Leita í fréttum mbl.is

Skil þetta ekki alveg!

Er þetta þá svona?:

  • Sonur þessarar konu fer að kalla einhvern polla af því að hann nær ekki upp í loft.
  • Sá sem var kallaður "polli" verður reiður og ríkur í þann sem var að uppnefna hann og meiðir.
  • En þá daginn eftir koma einhverjir aðrir 2 og berja þann sem kallaður var "polli" svo að hann missir heyrn og tennur losna ásamt fleiru. Og annar þeirra var þjálfaður boxari.
  • Og hvað er þá móðirin að verja. Þessir 2 strákar sem talað er um komu þessu máli bara ekkert við. Það var búið að taka málið fyrir í skólanum þannig að þeim kom þetta mál bara ekkert við.
  • Svo hvað er konan að segja? Fyrst að þessi drengur lét hendur skipta þegar hann var uppnefndur þá er það þá einhver skýring á því einhverjir utan að komandi berja hann? Er málið ekki jafn alvarlegt þó þetta hafi ekki verið rasismi.
  • Er svona ofbeldi ekki allt of algengt þarna á Suðurnesjum. Minni á myndskeið af drengjum á svipuðum aldrei í vetur sem voru að sparka í höfð á öðrum dreng þarna á svipuðum slóðum

mbl.is Óvægin ummæli á bloggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert brunnur af einhverju ...

vá...

Hún var að gagnrýna  Moggarana, moggabloggarana fyrir að vera dicks... eins og þú....

Kemur hvergi fram að hún hafi verið að upphefja ofbeldi eða gera það að jákvæðum hlut...

DICK...

Gunnar Eyþ. (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 15:49

2 identicon

Þú heldur uppteknum hætti með gífuryrði og alhæfingar um eitthvað sem þú játar að hafa ekkert vit á.

Hvað segir þú um að þú takir þátt í því með öðrum greinilega iðjulitlum blokkgurum og látir þetta fólk á Suðurnesjum í friði? Nóg virðist það hafa gengið samt í gegnum.

Albert J. (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 15:50

3 identicon

Mjög þroskað komment Gunnar.

Ingimundur (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 15:52

4 Smámynd: Ignito

Hefur þú tekið þig til og lesið bloggfærslurnar sem hafa komið í tengslum við þetta mál ?  Hún gerði það og fékk greinilega uppí kok.

Hættulegt að hafa opið fyrir blogg í svona málum.  Gamla góða "dæma fólk án þess að vita nokkuð um atburðarrásina" og fólk missir sig í sleggjudómum og jafnvel fordóma gegn ákveðnum landshlutum.

Mér sýnist þú reyndar vera gera síðarnefnda nokkuð greinilega.

Ignito, 5.3.2009 kl. 16:03

5 identicon

Hvaða idíótí er þetta eginlega í svarendum hér??  Það er barasta aldrei í lagi að beita ofbeldi.  Jú, jú, einhver hefur kannski slegist við einhvern einhverntímann, en það kemur bara málinu ekkert við!

Það á að reka skólastjórann.  Það er algert hneyksli að hún sé að bera í bætiflákann fyrir ofbeldi í grunnskólum landsins.

Og það væri ekki vitlaust að barnaverndarnefnd ræddi aðeins við- þessa ofbeldishneigðu móður sem riksar frammá völl með þessum hætti og afsakar fólskuháttinn með einhverjum sandkassarökum.

Jón Helgi (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 16:06

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Viðurkenni að ég hef ekki lesið mikið af bloggi um þetta mál. En mér finnst ekki að það að ofbeldi sé beitt sé hægt að skýra með nokkru móti. Og það jafnvel þó að það sé rökstutt með öðru obeldi. Og ég hefði áhyggjur af því að ofbeldi meðal unglinga á Suðurnesjum ratar að minnsta kosti mjög oft í fjölmiðla. Oftar en frá öðrum stöðum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.3.2009 kl. 16:12

7 identicon

Það brotnuðu engar tennur, og það er ekki einu sinni viðað hvort einhvað hafi komið fyrir strákinn...

María (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 16:16

8 Smámynd: Eldur Ísidór

Þetta er bara Slorgerðis mentality´ið í gangi.... sést á afsökunum móður, og svarendum á þessari færslu. Finnst skrítin lykt af þessu öllu saman bara.

Þessi árás afsakast ekkert með annari árás og boxmaður á ekki að fá að keppa eða æfa box ef hann getur ekki notast við hnefana einungis innan hringsins.....og hana nú bara !

Eldur Ísidór, 5.3.2009 kl. 16:24

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Móðirin skýrir málið skilmerkilega. Það er dapurlegt þegar þjóðin fer að velta sér upp úr máli sem foreldrarnir eru að leysa í samvinnu við börn og skóla. -Hverjum öðrum kemur svona lagað við??

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 5.3.2009 kl. 16:32

10 identicon

Okkur kemur það við vegna þess að börnin okkar nota þessa skóla líka, ofbeldi og/eða einelti í skólum landsins eru ekkert einkamál þeirra sem í því lenda.

Jón Helgi (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 16:35

11 Smámynd: Ignito

Já, það er reyndar einkennilegt hvað Suðurnesin rata oft í fjölmiðla í tengslum við svona og er sennilega eitthvað sem vert er að skoða.

En mig grunar að þar sé ekki magnið sem ráði því ólíklegt tel ég að ekki séu ýmsir pústrar í gangi annars staðar.

Ignito, 5.3.2009 kl. 16:42

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

María svona var sagt frá þessu á www.vf.is

Fjórtán ára piltur og nemandi í grunnskóla Sandgerðis hlaut alvarlega áverka eftir að hann varð fyrir fólskulegri árás tveggja skólafélaga sinna á svipuðum aldri. Hann  hlaut m.a. heilahristing, missti heyrn á öðru eyra og tennur losnuðu

Og þar er líka yfrlýsing frá hnefaleikafélaginu:

„Hnefaleikafélag Reykjaness harmar það atvik sem átti sér stað þegar einn meðlimur félagsins varð uppvís að því að lenda í áflogum.

Umræddur meðlimur hefur verið fram til þessa virkur meðlimur og góður félagi í HFR, því hörmum við þetta mjög, en vonum eindregið að svo verði áfram.

Okkar afstaða er skýr til brota af þessu tagi.  Við samþykjum ekki svona hegðun og lítur hnefaleikafélagið brot af þessu tagi mjög alvarlegum augum.

Ég bý í Kópavogi og ég sem betur fer heyri ekki svona fréttir um krakka hér í bæjarfélaginu og hef ekki um langan tíma

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.3.2009 kl. 17:07

13 identicon

Það var að skilja á orðum nemenda í þessum skóla að "polli" væri niðrandi uppnefni um Pólverja. Ef það er rétt, er þetta rasismi og móðirin sem skrifaði, ætta að taka son sinn í gegn, því hann kom þessu máli í  raun af stað.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 20:37

14 identicon

Hvað meinaru Svavar? Lastu ekki hvað hún sagði? Hann kallaði hann polla út af stærðinni.

Og í öðru lagi eru pólverjar ekki annar kynþáttur fyrir fimm aura. Og í þriðja lagi er ekkert kynþáttahatur að kalla einhvern "polla". Hvaða rugl er það.

Ef einhver segir "pollar eru ömurlegir", það er annað mál, en að kalla einhvern bara "polla" er enginn dónaskapur í sjálfu sér. Er það kannski líka "rasismi" að kalla einhvern hafnfirðing?? Eða frakka? Eða Norðmann??

Siggi (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 23:06

15 Smámynd: Örn Arnarson

Jón Helgi:  Dugir þér þetta viðtal til að segja að það eigi að reka skólastjórann?  Hún getur ekki tjáð sig um þetta mál fyllilega í fjölmiðlum, það væri mjög ófaglegt.  Þessi mál eru leyst innan skólans, ekki fyrir augum almennings.

Ég efast ekki um að þetta mál er tekið föstum tökum í skólanum, með aðstoð allra stuðningsbattería sem í boði eru, s.s. barnavernd, sálfræðingum og námsráðgjöfum.

Örn Arnarson, 6.3.2009 kl. 09:47

16 identicon

Þegar skólastjórinn kemur fram opinberlega, reynir að kenna hinum lúbarða um atburðinn og segir að það sé verið að gera úlvalda úr mýflugu að gera eitthvað mál úr þessu... þá já.  Auðvitað er hún að bregðast hlutverki sínu.

Hún hefði þá bara betur þagað.

Jón Helgi (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 10:51

17 identicon

smá innskot Jón Helgi , hvenar sagði skólastjórinn að það væri hinum lúbarða að kenna ?

Kristín (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband