Leita í fréttum mbl.is

Ekki getur þessi frétt verið rétt?

Ekki getur þetta verið rétt :

Maðurinn var dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir brot sitt á síðasta ári en hann varð uppvís af búðarhnupli í Illum versluninni fyrir 4.700 danskar krónur. Brotið var framið í október á síðasta ári en samkvæmt frétt á vef Politiken stal hann húfu, bindi og stuttermabol

Stuttermabolur, bindi og húfa geta varla kostað 4.700 danskar krónur. Er það ekki tæpar 90.000 íslenskar? þetta hlýtur að vera vitlaust. Mundi halda að þetta væri 230 danskar krónur eða 4.700 íslenskar krónur.


mbl.is Vísað úr landi vegna búðarhnupls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 þetta eigum við að gera við alla erlenda gesti sem stela og valda öðrum skaða  , vísa úr landi sekta og  bann við að koma aftur inn í landið , næstu 10 ár ekki minna ..en það  er altaf leið til að fara á bak við yfirvaldið ,, þeir breyta bara um nafn  og koma síðan  aftur og halda áfram iðju sinni ,,og við  gerum ekker það er hlegið að okkur víðar en í þessum erfiðleikum okkar með bankahrunið það nokkuð er víst ,,,því miður.. og íslendingar eru meðhöndlaðir sem  glæpamenn og niðurlagðir út um allt  sorglegt nú er umað gera að taka til og losna við þjófa t.d. frá austurevrópu og mafíuna sem  þeim filgir..

Ásthildur Einarsd. (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 17:10

2 identicon

haha, ég hélt að þú ætlaðir að blogga um eitthvað allt annað.

hs (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 19:43

3 identicon

Hmm Ásthildur hvað eigum við þá að gera við alla Íslendingana sem stela og valda öðrum skaða? Eða eigum við meiri rétt að vera fávitar að því að við fæddumst "réttu" megin við strik á landakorti?

Komum fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur!

Högni Arnarson (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 20:22

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þú ert svolítið magnaður Viðar.. gjammar og gjammar en leyfir ekki athugasemdir á eigin síðu.. er hugleysið alveg að fara með þig rasistinn þinn ?

Annars er ég sammála greinarhöfundi, þessi upphæð getur varla verið rétt eftir höfð..  

Óskar Þorkelsson, 29.12.2008 kl. 22:17

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Alltaf gaman að skrif frá Viðari. Skrif hans minna mig alltaf á að ég er yfirleitt algjörlega á öndverði skoðun en hann.

T.d. hefði verið gaman að koma með athugasemd við færslu hans nú í dag þar sem segir:

,,Hæstiréttur Danmerkur úrskurðaði í dag að vísa bæri karlmanni frá Litháen úr landi fyrir búðarhnupl. Er honum bannað að koma til landsins næstu fimm árin. Maðurinn var dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir brot sitt á síðasta ári en hann varð uppvís af búðarhnupli í Illum versluninni fyrir 4.700 danskar krónur." - mbl.is

Það hefur þurft ofbeldisöldu, stóraukna tíðni fíkniefna, kynferðis og annarra glæpa til þess að vekja Dani af værukærum svefni sem lýsti sér í öfgakenndu umburðarlyndi og undirlægjuhátt en langlundargeð Dana er nú algerlega þrotið. http://vidargudjohnsen.blog.is/blog/vidargudjohnsen/

En það var einmitt inntakið í blogginu mínu við þessa frétta að Stuttermabolur, bindi og húfa geta ekki kostað 4.700 danksar krónur.

En fyrst að hann nefnir þetta með brottvísun þá höfum við oft beitt þessu hér á landi. Menn eru dæmdir í fangelsi og síðan er tafarlaus brotvísun og komu band til landsins í 5 ár. 

Bendi líka Viðari á að ef að erlendir verkamenn hefðu ekki verið hér síðustu ár hefði þenslan orðið mun meiri og atvinnuleysi mun meira. T.d. má benda honum á að skoða hvernig ástandið hefði verið hér ef að 4 til 5 þúsund verkamenn hefðu ekki snúið heim þegar uppsagnir byrjuðu. Og enn fleiri á leiðinni. Ef að íslendingar hefðu einir setið að öllum þessum framkvæmdum hefði launaþensla orðið slík að við hefðum enn fyrr lent í vandræðum. Og fyrirtæki stæðu enn verr.  Og mun fleiri íslendingar verið farnir yfir í byggingariðnaðinn og væru nú atvinnulausir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.12.2008 kl. 22:30

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Viðar ef ekki hefðu komið til útlendingar hér í mestu þennslunni. Þá hefði þessi bóla hér þýtt að það hefðu verið mun meira framboð af störfum en eftirspurn sem hefði þýtt yfirboð á launum sem hefði þýtt að hér hefði í þessari gevi velstæld sem við tókum að láni verið eintómar hálaunastéttir. Vöruverð væri enn hærra en það er í dag og áfallið hefði orðið enn meira. T.d. mun meira atvinnuleysi, mun fleiri fyrirtæki sem réðu ekki við þessi laun. Mun fleiri fjölskyldur sem hefðu fjárfest miðað við há laun sem þau væru að missa í dag.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.12.2008 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband