Leita í fréttum mbl.is

Furðuleg áhersla gamla öldungsins!

Jón Baldvin veit manna best að það verður ákveðin breyting i forystusveit Samfylkingar. Nú er t.d. ljóst að nýr varaformaður verður kosinn. Þá er líka ljóst að Ingibjörg ætlar að verða til hliðar og Jóhanna kemur til með að leiða hugsanlega stjórnarþátttöku eftir kosningar. Jón hlýtur að gera sér grein fyrir að það er ekki hver sem er sem heldur utan um svo breiðan flokk sem jafnaðarmenn eru.

Þá er það nokkuð ljóst að það verða t.d. engar breytingar hjá Vg þannig að fullyrðingar Jóns um að hér verði alherjar endurnýjun hjá öllum flokkum á ekki við rök að styðjast. Það er ljóst að allir þingmenn sem voru á þingi hefðu átt að aðvara þjóðina ef þeir vissu um þetta ástand. Ekki bara stjórnarþingmenn. Sannleikurinn er sennilega að enginn gerði sér grein fyrir að svona algjört hrun blasti við. Og sá tími sem leið frá því að Samfylking myndaði stjórn með Sjálfstæðismönnum reyndist ekki nægur til að vinda ofan af þessu. Sérstaklega frá því að alvarleikin varð ljós síðasta sumar.

Jón held ég að eigi lítið fylgi meðal skráðra Samfylkingarmanna. Sérstaklega þeirra sem koma til með að kjósa um formann.


mbl.is Jón Baldvin fer fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jón er búinn að vera,það er gott að Kolfinna fór í VG

Samfylgingin græðir á því

leedsari (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 20:29

2 identicon

Ingibjörg er ein eftir af öllum þeim ráðherrum sem véluðu um efnahagsmál í aðdraganda hrunsins.  Hún var aðvöruð en gerð EKKERT nema að fara í áróðursferð fyrir verslunarráð til Danmerkur. 

Á Samfylkingin að vera eini flokkurinn sem var í stjórn í andraganda hunsins sem ekki axlar ábyrgð ?  Á Samfylkingin að vera sá flokkur sem er með lélegasta siðferðikennd ?

Þjóðin vill ekki Ingibjörgu.  Kjósendur Samfylkinginarinnar vill ekki Ingibjörgu.  Á hennar persónlega valdafíkn að eyðileggja flokkinn ?

Allt er betra en Ingibjörg.

Magnús (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 21:08

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og hvað hefð hún átt að gera? Hún reyndi að vernda bankana fyrir aðför erlendis frá. Sem hefði verið gott ef að tekist hefði að koma t.d. IceSave til Bretlands eða bönkunum í heild. En bankarnir hefðu á þessum tíma ekki getað selt eignir eða annað til að minnka skuldir. Það vildi engin kaupa. Það var ekki hægt að fá lán neinsstaðar. Það var allt stopp! Ef eitthvað hefði átt að virka hefðu aðgerðir þurft að verða í byrjun árs 2007. Fólk man að það var nær ekki lánsfé í boði og tryggingarálag var orðið hátt strax 2007. Það héldu allir að bankarnir mundu lifa langt fram eftir 2008 og þeir hefðu meiri tíma til að losa sig við eignir þegar markaðurinn færi upp aftur.

Síðan hefur komið í ljós m.a. í viðtalinu við Davíð að aðvaranir hans voru aðallega í símtölum og viðtölum við Geir Haarde sem ekki kom þessu á framfæri við aðra ráðherra á skýran hátt.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.2.2009 kl. 21:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband