum hætti. Því fer fjarri að ESB sé einhverskonar efnahagslegt nirvana.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 21:39

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Mestu vandræði með lausafé banka sem við heyrum af er í Bretlandi sem er ekki með Evru, USA sem er ekki Evrópubandalaginu og á Íslandi.

Það verður að taka það með í reikningin að seðalabanki ESB er mun öflugri en bankar einstakra landa.

Held að fjöldi fólks undir fátækramörkum í þýskalandi sé kannski ekki svo mikið meiri  en hér. En vandamálið að hér er ekki búið að skilgreina þau mörk. En maður hefur heyrt að framfærsla fyrir einstakling með húsnæði sem eitthvað um 190 þúsund hér en lágmarkslaun eru um eða undir 150 þúsund.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.5.2008 kl. 22:45

4 identicon

Það er líka lausafjárkreppa í ESB. Hefur þú ekkert heyrt um vandmálin á Írlandi og á Spáni?

Eins bendi ég á að seðlabanki ESB er minni en seðlabanki Bandaríkjanna (fólkið er færra í BNA en hagkerfið stærra).

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 03:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband