Leita í fréttum mbl.is

Trúarbrögđ eru orđin eitt af stćrstu vandamálum mannkyns.

Sammála ţessu hjá Jónasi Kristjánssyni:

04.01.2007
Trúin er skćđ
Stríđiđ milli Eţiópíu og Sómalíu er stríđ milli kristinna og múslima. Flest stríđ í heiminum hafa runniđ í ţann farveg síđasta hálfan annan áratug. Balkanstríđin fyrir áratug voru stríđ orţódoksa, kaţólikka og múslima. Borgarastríđin í Líbanon hafa veriđ milli kristinna og múslima. Stríđiđ gegn Írak og Afganistan eru krossferđir kristins Bandaríkjaforseta gegn múslimum. Um leiđ og deilur heimsins komast í klćr hinna trúuđu, er vođinn vís. Trúarbrögđ eru orđin eitt af stćrstu vandamálum mannkyns. Undir skikkju ţeirra eru mestu vođaverkin framin.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú virðist stundum vera ágætur maður Magnús þannig ekki binda trúss þitt við Jónas K hann er ekki alveg heima og hefur margt á samviskunni sem fyrrverandi ritstjóri DV. Trúabrögðin eru ekki vandamálið , það er maðurinn. Stríðið í írak og Afganistan er ekki krossferð ég meina come on

Ehud (IP-tala skráđ) 4.1.2007 kl. 13:51

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ehud ég les bara Jónas mér til skemmtunar. Ég er ekki alltaf sammála honum. Í Írak eru nú einmitt vandrćđi milli trúarhópa/ţjóđarbrota Súnnitar sítar og Kúrdar. Og ţađ sem ađgreinir er m..a mismunandi áherslur í trúarbrögđum. Í Afganistan eru ţađ öfgatrúarmenn sem komu öllu af stađ Talíbanar og ţví sé ekki ađ trúinn komi ekki ađ ţessu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.1.2007 kl. 17:50

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ţađ er líklega rétt hjá Ehud, ađ ţú sért "ágćtur mađur," ţ.e.a.s. vel meinandi, Magnús, en ţađ bjargar hvorki stafsetningunni né ţínum skráđu skođunum frá villu. Og til lítils er fyrir ţig ađ vera sammála ţessu hjá ţeim stóryrta Jónasi, ef hann veđur í villu og svíma. Á BBC WS heyrđi ég fulltrúa Eţíópíustjórnar hafna ţví algerlega, ađ ţetta vćri stríđ kristinna gegn múslimum, enda vćri meiri hluti Eţíópíubúa múslimir. En uppreisnaröflin í Sómalíu eru harđlínu-islamistar, og ţađ eru ekki ađeins kristnir, sem óttast slík öfl, heldur einnig hófsamir múslimir, bćđi vel trúađir (s.s. í Saúdí-Arabíu) og hinir sem teljast heldur veraldlegri (s.s. í Egyptalandi).

"Stríđiđ gegn Írak og Afganistan eru krossferđir kristins Bandaríkjaforseta gegn múslimum" -- ţvílíkt rugl í manninum! Og hvađa "stríđ" er hann ađ tala um í Írak? Ţar ríkir ekki stríđ, engar hernađarađgerđir t.d. af hálfu Bandaríkjamanna, engum her fylkt til sóknar í eina né ađra átt allt frá umsátrinu um Fallujah, heldur friđargćzla, sem rofin er annađ veifiđ međ hryđjuverkum, ekki sízt sjálfsmorđssprengjumanna.

Og svo er ţađ rúsínan í pulsuenda Jónasar: "Trúarbrögđ eru orđin eitt af stćrstu vandamálum mannkyns. Undir skikkju ţeirra eru mestu vođaverkin framin." -- Hér er ekki ađeins um mikla einföldun ađ rćđa, heldur einfeldni. Hann gćti allt eins sagt og miklu fremur: "Stjórnmál og stjórnmálastefnur eru orđin eitt af stćrstu vandamálum mannkyns. Undir skikkju ţeirra eru mestu vođaverkin framin." En eins og ţađ er alls ekki sanngjarnt ađ fella allar stjórnmálastefnur undir einn hatt og fordćma ţćr en messe, ţannig er ţađ heldur ekki rétt ađ fella öll trúarbrögđ undir sama hattinn og skella sömu fordćmingunni á ţau öll í heild. Ef ţađ ćtti ađ teljast sanngjarnt, mćtti ég ţá biđja um, ađ anti-Ameríkanisminn, sem ćđir um íslenzkar bloggsíđur og hvern kjaftaţáttinn eftir annan, fái ađ falla undir ţann hattinn líka, enda eru ţetta orđin hrein trúarbrögđ hjá mönnum á borđ viđ Jónas Kristjánsson.

Jón Valur Jensson, 4.1.2007 kl. 18:34

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Takk Jón Valur fyrir ađ fylgjast međ stafsetningunni hjá mér. Hún truflar mig lítiđ ţegar ég skrifa hérna inn. Enda er ég ekki mikiđ fyrir ađ lesa yfir ţegar skrifa á bloggiđ mitt. Ţađ er helst ţegar ég verđ var viđ ađ fólk misskilur ţađ sem ég er ađ segja vegna ásláttar og/stafsetningar ađ ég laga ţađ. En ţađ er líka vert ađ hugsa um ţađ afhverju fólk er á móti Bandaríkjamönnum og hegđun ţeirra. SKođun ţín er nokkuđ ljós hún kom vel fram á döguunum fyrir innrásina í Írak ţar sem ţú slóst um ţig međ tilvitnunum hingađ og ţangađ sem ţú taldir sýna svo ekki vćri hćgt ađ deila um ađ Saddam sćti á ţvílíku búri af efna og gjöreyđingarvopnum ef ég man rétt. Ţannig ađ ţađ eru sjálfsagt alltaf 2 hliđar á öllum málum og svo fólk sem fylgir hvorri hliđ.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.1.2007 kl. 19:12

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég gekk út frá ţví sem vopnaeftirlitsnefnd SŢ og Öryggisráđ SŢ gengu út frá og m.a.s. Hans Blix örstuttu fyrir innrásina. Víst var, ađ írösk stjórnvöld höfđu alls ekki gert grein fyrir allverulegum birgđum af efnavopnum, nćgum til ađ drepa allt mannkyn nokkrum sinnum, og ţađ olli mönnum ugg og var međal ţeirra hluta sem Öryggisráđ SŢ hafđi gegn Írak í síharđnandi samţykktum (resolutionum) ráđsins allt fram undir stríđiđ. En ekki sló ég um mig, heldur kom ţví á framfćri sem ég vissi eđa taldi mig vita skv. erlendum heimildum. Ţessi atriđi snerta reyndar ekki ţann kjarna í máli Jónasar hér ofar, ađ trúarbrögđum sé kennt um "mestu vođaverk" mannkyns á síđustu 15 árum.

Svo vil ég taka ţađ fram, ađ ég vil ekki gera lítiđ úr ţér međ aths. minni um stafsetningu ţína hér ofar, heldur ber ađ taka hana sem vinsamleg tilmćli um ađ ţú lesir yfir innleggin, áđur en ţú leyfir ţeim ađ taka flugiđ út í loftiđ.

Jón Valur Jensson, 4.1.2007 kl. 20:02

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég er ekkert sérstaklega hörundsár var bara ađ skýra ađ ég vill frekar koma frá mér ţví sem ég er ađ hugsa heldur en ađ bíđa. Hef ekki alltaf tíma.

Ég fylgdist vel međ á ţessum tíma og veit alvegt hvernig málin ţróuđust. Og veit ađ ţú er mađur sem sekkur sér í málin. En eins og ég ţá tókst ţú einarđa afstöđu og horfđir helst í rökin frá hliđ USA á međan ađ ég horfđi á ţessi rök og andúđ mín viđ ađ ađrar ţjóđir sér í lagi ţjóđir sem eru mörg ţúsund km. og handan viđ haf séu ađ ráđsta á ađrar ţjóđir jafn vel gegn vilja alţjóđasamfélagsins. Ţannig er ţetta bara, menn skođa hlutina út frá mismunandi sjónarhorni.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.1.2007 kl. 22:02

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ţeir voru ekki ađ ráđast á ţjóđ, heldur ríkisher og felldu um sex til sjö ţúsund manns af honum, ţar til hann gafst upp. Eftirleikurinn er svo allt annar handleggur og blóđugri, en fólst ekki í hernađi Bandaríkjamanna og bandamanna ţeirra gegn ţjóđinni, eins og menn eiga ađ vita. Ţakka ţér svo spjalliđ um ţetta mál.

Jón Valur Jensson, 4.1.2007 kl. 22:29

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara gaman ađ spjalla. Takk fyrir sömuleiđis

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.1.2007 kl. 22:32

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging viđ twitter

Um bloggiđ

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband