Leita í fréttum mbl.is

ESB andstæðingar eru algjört met!

Nú sé ég hér á blogginu að andstæðingar viðræðana við ESB segja að þessi könnun sé mein gölluð.

t.d. hér

  • Axel Jóhann Axelsson
    Villandi skoðanakönnun
  • Páll Vilhjálmsson
    Bannorð aðildarsinna eru umsókn og innganga
  • Hjörtur J. Guðmundsson
    Hvers vegna var ákveðið að spyrja ekki um umsókn
  •  Skil ekki hvað er að þessum mönnum. Nú kvarta þeir yfir því að spurt er um aðildarviðræður en hvergi kemur fram umsókn og innaganga. Halda þeir að fólk sé fífl. Það vita allir að við erum búin að leggja fram umsókn um inngöngu. Og þetta eru sömu menn og fundu út að fólk vildi ekki sækja um ESB skv. eftirafarandi spurningu sem Heimssýn lagði fyrir fólk. En þarn var bara spurt um hversu mikla áherslu á aðildaviðræður. Og niðurstöður skv. þessum möguleikum voru bara að hversu mikla áherslu fólk vildi leggja á viðræður við ESB:

    heimsyn


mbl.is Meirihluti styður viðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Það er fyndið að fylgjast með þessum blindu andstæðingum... þeir geta ekki tekið lýðræðislegri niðurstöðu og unnið með hana.

Jón Ingi Cæsarsson, 30.7.2009 kl. 10:16

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Á Íslandi hefur stundum verið spurt um hvort fólk sé fylgjandi umsókn um aðild að ESB og þá hefur jafnan verið um 40 % fylgjandi og 60% andvíg. Sé spurt um aðildarviðræður eru um 60% fylgjandi og 40% andvíg. Þetta myndi ég túlka sem að um 40% sé fylgjandi og 40% sé á móti og 20% sé ekki búið að setja sig nógu vel inn í málið til að geta myndað sér samhangandi skoðun enda er umsókn um aðild og aðildarviðræður nákvæmlega sami hluturinn.

Héðinn Björnsson, 30.7.2009 kl. 10:23

3 identicon

hvaða væl er þetta í ykkur, meðstæðingum ESB

Ólafur Sveinn Haraldsson (IP-tala skráð) 30.7.2009 kl. 10:30

4 Smámynd: Pax pacis

Héðinn, án þess að hafa rannsakað það, þá finnst mér líklegt að 40% með og 60% á móti lýsi, í dag, því hvernig harðir andstæðingar eða fylgjendur skipta sér og óvissuhlutfallið sé mun meira í þeirri könnun.  Annað hvort það eða þá að fólk sé búið að gefa sér einhverja niðurstöðu úr samningaviðræðunum.

Ég held að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði 80% með og 20% á móti ef við fáum mjög góðan samning en 20% með og 80% á móti ef við fáum mjög slæman samning.  Ég held nefnilega að fólk muni taka ákvörðun eftir efnahagslegum hagsmunum en ekki eftir sjálfstæðis- eða Evrópurómantík.

Sennilega verður þetta þó nærri því að verða 50/50 þegar vegna þess að Evrópusambandið mun ekki gefa eftir meira en nauðsynlegt er og samninganefndin mun forðast að koma heim með samning sem hún veit að verður felldur.

Pax pacis, 30.7.2009 kl. 10:46

5 identicon

Hugsa ad flestir séu samþykkir umsókn og viðræðum.  Það er alveg tært.  Hinsvegar er það einnig deginum ljósara að Íslendingar munu aldrei samþykkja þann samning sem okkur verður boðið.  Við afsölum aldrei auðlindunum okkar.  ESB gerir ALDREI undantekningar fyrir okkur, það vita hugsandi menn.

Það er í góðu lagi að sækja um og bera samning undir þjóðina.  Dýrt en nauðsynlegt svo þjóðin sjái hvað er í boði.  Misskilningurinn er sá að halda það að við fáum einhverja sérmeðferð og verður því samningum hafnað.

Baldur (IP-tala skráð) 30.7.2009 kl. 11:25

6 Smámynd: Auðun Gíslason

Einsog ég geri við alla EU-sinna, þá ráðlegg ég þér að googla "eu corruption", og nota svo nokkra klukkutíma í að lesa það sem upp kemur.  Ég gerði það volgur fyrir EU, en fann út að í þetta glæpafélag vildi ég ekki ganga! Íslendingar tala fjálglega um spillinguna sem hefur viðgengist hér.  En íslenskt þjóðfélag er einsog nýþveginn barnsrass miðað við EU-löndin og sjálft EU-battaríið!  Það þrífst á spillingarstarfsemi sinni!

Auðun Gíslason, 31.7.2009 kl. 13:14

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Auðunn prófaðu að slá inn "Ísland og spilling" UN corruption og reyndar hvað sem er og lestu það sem þar kemur upp. Minni þig á að það eru 27 þjóðir sem hafa eftirlit með starfsemi ESB og viðurkenna að margt þarf að laga. Enda eðlilegt að í batteríi þar sem eru um 500 milljónir þá finnist margt sem má laga.

Magnús Helgi Björgvinsson, 31.7.2009 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband