Leita í fréttum mbl.is

Jæja ágætu kjósendur!

Alveg er þetta ótrúlegt! Nú þegar að ríkið er stór eigandi að fyrirtækjum landsins aftur og þá fer fólk að hallast aftur að Sjálfstæðisflokknum aftur.

  • Er það af því að þeim finnst málflutningur þeirra svo traustverðugur. Formaður þeirra skiptir um skoðun eins og oft og hann telur að það geti komið höggi á núverandi stjórn.
  • Finnst fólki í ljósi reynslunnar af einkavæðingu þeirra, að Sjálfstæðisflokkurinn sé bestur til að úthluta þessu eignum aftur á markað.
  • Finnst fólki líklegt í ljósi reynslunnar að fólk verði látið axla birgðirnar af kreppunni eftir getu.
  • Finnst fólki leiðir Sjálfstæðismanna eins og:
    • Það á ekki að hækka skatta
    • Það á bara að létta birgðum á fyrirtæki og eignarmenn og þá blómstrar allt.
    • Það á bara að draga meira úr útgjöldum ríkisins sem þeir vita að verður þá í heilbrigðiskerfinu og félagsþjónustu. Og verður þá í formi þjónustugjalda
    • Er Bjarni Ben sá sem þau halda að geti leitt okkur út úr þessari kreppu?

 Alveg er fólk hér ótrúlegt. Við erum að ganga í gegnum skipbrot landsins sem var undirbúið, framkvæmt og hannað af Sjálfstæðisflokknum. Ekkert í stefnu hans hefur breyst nokkuð sem heitir og fólk er tilbúið að kjósa hann aftur eftir 5 mánaða hlé frá Ríkisstjórn. Þar sem hann hafði setið í 18 ár og haldið hér upp þjóðfélagi sem byggði tilbúinni velmegun sem öll var tekin að láni.


mbl.is Ríkisstjórnin með 43% stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maggi.

Það er aðalega ein ástæða fyrir þessu. Ríkisstjórnin hefur gleymt fólkinu í landinu. Það gildir að taka á málum núna. Það skynjar fólk. Hafa forustumenn ríkisstjórnarinnar hjólað í t.d. stjórnvöld Breta og Hollendinga til að leiðrétta Icave reikninginn? Ekki svo ég viti. Jóhanna, Steingrímur og co verða að gera betur ef þau vilja halda trúnaði. Brýndu þitt fólk í stað þess að segja að fólk sé ótrúlegt. Slöpp vinna kallar á óvinsældir.

Kv.JAT

Jón Tynes (IP-tala skráð) 29.7.2009 kl. 12:20

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hvað heldur þú að ríkisstjórnir hér síðustu mánuði hafi verið að gera. Það var byrjað hér í október að reyna að halda fram okkar rökum um að EES tilskipunin gerið okkur ekki að borga neitt. Það er bara ekki skilningur þeirra sem við erum að semja við eða nokkra aðra. Eins þá benda þessar þjóðir sem við erum að semaj við að nú þegar hafa þær tekið á sig allt umfram innistæðutryggingar þrátt fyrir að við höfum lýst því yfir að við tryggjum allar innistæður í Íslenskum bönkum.

Erlendir sérfræðingar telja að miðað við að við erum að semja um peninga sem við skuldum þá sé IceSave samningurinn í höfuð atriðum góður. Það er lengri lánstími en gerist venjulega. Auk þess eru lægri vextir en gengur og gerist miðað við fastavextir. Og vextirnir eru undir því skuldatryggingarálagis sem áætlað er á Ísland.

Það verður jú að horfa til þess að Steingrimur og Jóhanna eru að fást við ástand sem fylgir algjöru hruni. Hér hafa allir skoðun á því hvað á gera og enginn sammála. Stjórnarandstaðan heldur fram stöðugum hræðsluáróðri og einhverjum lausnum sem síðan reynst óframkvæmanlegar. Og fólk kaupir þetta gagnrýnislaust. En þetta var líka reynslan í Svíþjóð. Göran Person var einn hataðast stjórnmálamaður þar fyrr og síðar þegar hann vann að því að koma Svíþjóð út úr bankakreppunni þar. Það tók nokkur ár. Hér er ekki liðið ár og allir farnir að tala um að hér eigi allt að vera komið í lag. Þó er kreppan hér miklu verri auk þess er heimskreppa.

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.7.2009 kl. 12:36

3 identicon

Sæll aftur.

Af hverju minnkar traustið? Það er eitthvað sem ekki virkar. Þrátt fyrir ýmsar aðgerðir( misgóðar) þá  klikkar stjórnin á því að halda tiltrú. Ég held að hún verði að skoða sinn rann. Til þess að fólk hafi þolinmæði verður það að hafa tiltrú. Enginn ætlast til að ally sé komið lag. Ég held að  Jóhanna og Steingrímur hafi bara ekki næga pólitíska krafta til að draga hlassið. Ágætis manneskjur en því miður ekki nóg. Hef ekki trú að leitogahæfileikum þeirra.

Kv.JAT

Jón Tynes (IP-tala skráð) 29.7.2009 kl. 15:09

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það nú auðskyljanlegt. Það er sama hvað er ráðist í það koma alltaf einhverjir sem eru með einhverjar óraunhæfar lausnir.

  • Það er samið um Icesave og það kemur kór um að þessi samningur setji okkur á hausinn og Seðlabankin eru asnar og nota ekki raunhæfar tölur þegar þeir segja að við ráðum við þetta.
  • Minni líka á þegar menn sögðu að við þyrftum ekkert að semja um þetta Icesave. Þeir hafa skipt um skoðun nær allir.
  • Minni á þegar að Framsókn hélt því fram að það væri auðvelt að lækka öll lán á landinu og láta það bitna á erlendur kröfuhöfum

Held að það sé umrætt hér heima og erlendis að Steingrímur hafi einmitt sýnt sig sem hörku stjórnmálamann að ná að sigla hér málum í gegnum þingið.

Held að þú fáir mig ekki til að kaupa að Bjarni Ben, Þór Saari eða Sigmundur Davíð væru betri í þessari stöðu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.7.2009 kl. 15:36

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Enda held ég að þau bæði Steingrímur og Jóhanna reikni með að þetta verði þeirra síðasta kjörtímabil. Minni á að Jóhanna ætlaði að hætta 1 rða 2 ár áður en stjórnin sprakk í febrúar. Hún tók þetta að sér vitandi að margar aðgerðir kæmu til með að gera hana óvinsæla og sama við Steingrím. Bendi á það sem Tryggi Gíslason skólameistari sagði í Mogganum í dag.

Icesave-samningurinn er gerður á ábyrgð Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra sem hefur sér til fulltingis Indriða H. Þorláksson hagfræðing, fyrrverandi ríkisskattstjóra, margreyndan embættismann og traustan. Hvorugur þeirra átti nokkra aðild að svikum sem liggja að baki hruninu, en hreinsa nú upp eftir óreiðumenn. Engum vafa er undirorpið að báðir eru vanda sínum vaxnir. Steingrímur J. Sigfússon hefur auk þess lagt pólitíska framtíð sína að veði til þess að vinna þetta endurreisnarstarf. Er honum betur treystandi en öðrum íslenskum stjórnmálamönnum til þess að leysa úr þessum vanda þjóðarinnar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.7.2009 kl. 15:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Af mbl.is

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband