Leita í fréttum mbl.is

2/3 ekki á því að Ólafur eigi að hætta!

Þetta og margt annað sem hefur komið ljós núna upp á síðkastið sýnir okkur vel að þeir sem byggja allar sínar upplýsingar af blogginu fá ekki rétta mynd af vilja þjóðarinnar. Ef maður þekkti hér ástandið hér á landi bara af lestri þess sem kemur fram t.d á eyjan.is og þeim sem blogga þar sem og hér á blog.is hefði maður haldið að um 80 til 90% landsmanna vildu Ólaf burt.

Þetta segir okkur að netið endurspeglar ekki vilja þjóðarinnar og er ekki réttur þverskurður af þjóðinni. Sem og að áróður manna gegn Ólafi m.a. í Morgunblaðinu og mönnum þeim hóp tengdum er ekki að skila sér. Enda finnst manni ódýrt að kenna nokkrum heimsóknum Forsetans til útlanda um hrunið.


mbl.is Þriðjungur vill forsetann frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þórðarson

Forsetinn neitaði eitt sinn að skrifa undir lög. Veltu þessu fyrir þér, hvaða hvatir lágu að baki og hvaða afleiðingar þetta hafði, og hvaða ljósi það varpar á hann.

Hörður Þórðarson, 8.11.2009 kl. 19:14

2 identicon

Hann staðfesti nú líka lög um daginn, sem mun meiri ástæða hefði verið til, að vísa í þjóðaratkvæði. Eftir þann gjörning fæ ég ekki skilið að svona margir vilji hafa hann lengur í embætti.

Sigurgeir (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 19:22

3 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

1) Hörður, forsetinn vísaði lögunum til þjóðarinnar.  Forseti getur ekki stöðvað lög.  Hann getur annað hvort staðfest þau EÐA vísað þeim til þjóðarinnar.  Það gerði hann.

Það var hins vegar ríkisstjórnin sem dró lögin til baka.  Það er mikilvægt að hafa þetta á hreinu.

2) Ég held reyndar að það sé langt síðan Ólafur hefur fengið aðra eins stuðningsyfirlýsingu og þessa könnun.  Það hefur alltaf verið þriðjungur sem ekki hefur viljað hann, þ.m.t. Davíð Oddsson og félagar.  Eins og aðrar stofnanir þjóðarinnar hefur forsetinn verið að fá slæma útreið þegar kemur að trausti á stofnunum og aðilum víða um þjóðfélagið.  Einnig hefur mikið verið baunað á hann á vefsíðum, í fjölmiðlum og víðar.

Það kemur því hálfpartinn á óvart hversu víðtækan stuðning hann hefur meðal þjóðarinnar eftir allt sem á undan er gengið.  Þetta ætti að blása honum byr í brjóst enda hefur verið hálf vængbrotinn undanfarið og á þá ekki við handlegginn.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 8.11.2009 kl. 19:26

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hörður þegar að forsetinn neitaði að skrifa undir þá var alveg ljóst að þessu fjölmðlafrumvarpi var ekki ætlaða að laga eitt né neitt heldur var bara beitn gegn fréttablaðinu. Og þegar forseti skrifar ekki undir átti skv. stjórnarskrá að bera málið undir þjóðina en ríkisstjórnin kaus að draga málið til baka. Þannig að það var ríkisstjórnin sem kom í veg fyrir að þjóðin fengi að ákveða þetta. Og eins að það er ekki hægt að kenna fjölmiðlum um hrunið nema smá hluta. Bendi þér t.d. á að ríkið rekur Sjónvarp og útvarp. Og eins að það voru kannski einhverjir útrásaeigendur sem áttu meirihluta í fjölmiðlum en það var ekki sami hópurinn. Þannig voru andstæðir pólar sem áttu sitthvora fjölmiðla blokkina.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.11.2009 kl. 19:27

5 identicon

62% vilja hann ekki frá og 10% er alveg sama.
Þá eru eftir 28%.
Það kallar Mogginn þriðjung og tæpan þriðjung.
28% er nær því að vera fjórðungur (25%) en þriðjungur (33%).
Hvað segir þetta um Moggann?

Magnús (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 20:44

6 Smámynd: Hörður Þórðarson

62% vilja hann ekki frá og 10% er alveg sama.
Þá eru eftir 28%.
Það kallar Mogginn þriðjung og tæpan þriðjung.
28% er nær því að vera fjórðungur (25%) en þriðjungur (33%).
Hvað segir þetta um Moggann?

Ég spyr frekar, hvað segir þetta um þjóðina?

Segjum svo að ég vilji snúa þjóðinni á sveif með mér svo að ég geti stundað vafasama kaupmennsku óáreittur. Ég sannfæri aðila um að lána mér háar fjárhæðir og ég fer að dreifa blaði inn á öll heimili í landinu og sníð það sem þar kemur fram á þann hátt að efla stuðning við mig. Að auki stofna/kaupi ég útvarps og sjónvarpstöð í sama tilgangi. Í einu vetvangi hef ég sölsað undir mig stóran hluta fjölmiðla landsins og náð stórkostlegum áhirfum.

Nú vaknar ríkisstjórnin upp við vonand draum og vill kveða niður þetta afl sem er nú orðið áhrifameira en stærstu stjórnmálaflokkar landsins. Ríkisstjórnin vill setja lög til að stöðva þetta. Til að koma í veg fyrir þetta fæ ég forseta landsins á sveif með mér, hann neitar að undirrita lögin og "vísar þeim til þjóðarinnar", sem ÉG hef nú þegar haft sterk áhrif á með mínum fjölmiðlum. Þeim min sterkari sem mínir fjölmiðlar eru, þeim mun minni líkur eru á að þjóðin samþykki lög sem takmarka starfsemi þeirra.

Sumir kunna að segja að íslendingar láti ekki leiða sig eins og heimsk naut og að þeir séu færir um að mynda sínar eigin skoðanir, hvað sem bleðill sem borinn er út til þeirra á hverjum degi kann að segja. Ég vil benda þeim á nýliðna atburði sem sanna svo ekki verður um vilst að þessir sumu eru á villigötum. Fólk lætur að miklu leiti stjórnast af því sem það les, sér of heyrir og ef óvandaðir aðilar hafa of greiðan aðgang að fólki er voðinn vís. Þeir sem ekki sjá það að svo komnu máli eru annað hvort blindir eða vilja ekki sjá.

Hörður Þórðarson, 8.11.2009 kl. 22:42

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bíddu ekki segja að að þetta hafi verið Ólafi að kenna. Aðal ástæðan fyrir hurninu er sú að ákveðinn flokkur hafði það á stefnuskrá leynt og ljóst að afnema það sem þeir kölluðu "eftirlitsiðnað". Þessi ákveðni flokkur sagði það m.a. í áliktun á Landsfundi 2007 að draga bæri úr opinberu eftirliti þar sem að fyrirtækin sjálf væru betur til þess hæf með "innra eftirliti" Því það væri þeirra hagur að fara að lögum.

Fjölmiðlalöginn eins og þau voru bönnuðu að menn ættu meira en 25% í fjölmiðli. Þar með hefði t.d. Útvarp Saga orðið ólögleg. Eins var fyrirséð að ýmsir fjölmiðlar hefðu lagst af. Löginn vor nær sniðin að því að eignarhald á Mogganum þyrfti ekki að breytast. Ríkisstjórn var í lófalagið að breyta lögunum og leggja þau aftur fram en Davíð fór í fýlu og hætti bara við allt.

Og enginn hefur gengið svo langt að kenna fjölmiðlum um. Það var eftirlitið, stjórnvöld og alþingi sem klikkaði sem og þessir brjálæðingar sem fengu bankana gefins.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.11.2009 kl. 22:59

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Minni þig líka á að í fjölmiðlum birtust viðvaranir alveg frá því 2005 en það vildi enginn hlutsta á þá. T.d. fréttir frá Danske Bank og fleirum. Við vildum bara ekki trúa þessu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.11.2009 kl. 23:01

9 identicon

hvað hefur þessi tækifærissinni til brunns að bera ? Hann er bara falskur

og ómerkilegur, skipti um ham á einni nóttu hætti allt í einu öllu skítkasti og gerðist mildur og blíður og bauð sig fram til forseta daginn eftir (skítseyði)

axel (IP-tala skráð) 8.11.2009 kl. 23:14

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ja ég er ekkert að segja að Ólafur hafi verið fullkomin forseti eða besti maður í djobbið. En ég er hinsvegar á því að kenna honum um hrunið hér og allt sem miður fer sé leið sem haturs menn hans nota til að koma á hann höggi. Auk þess sem að ýmsir eru farnir að trúa þessum áróðri. Menn algjörlega búnir að gleyma því að forseti hér hvorki gerir samninga við önnur lönd, erlend fyrirtæki eða semur lög. Því finnst mér ósanngjarnt að kenna honum um hrunið og í raun leið fólks til að velta vandanum af þeim sem raunverulega eru sekir um mistökin.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.11.2009 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband