Leita í fréttum mbl.is

Af hverju er ekki spurt hreint út?!

Andríki notar sama spurningaform og Heimsýn til að fá sína niðurstöðu þ.e.

konnun_esb

Af hverju hafa þeir ekki svarmöguleikana?.

  • Óviss
  • Nei

Þessir svarmöguleikar og úrlestur úr þeim er háður huglegu mati. T.d. hvað á fólk við með "Frekar andvígur"? Er það þá á því að þó það sé slæmur kostur að ganga í ESB þá sé það nauðsyn? Eða "Frekar hlynntur" Hvað þýðir það? Úr þessari könnun má alveg eins lesa að það séu aðeins um 29% sem eru mjög á móti því að ganga í ESB aðrir séu nú svona frekar á því.

Og eins að minnihluti þjóðarinnar sé á móti aðild að ESB þ.e. frekar andvígir og mjög andvígir = 48,5%. Öðrum er sama eða hlynntir aðild að ESB = 51,5%


mbl.is Fleiri andvígir aðild að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta sýnir hvað þjóðin vill, hún vill ráða sínum málum sjálf og sér enga þörf á að fara þarna inn.

Óskar (IP-tala skráð) 4.8.2009 kl. 10:55

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Magnús minn, þetta er gert samkvæmt forskrift Gallup, þetta á að auka nákvæmni útkomunnar. Hefurðu t.d. ekki skoðað þær skoðanakannannir sem fyrirtækið hefur gert fyrir Samtök iðnaðarins um Evrópumálin? Þar er nákvæmlega þetta sama fyrirkomulag viðhaft. Hefurðu gagnrýnt það með sama hætti? Eða skiptir máli fyrir hvern könnunin er gerð?

Hjörtur J. Guðmundsson, 4.8.2009 kl. 10:57

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Heldur þú annars að þeir sem svöruðu að þeir hefðu ekki tekið afstöðu til málsins sé þar með sjálfkrafa alveg sama um það?

Það er ýmislegt reynt

Hjörtur J. Guðmundsson, 4.8.2009 kl. 11:00

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hjörtur þau svöruðu "Hvoki né"  Og ég ítreka að það er huglægt hvað er að vera "frekar á móti" eða " mjög á móti" Og segir ekkert um afstöðu fólks. Þá íteka ég að skv. þessum niðustöðum eru um 51,5% hlynt eða sama um hvort að gengið verði í ESB. Og ég mér finnst furðulegt að svo reynt könnunafyrirtæki eins og Gallup bendi þeim sem kaupa kannanir hjá þeim ekki á að þessi gerð gefur ekki upp endanlega skoðun fólks. Ef að það ætti að vera ættu möguleikanarnir að vera: "Já" eða "nei"! Og svo "óviss"! Ef menn vildu fá nákvæmari niðurstöðu þá hefði þurftu að spyrja þá sem svöruðu "Óviss" nánar hvort þau væru frekar hlynt eða frekar á móti.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.8.2009 kl. 11:13

5 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Benedikt:
Ég veit einmitt að þetta er satt og rétt. Þess utan held ég að fyrrum embættismaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sé betur að sér í þessum efnum en þú, ekki illa meint ;)

Magnús:
Ég held einhvern veginn að þeir hjá Capacent Gallup séu meiri sérfræðingar í þessum efnum en þú. En ef þú ert allt í einu sinni ósáttur við þessa aðferðafræði núna, sem fyrirtækið hefur notað árum saman, þá liggur beinast við að hafa samband við þá og taka þá í kennslustund.

Hjörtur J. Guðmundsson, 4.8.2009 kl. 11:36

6 Smámynd: AK-72

Hver fjármagnaði þessa könnun nýfrjálshyggjumanna? LÍÚ? Sjálfstæðisflokkurin? Heimssýn? Náhirð Davíðs Oddsonar?

Ég kaupi það allavega ekki að þier hafi fjármagnað hana sjálfir.

AK-72, 4.8.2009 kl. 12:10

7 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Hvaða máli skiptir hver fjármagnaði þessa könnun.

Jóhannes H. Laxdal, 4.8.2009 kl. 12:58

8 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

AK-72:
Hver er punkturinn hjá þér? Að Capacent Gallup hafi verið mútað?

Má ekki hver sem er láta gera skoðankönnun fyrir sig hér á landi?

Hjörtur J. Guðmundsson, 4.8.2009 kl. 13:06

9 Smámynd: Fannar frá Rifi

dæmigerð málefnaþurð af ESB sinna í vanda. ef ekki tekst að koma með rök þá er skítkast og ófrægingarherferð hafin til að rýra þá sem gera könnunina. niðurstöðunum er síðan hennt ofan í skúffu.

er málstaður ykkar esb sinna svo slæmur að þið gætið ekki rætt niðurstöður skoðannakannana sem er ykkur ekki í hag án þess að fara í skítkast og beita smjörklípu aðferðum? er málefna þurð ykkar algjör?

Fannar frá Rifi, 4.8.2009 kl. 13:20

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þetta eru nú ekki rök Fannar! Það er ekki hægt að lesa marktæka niðurstöðu úr svona spurningum? Minni aftur á að það er hægt að túlka þessa niðurstöðu þannig að 51,5% séu ekki á móti aðildarviðræðum. Það er ef við tökum Mjög hlynta + frekar hlynta + hvorki né saman.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.8.2009 kl. 13:45

11 Smámynd: AK-72

Hversvegna má ekki spyrja hvaðan lítil, ómerkilegur vefur öfgafrjálshyggjumanna sem berjast fyrir fyrirtækjaræði framar þjóðarhag og spillingu framar almannahagsmunum, skuli hafa talsvert fjármagn til að kaupa skoðanakannanir? 

Er ekki ágætt að fá það á borðið hvaðan þessir talsmenn(og jafnvel þáttakendur?) þeirra afla sem knésettu þjóðina, segi okkur hvaðan þeir fái fjármagn?

Ég ákvað að velta þessum spurningum upp þar sem hún heyrist oft úr horni ESB-andstæðnga þegar kemur að könnunum sem þeir fíla ekki.

AK-72, 4.8.2009 kl. 14:11

12 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Veit nú ekki um marga úr okkar (þ.e. þeim sem eru á móti ESB aðild Íslands) röðum sem eru að spyrja útí hvaðan ESB aðildarsinnar fái sinn pening,  ekki það að ég hafi verið að veita því sérstaka eftirtekt. Við vitum alveg hvaðan þeir fá sitt fjármagn.

Jóhannes H. Laxdal, 4.8.2009 kl. 14:51

13 Smámynd: AK-72

Við getum þá alveg bókað það semsagt miðað við AMX sé að segja slíkt um ESB-sinna,  að greiðslur Andríkis og ESB-andstæðinga komi frá LÍÚ og Sjálfstæðisflokknum, allavega þeim öfga-armi sem kennd er við náhirð Davíðs Oddsonar sem hefur knésett þjóðina og vilja viðhalda hér óbreyttri spillingu vinum og vandamönnum til góða.

AK-72, 4.8.2009 kl. 15:11

14 Smámynd: AK-72

Við getum samt alveg bókað það að þessi skoðanakönnun hefði aldrei birst ef niðurstöðurnar væri ekki "réttar". Öfgafrjálshyggjumönnum á Vef-Þjóðviljanum hefðu aldrei birt neitt slíkt sem væri á skjön við áróðurinn gegn ESB sem sá vefur stendur fyrir.

AK-72, 4.8.2009 kl. 15:15

15 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég veit ekki hverju ég hefði svarað!

Kannski bara, hvorki né, því ég hef ekki enn séð aðildarsamninginn!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 4.8.2009 kl. 16:47

16 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

AK-72:
Hvaðan einhverjir peningar koma, hvaða máli skiptir það hvað þessa skoðanakönnun varðar? Rýrir það gildi hennar að þínu áliti? Eru vinnubrögð Capacent Gallup eitthvað minna fagleg fyrir vikið?

Ég tek annars undir með Jóhannesi, ég man ekki eftir að hafa séð nokkurn sjálfstæðissinna gagnrýna skoðanakönnun út frá því hvernig hún væri hugsanlega fjármögnuð.

Þess utan eru skoðanakannanir fyrir Evrópusambandssinnaða aðila yfirleitt gerðar fyrir Samtök iðnaðarins sem hafa um árabil beitt sér afgerandi fyrir inngöngu í Evrópusambandið og það er auðvitað alveg opinbert hvaðan þeirra fjármagn kemur, í gegnum félagsfjöld sem öll iðnfyrirtæki í landinu þurfa að greiða til þeirra. Samt eru a.m.k. 30-40% slíkra fyrirtækja andvíg inngöngu í sambandið skv. skoðanakönnunum samtakanna sjálfra.

Þess utan ef við förum að tala um fjármögnun þá eru Evrópusamtökin íslenzku hluti af evrópsku samtökunum European Movement sem berjast fyrir því að breyta Evrópusambandinu í sambandsríki. European Movement hafa í áraraðir fengið ríkulega fjárstyrki frá framkvæmdastjórn sambandsins til starfsemi sinnar.

Hjörtur J. Guðmundsson, 5.8.2009 kl. 10:36

17 Smámynd: AK-72

Þér er tíðrætt um fjármögnun Evrópusinna þannig að það er fullkomlega eðlilegt að fá það upp á borðið hverjir fjármagna fámenna öfgahópa á borð við Andríkis-menn og aðra slíka sem eru með fyrirfram mótaðar skoðanir í þessum málum. Ég er nefnilega fullviss um það að þeir aðilar sem vilja viðhalda hér spilltu og rotnu kerfi fáum til góða, þ.e. LíÚ, Sjálfstæðisflokkurinn og sérstaklega náhirð hrunvaldsins Davíðs Oddsonar, standi á bak við þessa öfgafrjálshyggjumenn.

En við getum bókað eitt, þessi könnun hefði aldrei birst nema tryggt væri að "rétt niðurstaða" kæmi fram í henni. Ef sambærileg könnun hefði birst frá Evrópu-sinnum, þá væruð þið öfgafrjálshyggjumennirnir og hrunvaldarnir, grenjandi um að könnunin væri illa unnin, fölsuð og keypt af Evrópusambandinu og jafnvel viðrað afhausanir á Evrópusinnum líkt og einn öfgamaðurinn ESB-andstæðinga megin hefur tjáð sig um.

AK-72, 5.8.2009 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband