Leita í fréttum mbl.is

Æ greyin mín! Þegið þið nú smá stund!

Það er búið að ákveða þetta ferli á Alþingi! Eitt litið ómerkilegt félag ræður ekki hvernig hlutirnir fara fram. Það verður ákveðið eftir að samningum er lokið hvort að þjóðinni líkar sá samningur sem þá liggur fyrir.

Og það er mjög heimskulegt fyrir andstæðinga ESB aðildar að gefa upp sem ástæðu þess að draga umsókn til baka sé samningsstaða okkar. Því að þetta mundu þeir segja óháð því hvernig staða okkar er. Bendi þeim á að þær nágrana þjóðir okkar sem hafa sótt um aðild að ESB voru allar að ganga í gegnum niðursveiflu þegar þær sóttu um. Þ.e. Norðmenn,Svíar og Finnar. Þó að Norðmenn hafi síðan fellt samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir að rekinn hafði verið af NEI samtökunum í Noregi linnulaus áróður um að Norðmenn mundu missa fiskimiðin sín. Þó voru það Norðmenn sem tóku að sér að semja um Sjávarútvegsmál fyrir hönd Svía og FInna held ég. Þannig að þeir sömdum um þann kafla fyrir hin löndin. Svíar og Finnar gegnum í ESB og hafa ekki séð eftir því.


mbl.is Vilja að ESB-umsókn verði dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

"Eitt litið ómerkilegt félag" hefur samt tjáningarfrelsi Magnús minn. Viltu skerða það?

Hjörtur J. Guðmundsson, 30.11.2009 kl. 22:39

2 Smámynd: Haraldur Hansson

Eiga allir sem ekki eru "á hinni einu réttu skoðun", að mati krata, bara að þegja? Grundvöllur lifandi lýðræðis er að allar skoðanir fái að heyrast.

Það er engu líkara en að Jóhanna sjálf hafi skrifað fyrirsögnina á þessu bloggi. Það er ágætis æfing fyrir Evrópuþingið sem krata dreymir um. Þar þekkist ekki stjórnarandstaða og lýðræðið varla heldur.

Bendi þeim á að þær nágranna þjóðir okkar sem hafa sótt um aðild að ESB voru allar að ganga í gegnum niðursveiflu þegar þær sóttu um.

Það segir sitt um ESB að undanfarna áratugi hefur engin þjóð gengið í klúbbinn nema í einhvers konar kreppu.

Haraldur Hansson, 30.11.2009 kl. 23:23

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er eitt að hafa skoðun og annað að fara með ósannindi. Þetta segi ég vegna þess að flest þau rök sem andstæðingar ESB aðilda hafa á takteinum eru ósannar fullyrðingar. Búið er að tyggja sömu rangfærslurnar um árabil. Ég er meðmælt skoðanaskiptum um þetta mál eins og öll önnur, en það verður þá að fara með rétt mál.

Svo er það nátturlega svo að saminingaviðræður eru ekki hafnar og það er að mínu mati ekki hægt að hafna einu eða neinu á þessari stundi. Það eru samt nokkur atriði sem liggja nokkuð ljós fyrir eins og að lánskjör munu stórbatna. Gjaldmiðilssveiflur stórminnka, landið hefur þá legu á hnettinum sem uppfyllir skilgreininuna harðbýlt svæði.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 1.12.2009 kl. 01:37

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Yfirráð yfir auðlindum munu haldast áfram hjá okkur og fullveldið okkar sömuleiðis.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 1.12.2009 kl. 01:39

5 identicon

Hólmfríður Bjarnfreðardóttir, þvílík óskhyggja. Held þú ættir að vakna til vitundar um að jafnræðisregla ESB mun sjá til þess að íslendingar hafa engar varnir gegn útlendingum með peninga sem munu hirða upp allt sem arðbært er á íslandi. Við verðum bara eins og aumingjar á eftir og munum engar bjargir hafa fyrir okkur sjálf. Efnahagurinn mun flytjast úr landi eins og á Nýfundnalandi þegar þeir gengu í ríkjasamband við Kanada.

Það er bara málið að þú ert heilaþvegin eins og hann Maggi hérna. Hafið engin rök fyrir inngöngu í þetta kommúnista batterí en ráðist að þeim sem sjá ruglið.

Jóhann (IP-tala skráð) 1.12.2009 kl. 02:29

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

,, Yfirráð yfir auðlindum munu haldast hjá okkur og fullveldið okkar sömuleiðis,,    með einu pennastriki,breyta þeir reglugerðum eins og þeim þóknast,hvenær sem þeim þóknast.  

Helga Kristjánsdóttir, 1.12.2009 kl. 02:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband