Leita í fréttum mbl.is

Og hvað ætla menn að gera með málið í nefnd?

Held að allir viti að þessu máli verður ekki breytt! Er farinn að halda að stjórnarandstaðan vilji bara ekki að við komumst út úr þessu. Þetta mál hefur nú verið rætt í 6 mánuði á þing. Maður hefði haldið að þessi álita mál væru nú svo mikið á hreinu að þau hafi komið í umræðuna áður. Þá finnst mér rök þessa Gross hæpin þegar hann talar um um að innistæðutryggingarsjóður hér ætti að fá sömu kjör og Breta rukka sinn sjóð um. En hann sem fulltrúi í Seðlabankaráði hlýtur að vita að menn bæði í Hollandi og Bretlandi meta hættuna á að við getum ekki borgað töluvert meiri en þeirra innistæðutryggingarsjóðs. Og eins hlýtur maðurinn að vita að í dag er skuldatryggingarálag á Íslenska ríkið um 380 punktar. Og var enn hærra þegar þessi samningur var gerður.

Nei ég held að menn séu bara að tefja málið til að auka líkurnar á að stjórnin falli.


mbl.is Vilja Icesave aftur í nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Málið er að ný gögn og staðreyndir eru farin að líta dagsins ljós að þingmenn stjórnarandstöðunnar vilja notfæra sér nefndarstörfin og frekari umræður um málið til þess að fá einhverja í ríkisstjórnini til þess að kjósa á móti þessu frumvarpi.

Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru eðli málsins samkvæmt ekki nógu margir til þess að geta upp á sitt einsdæmi fellt frumvarpið.

Því tek ég því fagnandi að einhverjir standi með hagsmunum þjóðarinnar og láti ekki ríkisstjórnina samþykkja þetta frumvarp.  Ef það leiðir til þess að ríkisstjórnin falli áður en hún nær að samþykkja þetta frumvarp þá fagna ég því ennþá meira því þessi ríkisstjórn hefur ekkert gert nema kæfa eftirlifandi fyrirtæki með sköttum og aukagjaldliðum, skert samkeppni og aukið á vandan með aðgerðarleysi.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 16:33

2 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Til að hafa langt svar stutt þá er að sjálfsögðu eina vitið að fara með það í nefnd og svæfa það þar. Gamalt og gott bragð sem svíkur aldrei.

Sindri Karl Sigurðsson, 24.11.2009 kl. 16:49

3 identicon

Ekki verður síðasta útspilið til að fleiri V-G liðar fari í fæðingarorlof....

Það sem Nornin er nú að bíða eftir er að Nágrímur (sem er orðinn svar-bleikur eða jafnvel ljós rauður) snúi uppá síðustu kosningaloforð sís flokks til þess eins að láta gamlann draum um kommúnisma rætast en gerir sér ekki grein fyrir að strax og Nornin hefur allt sitt í gegn er í raun ekki kommúnismi hér heldur einvald.

Svo voru einhverjir að hvarta yfir Dabba greyinu!!!

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 23:51

4 identicon

Arnar.

Andstaðan er ekki næg til að fella og stjórnin ekki nógu samstíga til að koma í gegn.

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 23:52

5 identicon

Óskar andstaðan er ekki næg þar sem stjórnarandstaðnn er minni heldur en stjórnarflokkarnir.

Ögmundur og Guðfríður voru ekki tilbúin að taka þessa ákvörðun sjálf en þau vildu frekar standa með flokknum sínum og leyfa flokksfélögum sínum að taka við og samþykkja þetta heldur en að standa með þjóðinni og eigin sannfæringu.

Slíkkt er ekkert nema tvískinnungsháttur og það er fátt sem að pirrar mig jafn mikið og að heyra fólk hæla þeim fyrir það að hafa sagt sig frá vitleysunni.  Væri einhver dugur í þeim hefðu þau setið föst á sínum sannfæringum sem að stjórnarskrá samkvæmt er það eina sem þau eru bundin.  En í staðin láta þá ráðast af flokkspólítískum hagsmunum.

Um svona umdeild mál eins og núna ætti að vera farið framá aukinn meirihluta.  Því að samþykkt með 52% atkvæðum á þingi og alla þjóðina á móti er ekki farsæl lausn.  Ef þetta á að fara í gegnum þingið þá verður að ríkja um það þjóðfélagsleg sátt.  Og það minnsta sem að ríkisstjórnin getur gert er að útskýra sitt mál fyrir þjóðinni og rökstyðja það afhverju við eigum að borga þetta.  Og ræða málin opinberlega á heiðarlegan hátt.

Ég hef ekki heyrt nein rök fyrir því að staða okkar sé betri ef að við borgum brúsann.  Ég hef heyrt órökstuddan hræðsluóróður um að hér verði sett viðskiptabann og að engin muni stunda viðskipti við okkur.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 25.11.2009 kl. 09:41

6 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Ekki veit ég hvernig það ætti að vera hægt að framfylgja viðskiptabanni á okkur. Við höfum ekki brotið neitt af okkur til þess að réttlæta slíkt. Nú og ef svo er þá þarf fyrst að dæma og ekki er ég hræddur við þann dóm.

Þetta er að sjálfsögðu sama þvælan og hefur runnið upp úr kjaftrifunum, ef ekki er borgað þá... eitthvað... Látum þetta eitthvað fá nafn og leysum síðan málið.

Við eigum að leika sömu taktíkina og í þorskastríðunum. Láta þá herja á okkur þangað til Nató, SÞ og EU er komið á suðupunkt. Það verður slegið á puttana á þeim þegar rétti tíminn er kominn.

Það vill enginn missa dyrnar að Norðurhöfum af hjörunum.

Sindri Karl Sigurðsson, 25.11.2009 kl. 17:32

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Við höfum viðurkennt að bera ábyrgð á lágmarkstryggingum á Icesave eins og ég hef marg oft sýnt með yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar frá því október og nóvember 2009. Um leið gáfum við leyfi fyrir Breta og Hollendinga að greiða út Icesave. Og ef þú efast um viðskiptabann þá var það nú sett á okkur hér í október. Og fordæmi eru fyrir því að þjóðir geri eignir og fjármuni upptæka upp í skuldir sem það kemur höndum yfir. Sbr. að eignir okkar voru frystar sl. haust. Og m.a. gætu þeir gert fjármagsstreymi til og frá landsins upptækt sbr. þegar þeir stoppuðu það sl. haust. Bendi þér á að Bretland og Holland eru umfangsmestu fjármálamiðstöðvar Evrópu og þar fer mest af okkar greiðslum og tekjum í gegn.

Bendi líka fólki sem er að fara á taugum út af Icesave og skuldum okkar að lesta þetta http://vthorsteinsson.blog.is/blog/vthorsteinsson/entry/984410/

Þarna er skýrt að með tilliti til eigna okkar, skulda sem tilheyra einkaaðilum þá verða heildar þjóðarskuldir okkar með icesave um 40% af vergri landsframleiðslu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.11.2009 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband