Leita í fréttum mbl.is

Lýðskrumarar

Þessu fólki hefur tekist að telja fólki trú um að það þurfi ekki að semja. En samt ef þið lesið allar ræður þeirra þá tala þau öll um að vissulega ætlum við að standa við skuldbindingar okkar. Bara ekki þennan samning.

Birkir Jón Jónsson (BJJ)
Eygló Harðardóttir (EyH)  
Guðmundur Steingrímsson (GStein)  
Gunnar Bragi Sveinsson (GBS)
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ)   
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG)  
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ)
Siv Friðleifsdóttir (SF)
Vigdís Hauksdóttir (VigH)

Árni Johnsen (ÁJ)  
Ásbjörn Óttarsson (ÁsbÓ)
Birgir Ármannsson (BÁ)   
Bjarni Benediktsson (BjarnB)   
Einar K. Guðfinnsson (EKG)    
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ)    
Illugi Gunnarsson (IllG)
Jón Gunnarsson (JónG)   
Kristján Þór Júlíusson (KÞJ)  
Ólöf Nordal (ÓN)    
Pétur H. Blöndal (PHB)   
Ragnheiður E. Árnadóttir (REÁ)
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR)
Tryggvi Þór Herbertsson (TÞH)
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK)
Þorgerður K. Gunnarsdóttir   

Birgitta Jónsdóttir (BirgJ)
Margrét Tryggvadóttir (MT) 
Þór Saari (ÞSa)

Ætlaði að

týna út þá sem tel að ekki séu hættulegir þjóðarhagsmunum en nenni því ekki. Þau kjósa að vera í liði með fólki eins og Vigdísi Hauksdóttur, Höskuldi Þórhallssyni, Jóni Gunnarssyni og Árna Johnsen svo nokkur dæmi séu nefnd. Þannig að þau verða bara að sætta sig við að lít á þau sem lýðskrumarar.
mbl.is Vilja vísa Icesave frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er glæpalið upp til hópa. Með kúlulánasukk, skúffufélög, sjóða brask og mútumál á samviskunni. Hefja þarf opinbera rannsókn á því hvað þetta lið var að gera fyrir hrun.

Fyrri ríkisstjórn var búin að skrifa undir ótal samninga varðandi Icesave og binda þannig þjóðina. Ekki er hægt að hlaupa frá samningum sem búið er að undirrita, t.d. við AGS og ESB. Bjarni Ben flutti frumvarpið á þingi um að ganga til samninga. Það er búið að negla þjóðina niður í þessu máli fyrir löngu.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 28.12.2009 kl. 15:08

2 Smámynd: Birgir Finnsson

Það er svolítið fallegt að sjá ykkur kóa svona saman í vitleysunni; stappa hvorn annan upp í rangfærslunum og klappa hvor öðrum á öxl. Mikil hópefli í gangi og svona nettur "You go, girl!" andi í þessu hjá ykkur.

Það breytir því hinsvegar ekki að það er nánast hvert einasta orð rangt í þessu hjá ykkur. Sérstaklega má ég til með að minnast á "Fyrri ríkisstjórn var búin að skrifa undir ótal samninga varðandi Icesave og binda þannig þjóðina." sem er líklegast þreyttasta rangfærslan af þeim öllum.

Það er fyrir LÖNGU búið að hrekja þetta. Nú síðast gerði Ingibjörg Sólrún það í löngu og ítarlegu máli.

Þið verðið að átta ykkur á því að lygin verður ekki að sannleika alveg sama hvað þið endurtakið hana oft.

Birgir Finnsson, 28.12.2009 kl. 15:17

3 identicon

Það er óþarfi að tala illa um fólk, en þið Sveinn og Magnús eruð klikk, ef ekki meira.

Það er sama þó Ingibjörg ykkar gamli leiðtogi hafi skrifað skýrt og klárt að núverandi stjórn var ekki skuldbundin í gömlum minnisblöðum.

Það er sama þó 10 prósent líkur séu á gjaldþroti ríkisins.  Hvert fer velferðin ykkar þá?

Það er sama þó varað sé við samningnum af erlendum lögfræðistofum. 

Klikk!

jón ásgeir (IP-tala skráð) 28.12.2009 kl. 15:19

4 identicon

Lýðskrumarar? Ég held að þeir séu bara að reyna að gera allt sem þeim dettur í hug til að koma i veg fyrir samþykkt Icesave. Mikill meirihluti þjóðarinnar vill EKKI  að þingið samþykki þetta Icesave.  Starfa ekki þingmenn í umboði okkar?  Áður en VG fór í stjórn með Samfó voru þeir alfarið á móti Icesave svo það er ekki hægt að segja að þeir séu að framfylgja sinni stefnu. Vona að þingmönnum beri gæfa til að fella Icesave.

Soffía (IP-tala skráð) 28.12.2009 kl. 15:24

5 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Hættu að þamba bjórinn Magnús og farðu að kynna þér málið af viti !!!

Sigurður Sigurðsson, 28.12.2009 kl. 15:45

6 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Við skulum sleppa stóryrðunum og tala af skynsemi. Stjórnarandstaðan hefur nánast öll verið með þann málfluttning undanfarna mánuði að það beri að hafan ICESAVE samningnum. Vissulega væri það gott og sjálfsagt ef það værimöguleiki í stöðunni. Þingmenn vita allir að svo er ekki og stór partur þjóðarinnar líka.

Þrátt fyrir allar yfirlýsingar um að Magnús og Sveinn séu lýðskrumarar og ekki með fulla fimm, þá er ég handvissum að svo er ekki. Það er búið að segja það svo oft að allar okkar lánalínur lokast og við verðum mjög einangruð á alþjóðavettvangi ef samningnum verður hafnað.

Það andstæðingar ICESAVE endurtakið ykkar upphrópanir dag eftir dag og við sem viljum opna á framtíðina verðum því að endurtaka okkar rökstudda málfluttning líka.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.12.2009 kl. 16:11

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég skal ábyrgjast að þetta fólk hefði nær allt staðið að þessum samningum ef það hefði verið í stjórn! Bendi á að Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig studdi að samnið yrði á þessum nótum 5 des 2008. Þetta er svo miklu auðveldarar nú þegar þeir eru komnir í stjórnarandstöðu.

Og sem dæmi um kjaftæðið þá sagið Höskuldur áðan eitthvað á þá leið. "Við höfum aldrei sagt að við ættum ekki að borga. En við viljum ekki boga meira en við getum. En við viljum ekki borga þetta því að okkur ber engin skilda til þess" Sér engin annar en ég að hann talar í hringi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.12.2009 kl. 16:23

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og vegna þess að fólk er alltaf að vitna í bjórglasið! Þá er þetta þreyttur brandari.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.12.2009 kl. 16:26

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona sér fyrrum framsóknarþingmaður þetta:

"Mikið væri nú gott að trúa Mogganum og stjórnarandstöðunni þegar kemur að Icesave.

Að Íslendingar geti gert miklu betri samninga um Icesave.

Að Alþingi geti einfaldlega sagt hvað eigi að standa í samningunum sem íslenska ríkisstjórnin fari svo og segi Bretum og Hollendingum -  sem væntanlega hneigja sig fyrir hinum göfugu eyjaskeggjum.

Að Steingrímur J. hafi vitaskuld sett illviljaða og lata kjána í samninganefndina og allir aðrir geti búið til betri samninganefndir og fengið betri niðurstöðu. 

Að það sé ekkert því til fyrirstöðu að fella nú Icesave og hleypa þar með stjórnarandstöðunni að samningaborðinu. Sömu flokkum og sköpuðu það ástand sem nú er unnið úr. Sjálfstæðisflokknum sem talar út og suður í málinu og lagði sjálfur drög að Icesave-samningum sem voru sínu verri en þeir vondu samningar sem nú liggja fyrir. "

Tekið af síðu Bjarna Harðarsonar http://bjarnihardar.blog.is/blog/bjarnihardar

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.12.2009 kl. 16:39

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Allir eru þreyttir,ekki skrökva þess vegna.  Er aðalmálið að hleypa ekki fulltrúum  70% til 75% þjóðarinnar að samningaborðinu?      Það er mjög auðvelt að finna allskonar ummæli með og á móti hér á blogginu. Aðalmálið er þó að íslensku þjóðinni ,ber ekki að borga Icesave,þetta veit stjórnin en leggur allt kapp á að þröngva þjóðinni til þess.

Helga Kristjánsdóttir, 28.12.2009 kl. 17:37

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þetta eru ekki fulltrúar 75% þjóðarinnar. Skoðanakönnun er ekki kosning. Fulltrúar meirihluta þjóðarinnar eru í stjórn landsins. Aðrir eru ekki rétt kjörnir til þess.

Icesave er búið að samþykkja. Það var gert 28 ágúst á Alþingi af meirihluta Alþingis. M.a. sátu Sjálfstæðismenn hjá. Það eru allir búnir að viðurkenna að við eigum að borga nema Hreyfinginn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.12.2009 kl. 18:01

12 Smámynd: Jón

Það er eindfaldlega þannig að þessir svokallaðir kjörnir fulltrúar landsmanna eru bara ekki að fylgja þeim stefnum sem þeir voru kosnir á Alþingi fyrir og eru Vinstri Grænir skýrasta dæmi þess. Þeir juku við sig gríðarlega fylgi fyrir seinustu kosningar með háfleygum orðum um andstöðu við ESB og að vilja ekki gefa undan þrýstingi erlendra þjóða og nú gera þeir hið gagnstæða.

Svo fulltrúar meirihluta þjóðarinnar eru í stjórn en þeir eru ekki að fara með vilja þeirra sem kusu þá og því í raun ekki lengur "rétt"kjörnir. Ef ég gæti það þá myndi ég breyta mínu atkvæði því það var logið "feitt mikið" að mér og ég kann engan veginn að meta það.

 Þjóðarkosning er eina vitið í svona mikilvægu máli og ég get sagt þér með nokkuð mikilli sannfæringu að Icesave yrði ekki samþykkt. Enda á ég eftir að tala við eina manneskju sem er fylgjandi þessu glapræði.

Jón, 28.12.2009 kl. 18:34

13 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Hvar eru nöfnin á þeim sem eiga þennan blessaða Icesave reikning Magnús Helgi...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 28.12.2009 kl. 18:56

14 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það er svona um það bil flestir hinir þingmennirnir. Ég er búinn að hlusta á Alþingi í dag og það eru allir sem tala um að auðvita eigi að borga Icesave. Þessvegna segi ég að þetta fólk séu lýðskrumarar. Enda var Alþingi búið að samþykkja það í ágúst.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.12.2009 kl. 19:05

15 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Illa smíðað!    Lagað,samþykkt af viðgerðaraðilum,  já.  Fingraför fúskara,leiðir til ágreinings,við borgum ekki fúskið. 

Helga Kristjánsdóttir, 28.12.2009 kl. 20:39

16 identicon

Magnús fyrst að þið samfylkingarmenn og konur er svona æst í að borga væri þá ekki rétt að sendir væru út greiðsluseðlar á þá sem eru skráðir í samfylkinguna og VG. Ég geri ráð fyrir að þú borgir minn hluta þar sem ég er ekki skráður flokksdindill.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 29.12.2009 kl. 01:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband