Leita í fréttum mbl.is

Húrra fyrir Steingrími og Jóhönnu!

Held að fólk ætti kannski að breyta um núna og mæta niður Austurvöll og hylla þau bæði fyrir staðfestuna við að ná eins góðum samningi og hægt var við þessar aðstæður sem vð búum við í dag.

Sagði Steingrímur, að niðurstaðan fæli í sér að gerður verði viðaukasamningur við Icesave-samninginn frá í sumar. Inn í þann samning gengju að uppistöðu til allir fyrirvarar og skilmálar Alþingis úr lögunum, sem sett voru 23. ágúst um ríkisábyrgð vegna skuldbindinganna. 

Þá féllust Bretar og Hollendingar á fyrirvara sem lúti að fullveldi og eignum landsins. Einnig verði þeir efnahagslegu fyrirvarir, sem Alþingi gerði, felldir inn í samninginn. 

Held að margir sem hafi tjáð sig um þau og embættismenn sem hafa unnið að þessu samkomulagi mættu skammast sín núna.

Við fáum inn alla fyrirvara okkar. Við fáum inn að þeir opna á dómstólaleiðina ef við það kjósum. Við fáum að borga lánin skv. uppsöfnuðum hagvexti allt að 6%. Við fáum val um hvort að við lengjum í láninu 2024.

Þetta Icesave er andskotans leiðindamál sem við þurftum að leysa og þau hafa staðið sig vel.


mbl.is Lengra varð ekki komist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við höfum verk að vinna og þessi lausn er ásættanleg fyrir land og þjóð. Málið í heild er eitt skítamál sem XD og XB komu okkur í þó þeir neiti að axla ábyrgð og leita lausna. Ég er ekki ánægður með þessa lausn en hún er það eina skynsamlega í stöðunni. Annað er bara auðn og gjaldþrot

Svarar Jónsson (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 16:32

2 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Við fáum ekki alla fyrirvarana, þetta er sorglegt hvað hvað þau aumingjast að standa í lappirnar og fara eftir því þverpólítíska samkomulagi sem var um fyrirvarana.

Carl Jóhann Granz, 18.10.2009 kl. 16:32

3 identicon

Fram kom í máli Steingríms, að í yfirlýsingu fjármálaráðherra landanna verði tekið fram að Bretland og Holland hafi m.a. annars fallist á þá efnahagslegu skilmála sem settir voru með lögunum um ríkisábyrgðina í sumar og að Ísland hafi endurnýjað skuldbindingar sínar til að ábyrgjast skuldbindingar Tryggingarsjóðs innistæðueigenda án þess að í því felist viðurkenning á að lagaleg skuldbinding hafi verið til staðar.

skemmtilegt

Sindri Jóhannsson (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 16:33

4 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Í þínum sporum þá fengi ég mér ný gleraugu eða skipti um pólítíska sýn

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 18.10.2009 kl. 16:36

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Carl ef þú hefðir hlustað á fréttamannafundinn þá eru nær allir fyrirvarar okkar inni. Og þeir sem eru ekki inn að fullu er samt þannig að okkur bjóðast kostir í staðinn.

Og Sindri á móti samþykkja þeir að við leitum réttar okkar fyrir dómsstólum!

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.10.2009 kl. 16:37

6 identicon

Mikið rosalega ert þú vitlaus maður

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 16:39

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gísli sömuleiðis! Þú er náttúrulega einn af þeim sem vantar alveg raunverueikaskin. Eins og fleiri hér á blogginu! Heldur að innlegg nokkura lögfræðinga sé þess virði að fara í stríð við Bretland og Holland án þess að hafa nokkra vissu fyrir niðurstöðunni. Og það fyrir land sem var á barmi gjaldþrots. Ég ætla ekki að skipta um skoðun því að ég vill að þó okkar kynslóð hafi klúðrað málum, þá verðum við búin að gera eins gott úr þessu þegar að dætur mínar fara að eignast fjölskyldur. Ég ætla þessvegna ekki að láta einhverja labbakúta koma okkur út úr samskiptum við umheiminn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.10.2009 kl. 16:41

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Árni Karl ef þú verður ekki málefnalegri þá set ég stopp á að þú getir komið hér með athugsemdir vitleysingurinn þinn. Þú ert leiðinlegur og hefur ekkert merkilegt fram að færa.

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.10.2009 kl. 16:43

9 identicon

Magnús þú ert umtalaður sem það heimskasta fyrirbrygði sem sést hefur hér á blogginu,og blessaður lokaðu á mig ég nenni hvort eð er ekki að eiða fleiri orðum á þig aulinn þinn.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 16:48

10 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

"Nær allir" fyrirvara inni er ekki það sem Alþingi samþykki.  Hugsaðu aðeins um það Magnús.

Magnús, ef þú vilt bara fá Já bræður þína hingað inn þá áttu að loka síðunni þinni. 

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 18.10.2009 kl. 16:49

11 identicon

Árni og Magnús eruð þið 5 ára ? kallið hvorn annan vitleysing, heimskingja og aula. Rosalega þroskað

Henning Árni (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 16:56

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Árni Blessaður hættu þá að trufla mig og lestu eitthvað annað. Og þetta er bloggsíðan mín og ég hef fullt frelsi til að hafa mínar skoðanir. Og ef ég væri viðkæmur fyrir áliti þínu og annarra mundi ég bara ekki blogga. Ekki er nú bloggið þitt merki um að þú sért mikil mannvitsbrekka. Og er ég ekki að svekkja mig á því sem þú segir. Þessr færslur ber þess merki að þú sért sennilega í Grunnskóla þar sem það þykir flott að uppnefna aðra til að fela að maður veit ekkert hvað maður er að tala um

Maður er farinn að efast um andlegt heilbrigði Steingríms Júdasar Sigfússonar
18.10.2009 | 14:17
Mjög góður samningur segir Steingrímur. Mannleysan ætlar að fórna öllu til að sitja í sínum Ráðherrastól. Mannleysan er svikari við þjóð sína og sjálfan sig. Hanns verður minnst sem mesta aumingja og svikara Íslandsögunar. Maðurinn er RÆFILL
Allir niður á Austurvöll kl.16 í dag til þess að mótmæla landráðum
Samspillingar og Vinstri Snú Snú
18.10.2009 | 14:04
Helvítins fokking fokk.Það á að svifta þetta lið Ríkisborgararéttindum sínum og reka úr landi. Steingrímur Júdas og Jóhanna lygari eru þjóðarskömm.
Nú þarf byltingu strax
18.10.2009 | 00:08
Strax á mánudagsmorgun skulum við Íslendingar fjölmenna niður í Stjórnarráð og gríta þessum aumingjum út. Þetta helvítins landráðapakk þarf að fara frá strax. Andskotans aumingjar eru þau skötuhjú Steingrímur Júdas Sigfússon og lygarinn Jóhanna. Það er skömm að þessu landráða pakki.
Steingrímur Júdas Sigfússon bíður og bíður
16.10.2009 | 19:23
Það er með ólíkindum hvað þessi maður ætlar að leggjast flatur fyrir Englendingum og Túlipönum. En þessi sami maður veigrar sér ekki við að ráðast á ellilífeyrisþega og öryrkja. Ég hef megna skömm á þessum ræfli.
Jæja Jóhanna við bíðum eftir bréfinu
11.10.2009 | 15:00
Ekkert bolar á byrtingu tölvubréfsins sem Jóhanna ætlaði að byrta í gær.Er Hrannar svona lengi að hagræða sannleikanum?.Eða er þetta enn ein lygin í Jóhönnu?.
Steingrímur enn og aftur með hræðsluáróður
7.10.2009 | 19:40
Allar lánalínur lokast ef við göngumst ekki við Icesave segir Steingrímur J .Hverju eigum við að trúa frá manni sem ítrekað hefur verið staðinn að því ljúga af þjóðinni?.

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.10.2009 kl. 17:00

13 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Henning Árni (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 16:56

Það bara fauk í mig og ég svaraði. Hefði bara átt að henda honum út en hef ekki þurft þess hingað til og læt hann ekki æsa mig aftur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.10.2009 kl. 17:03

14 identicon

Hvernig er hægt að sætta sig við allar skatthækkanir og afturald?

hvernig er hægt að sætta sig við að Jóhanna og hennar fólk sé að reyna að selja Íslands til ESB ?

 hvernig er hægt að sætta sig við að borga Ice-slave til 2040 í versta falli ?

 hvernig er hægt að sætta sig við að vera með stjórnvöld sem eru á móti grænni orku sem sagt álver ?

 hvernig er hægt að sætta sig við lausnir sem þau hafi boðið uppá fyrir landsmenn í bankamálum ?

Hvernig er hægt að sætta sig við að borga skuldir fyrir einkabanka ?

hvernig er hægt að sætta sig við aðförinna að íslandi sem að ESB lönd og norðurlönd eru búin að gera ?

hvernig er hægt að sætta sig við að öll þessi ríki eru búin að gefa okkur fingurinn ?

 Ef maður getur sætt sig við þetta þá hefur maður ekki þroskast eðlilega.

Gunnar Svanberg Jónsson (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 17:27

15 identicon

Góður pistill Magnús. Þú kannt að svara þessum Davíðs- ofsatrúarmönnum.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 17:30

16 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hvernig tengir þú skattahækkanir nú við Icesave Gunnar Svanberg. Við byrjum ekki að borga það fyrir en eftir 7 ár. Skattahækkanir nú eru vegna þess að Seðlabankin var gjaldþrota eftir að hafa leyft erlendum aðilum að kaupa af honum "Ástarbréf" þ.e. innistæðubréf í stað Jöklabréfa upp á 300 milljaðra, eftir að seðlabankai fór að stunda það að lána bönkunum í gegnum Icebank og fleiri með veðum í bréfunum sjálfum. Þetta er í dag að kosta okkur allar skattahækkaninar vegna þess að ríkið þurfti að dæla peningum í Seðlabankan sem ekki hafið staðið sig í aðhaldi með bönkunum. T.d. var innstæðutrygginarsjóður á vegum Seðlabankans og starfsmenn hans voru líka starfsmenn Seðlabanka.

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.10.2009 kl. 17:39

17 identicon

Ríkiskassinn þarf að fitna áður svo ísland geti borgað eitthvað eftir 7 ár Capiss. þannig tengi ég skattahækkanir við Ice-slave samningin.

ég er ekki á móti öllum skattahækkunum en tel að Ríkiskassinn geti fitnað á fiskveiðum og sölu á orku einnig hverskins útflutningi og jafnvel olíu í framtíðinni. Það þarf ekki að níðast á íslendingum með sín lélegu laun. 

launaseðill hjá vélstjóra með 800.000 í laun þarf að borga rúmlega 300.000 í skatt + gjöld finnst þér það eðlilegt ? Maður sem að fórnar sér fyrir fjölskyldu og land, nei segi ég þetta er algjört virðingaleysi gagnvart þegnum landsins.

en endilega svaraðu restinni að spurningum mínum :)

kv,

Gunnar Svanberg Jónsson (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 18:33

18 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Kúgun og ekkert annað.

Sigurður Haraldsson, 19.10.2009 kl. 01:47

19 identicon

Magnús.

Samkvæmt þessum nýja samningi þá skiptir engu máli hvernig niðurstaðan fer ef við förum með málið fyrir dómstóla, ekki neinu, svona svipað og þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB, skiptir ekki nokkru máli.

Annars skuldar íslenska ríkið svo mikið að IceSlave er dropi í hafið.

Heilir og sælir.

Sindri Jóhannsson (IP-tala skráð) 19.10.2009 kl. 03:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband