Leita í fréttum mbl.is

Króatar tilbúnir að leggja mikið á sig til að ganga í ESB?

Af hverju fara fjölmiðlar ekki til Króatíu og spyrja þá af hverju þeir eru tilbúnir að kosta svona miklu til við að komast í samfélag Evrópuþjóða. Sér í lagi þar sem menn segja að ríki hafi ekkert þangað að sækaj sbr Heimssýn

Minni fólk á að Króatía var heldur ekki í EES og því margt þar sem þeir þurfa að laga. Við erum í Schengen og því þurfum við ekki að leggja í svona kostnað.


mbl.is Hundrað milljarða kostnaður til að þóknast ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo er líka spurning. Af hverju er það neikvætt að landið geri endurbætur? Það að ESB fái landið til að gera endurbætur ætti að vera jákvætt. Raunar ætti fréttina að vera titluð: ESB hvetur Króata til að gera endurbætur.

Egill (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 18:57

2 identicon

Eftir að Króatía hefur fengið aðild að ESB, þá munu þeir fá þennan kostnað endurgreiddan að fullu, og líklega meira vegna þess að þeir teljast vera fátæk þjóð innan ESB.

Síðan verður gjaldmiðilinn þeirra væntanlega festur við evruna í gegnum ERM II fljótlega eftir inngöngu.

Jón Frímann (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 19:24

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Af hverju fara fjölmiðlar ekki til Króatíu

Af því Magnús minn að þeir eru í Brussel. Það er fínna.

og spyrja þá af hverju þeir eru tilbúnir að kosta svona miklu til við að komast í samfélag Evrópuþjóða

Hvernig veistu það Magnús minn ef fjölmiðlarnir eru ekki í Króatíu, eins og þú segir?

Er Króatía ekki í "samfélagi þjóða"? Bara brot af heiminum er í ESB Magnús, eða ca. 8%. Átta prósent er ekki "samfélag þjóðanna". Það eru hinsvegar hin níutíu og tvö prósentin miklu frekar. Því er Króatía mun meira í þessu samfélagi þjóða núna en ef það lokar sig inni í ESB.

Gunnar Rögnvaldsson, 28.11.2009 kl. 19:37

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég sagði í samfélag Evrópuþjóða og í ESB eru 70 til 80% af öllum Evrópubúum.

Ég byggði þetta á fréttinni þ.e. 

Króatar gera ráð fyrir því að greiða um 550 milljón evrur, eða eitt hundrað milljarða króna, til að fullnægja stöðlum Evrópusambandsins svo það fái inngöngu. Á fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir 273 milljón evra kostnaði og 277 milljón evra árið 2011.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2009 kl. 20:05

5 identicon

Gunnar, í heiminum eru 6,8 milljarðar manneskja í dag. Evrópusambandslöndin teljast vera 499 milljónir manns í dag. Við inngöngu Króatíu í ESB munu bætast 4,4 milljónir manns við þessa tölu. Við það mun íbúatala ESB vera eitthvað í kringum 503 milljón. Þannig að ESB svæðið verður orðið það fjórða stærsta í heiminum. Sameignleg íbúatala ESB setur svæðið það þriðja stærsta í heiminum í dag (7,4% af íbúatölu heimsins).

Allt um íbúatölu heimsins hérna, samkvæmt landi. Ísland er nr 175 á þessum lista.

Jón Frímann (IP-tala skráð) 28.11.2009 kl. 20:14

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ekki telja mig með Jón, þó svo að ég búi í ESB. Þá eru aðeins eftir 489.999.999 manns sem um er að ræða.

Það sama er sennilega hægt að segja um 50% þeirra sem búa í ESB en sem vilja ekki vera í ESB, ef litið er til þjóðaratkvæða og skoðanakannana. Þá erum við komnir niður á 249999999,5 manns. Þessi hálfa persóna í afgang er sennilega Össur á rápinu hér út og inn.

Gunnar Rögnvaldsson, 28.11.2009 kl. 20:53

7 identicon

Æji Gunnar, afhverju flytur þú ekki bara úr ESB? þú vilt ekki vera þar og ESB vill örugglega ekki hafa þig heldur

0_0 (IP-tala skráð) 29.11.2009 kl. 01:30

8 Smámynd: Kalikles

Breskir Evrópuþingmenn af hægri vængnum halda því fram í þinginu að ESB. sé komið langt út af sporinu og hafi verið hnuplað af fasískum eiginhagsmunasamtökum sem hafi eftir 8 ára baráttu komið stjórnriti sínu í umferð í gervi Lisabon sáttmálans; núna 1 Des. flæðir yfir þingið reglugerðarsúpa sem myrkvar evrópu himinn um ókomna tíð. þessir bresku vilja setja á aðra þjóðaratkvæðagreiðslu í bretlandi svo að þeir geti kosið sig út úr "sambandinu"; og blessunarlega eru þeir ekki búnir að taka upp evru.

Þið evrópusinnar vitið ekki hvað ESB er í raun, því þá værum við ekki að ræða þetta.

Kalikles, 29.11.2009 kl. 12:54

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Breskir hægri menn hafa líka sagt í gegnum áratugina að ef þeir kæmust til valda mundu þeir segja sig úr ESB! En þeir voru við völd í 12 ár og gerðu ekkert í því. En það er auðvelt að finna hópa sem eru á móti ESB! Við getum fundið þá í öllum löndum en þeir eru bara að tala fyrir minnihluata þjóða sinna. Það er engin þjóð sem vill losna út ESB. Og um 5 eða 6 sem eru í ferli um að komast inn í ESB.

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.11.2009 kl. 13:10

10 Smámynd: Kalikles

Bíddu bara og vittu.

Kalikles, 29.11.2009 kl. 13:13

11 Smámynd: Kalikles

Psþeir bresku voru sektaðir fyrir að gagnrína ESB í þinginu, því það má ekki lengur; þessu fylgdist ég sjálfur með á netinu úr þingsölum. það getur verið mjög fræðandi að fylgjast með evrópuumræðunum á vefnum.

Kalikles, 29.11.2009 kl. 13:20

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þeir voru væntanlega skammaðir ekki sektaðir. Þú ert þá væntanlega að vitna í Evrópuþingið. Það sem ég sá á myndbrotum á netinu vor líka þingmenn sem voru að drulla á þá sem skipaðir voru sem Forseti og talsmaður utanríkisstefnu ESB. Þeir persónulega gerðu lítið úr fólki eins og að Breska konan hefði ekki unnið ærlegt starf alla sína tíð og fleira svona miður fallegt.

Þá bendi ég þér á að þetta hefur ekkert með vilja þjóða að gera gangvart ESB. Það eru 7 til 800 fulltrúar á Evrópuþinginu sem eru kosnir í hverju landi þannig að hver einstakur fulltrúi landana endurspegla ekki vilja þjóðana sem slíkar heldur eru þeir aðeins að tala fyrir sína flokka eða kjósendur. Og til að ESB og þing þess virki þá verður að setja einhver takmörk á því hvernig þingmenn koma fram við hvorn annan og starfsmenn ESB.

En síðan má ekki gleyma því að ESB hefur heldur ekki völd gagnvart einstökum þjóðum nema að því leyti sem snertir aðallega viðskipti, efnahag, nýtingar á sameiginlegum auðlindum milli ríkja og svo umhverfismál. Annað og loka orð um flest mál eru í höndum hvers ríkis fyrir sig.

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.11.2009 kl. 13:47

13 Smámynd: Kalikles

"Aðallega viðskipti, efnahag, nýtingar á sameiginlegum auðlindum milli ríkja og svo umhverfismál. Annað og loka orð um flest mál eru í höndum hvers ríkis fyrir sig". Þessi smálisti er ekki í takt við lisabon sáttmálann td. gleymirðu löggæslu, dómsmálum, hvað við borðum, nú og flest allt annað. ég vona að þú farir að sjá myrkrið áður en það gleypir þig.

Kalikles, 29.11.2009 kl. 14:37

14 identicon

Kalikles, ég mæli eindregið með því að þú kynnir þér evrópusáttmálana. Það er allavegana ekkert í þeim um hvað við eigum að borða en settar hafa verið reglugerðir um matvæli með heilsu- og neytendasjónarmið að leiðarljósi - úff vonda ESB að passa upp á heilsu íbúa aðildarríkjanna!

Samstarf um löggæslu og dómstóla evrópuríkjanna er til auðvelda framsal á milli ríkja, til að rétta yfir glæpamönnum - varla ertu á móti því? eða hvað?

Samkvæmt Lisabon sáttmálanum er ríkjum nú heimilt að segja sig úr ESB, þannig að ef Bretum svo sýnist geta þeir bara alveg  hætt. Ein helsta ástæða þess að öfgakenndir hægri menn í Bretlandi hafa verið á móti ESB eru reglugerðirnar, ekki af því að þeim finnst efni þeirra lélegt, heldur búa Bretar við svokallað common law lagakerfi sem byggir á dómafordæmum og eru þeir lítt hrifnir af skrifuðum lögum. Hins vegar eru öll hin Evrópuríkin með civil law kerfi sem byggir á settum lögum frá þjóðþingum. 

Ég mæli eindregið með því að þú lesir Lisabon sáttmálann sem og hina evrópusáttmálana  - þá vonandi sérðu ljósið og áttar þig á því að ESB er ótrúlega vel heppnað samstarf þjóða og við ættum að prísa okkur sæl ef við fáum að vera með. 

0_0 (IP-tala skráð) 29.11.2009 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Af mbl.is

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband