Leita í fréttum mbl.is

Ég heimta að eftirfarandi verði upplýst!

Í ljósi látanna á Þingi í kvöld. Þá heimta ég að eftirfarandi verið upplýst í þessu máli.

  • Hversu oft fór Svavar Gestsson á klósett á meðan hann vann að samningum?
  • Hversu margar lögfræðistofur eru í Bretlandi og af hverju var ekki talað við þær allar?
  • Af hverju er ekki búið að gera og gefa út æviminningar allra samninganefndarmanna okkar frá því í október 2008 til dagsins í dag?
  • Af hverju er ekki búið að senda auglýsingar í erlend blöð þar sem auglýst er eftir gögnum sem stjórnarandstaðan getur notað til að tefja málið?
  • Af hverju er ekki búið að kortleggja allar færslur út og inn af Icesave frá stofnun og fjalla um hverja þeirra úr stóli Alþingis?

Nei ég meina það! Það eru hér stjórnvöld og samningamenn sem eru búin að taka afstöðu til þessa máls. Ákveða leiðina sem var farin í samningum og þeir liggja fyrir. Svo eru menn að æsa sig yfir gögnum sem Lögfræðistofa er að senda núna þar sem að hún telur að hægt hefði verið að sækja mál gegn Bretlandi en ekki af stjórnvöldum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. En önnur stofa taldi ólíklegt að það mál ynnist. Og í framhaldi af því voru skilanefndum boðin stuðningur í slíka málshöfðun. Þetta eru gögn sem Mishcon de Reya fékk  einhverstaðar að og taldi ekki skipa meira máli en svo að þeir lögðu það ekki fram með álitum sínum. Ef það er ekki annað markvert er stjórnarandstaðan bara kaupa sér athygli hjá almenning.

Það var tekin ákvörðun um að gera ákveðin samning við Breta og Hollendinga í vor. Hann endurbættur í haust og um ríkisábyrgð á honum er verið að greiða atkvæði.

PS smá viðbót. Ég googlaði dagsetningu þessara glærur sem talað var um á þingi og fann þetta bara svona strax.

http://www.island.is/media/frettir/MB_290309.pdf

Þetta fann ég inn á http://www.hvitbok.vg/Profilar/OssurSkarphedinsson/OssurKannastEkkiVidSkyrslu/

Þar segir

Össur kannast ekki við skýrslu..

Innlent - þriðjudagur, 7. júlí, 2009 - 18:17

Össur kannast ekki við skýrslu breskra lögmanna um Icesave. Var samin sérstaklega fyrir Össur

ossurskyrsla.jpg

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra kannast ekki við skýrslu lögfræðistofunnar Mischon de Reya í London um Icesave-málið. Skýrslan, sem dagsett er 29. mars á þessu ári, er merkt sem trúnaðarmál, og fram kemur á forsíðu hennar að hún sé sérstaklega samin fyrir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Skýrslan var birt opinberlega í dag að kröfu alþingismanna eftir að Morgunblaðið sagði frá tilvist hennar.

„Ég hef ekki beðið það um neina vinnu fyrir mig eða utanríkisráðuneytið og kannast ekki við það,” segir Össur.

Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld.

Haft var eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra að  skýrslan  snúist aðallega um eigur Landsbankans í Bretlandi og meðferð þeirra þar. 

Í skýrslunni kemur fram að engin skrifleg staðfesting hafi fengist á því að íslensk yfirvöld hafi formlega undirgengist skuldbindingar vegna tryggingarsjóðs innistæðueigenda. Í skýringu fjármálaráðuneytisins í dag kemur fram að samninganefnd Íslands vegna Icesave reikninganna hafi leitað til fjölmargra aðila, þar á meðal þessarar lögfræðistofu.

Haft var ennfremur eftir fjármálaráðherra að þetta hefðu verið minnispunktar fyrir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, fyrir fund hans með David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, um málefni Landsbankans. „Aðalinntakið snýr að eignum Landsbankans og meðferð þeirra í Bretlandi og það var í því máli sem var stuðst við ráðgjöf þessa fyrirtækis en ekki í málinu almennt.”

Össur kannast hinsvegar ekki við þetta plagg og segir fyrirtækið ekkert hafa unnið fyrir sig.


mbl.is Meginefnið liggur skýrt fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Hafberg S.

Þú hlýtur að vera að grínast ; )

Ásta Hafberg S., 29.12.2009 kl. 23:41

2 identicon

Þessi jólasveinn sem heldur úti þessu bloggi hlýtur að fara til fjalla með hinum jólasveinunum eftir áramót.

Hann segir að ákveðin ákvörðun hafi verið tekin um samninga við Breta og Hollendinga. Sú ákvörðun var röng, frá a-ö. Þess vegna getur alþingi ekki staðfest þessa ákvörðun samninganefndarinnar, enda voru fyrirvarar um þennan samning Svavars og Indriðia við Breta og Hollendinga að Alþingi þyrfti að samþykkja.

Nú lítur sem betur fer flest út fyrir að þessir samningur sem gerður var af samninganefndinni verði felldur á alþingi, þjóðin verður þá góðu heilli ekki pínd í skuldarþældóm.

Kannski samfylking fari þá að sína að hún ætli sér eitthvert hlutverk í "samfélagi þjóðanna" eins og flokksmönnum þess flokks er tamt að tala um á góðviðrisdögum. Fari út fyrir landsteinana og kynni málstað landsins og sjái til þess að þetta mál verði tekið upp aftur og sanngjarnir samningar verði í heiðri hafðir í þetta skiptið. Svavar Gestsson verður þá geymdur heima, sem og Indriði .Þeir klúðra ekki aftur.

joi (IP-tala skráð) 29.12.2009 kl. 23:55

3 Smámynd: Sigurður Helgason

þú getur ekki heimtað neitt þú ert ekki þjóðinni.

Sigurður Helgason, 29.12.2009 kl. 23:58

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég skal ábyrgjast það joi að þessi samningur verður samþykktur því að ef þú hefur hlustað á Alþingi í kvöld er ekkert nýtt að koma þar fram. Ég bætti við þessari kynningu við bloggið sem allir virðast vera búnir að gleyma. En það var einmitt vitnað í að þetta skjal hefði verið kynnt Össuri fyrir fund hans með utanríkisráðherra Breta.

Og ég þarf að hryggja þig með því að ég hætti ekkert að blogga þó menn séu að uppnefna mig eða gera lítið úr miínum skoðunum. Ég hef fullt leyfi til að hafa þær og skammast mín ekkert fyrir þær

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.12.2009 kl. 00:00

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þú getur ekki sagt um það Sigurður þú ert ekki þjóðin heldur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.12.2009 kl. 00:01

6 Smámynd: Sigurður Helgason

Þetta eru ekki mín orð heldur konu sem stjórnaði flokknum, og var það fjölmennari samkunda en einn,

Svo þetta á við þig núna þú ert ekki þjóðin,

Ég er það ekki, vill ekki eiga samleið með svona hyski, ef ég er spurður er ég frá norge,

Sigurður Helgason, 30.12.2009 kl. 00:17

7 identicon

æi kallinn minn, haltu áfram að lemja hausnum við steininn......

gisli (IP-tala skráð) 30.12.2009 kl. 00:19

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég vissi það Sigðurður! Hún hefði betur hugsað hvað hún sagði þarni í Háskólabíói. Og eins hvernig hún orðaði greinargerð sína þarna til Alþingis. Því hún á að vera það greind að hún veit að rangt orð eða setning getur gefið andstæðingum gullið tækifæri á að nota orð hennar gegn henni og öðrum sem henni tengjast eða vinna með henni.

Ég vill bara koma þessu ömurlega Icesave máli fram. Það verður innan við 11%  af þeim greiðslum sem við þurfum að borga þegar eignir Landsbankans hafa komið á móti. Og ef fólk er ekki sammála því að okkur beri skylda til að borga þetta þá er hægt að líta á þessa kannski 180 milljarða sem greiðslu til að geta komist af stað aftur hér á þessu skeri. En það eru bara ýmsir sem hafa engan áhuga á að því að komast hér af stað aftur. Kannski að það sér rétt hjá Spaugstofunni að Norðmenn séu á bakvið þennan hægagangi eins og allt annað í þessu máli til að fá ódýrt vinnuafl til sín.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.12.2009 kl. 00:24

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Því miður Gísl enginn steinn við hendina nú sem stendur hjá mér.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.12.2009 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband