Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2006

Brandarar dagsins

 

Kæri sonur,

Ég skrifa þetta bréf hægt af því að ég veit að þú getur ekki lesið mjög hratt. Við búum ekki lengur þar sem að við bjuggum þegar þú fórst að heiman. Pabbi þinn las í blöðunum að flest slys gerast innan við 20 mílur frá heimilunum, þannig að við fluttum. Ég get ekki sent þér heimilisfangið af því að fjölskyldan sem bjó hérna á undan okkur tók húsnúmerið þegar þau fluttu til þess að þau þyrftu ekki að breyta heimilisfanginu sínu.

Veðrið er ekki slæmt hérna. Það rigndi bara tvisvar í síðustu viku; í fyrsta skipti í þrjá daga og í seinna skiptið í fjóra daga.

Varðandi jakkann sem þú vildir að ég sendi þér, þá sagði Stjáni frændi þinn að hann væri of þungur til að senda í pósti með tölunum, þannig að við klipptum þær af og stungum þeim í vasana.

Jón læsti lyklunum sínum inni í bílnum í gær. Við erum öll mjög áhyggjufull vegna þess að það tók tvo tíma að ná okkur pabba þínum út.

Systir þín eignaðist barn í morgun; en ég hef ekki enn komist að því hvers kyns það er þannig að ég veit ekki hvort það er frænka eða frændi. Barnið lítur alveg eins út og bróðir þinn...

Annars er ekki mikið meira í fréttum. Það hefur ekkert mikið gerst.

Ástarkveðjur,

mamma.

P.S. Ég ætlaði að senda þér peninga en ég var búin að loka umslaginu

*lol*----------------------------------------*lol*

19 ástæður fyrir því að súkkulaði er betra en kynlíf:

    1. Þú getur fengið súkkulaði.
    2. "Ef þú elskar mig þá gleypirðu þetta" hefur raunverulega merkingu með súkkulaði.
    3. Súkkulaði fullnægir meira að segja þegar það er orðið mjúkt.
    4. Þú getur hættulaust fengið þér súkkulaði meðan þú keyrir.
    5. Þú getur látið súkkulaði endast eins lengi og þú vilt.
    6. Þú getur fengið þér súkkulaði meira að segja fyrir framan mömmu þína.
    7. Ef þú bítur og fast í hneturnar þá kvartar súkkulaðið ekki.
    8. Tvær manneskjur af sama kyni geta fengið sér súkkulaði án þess að vera kölluð klúrum nöfnum.
    9. Orðið "skuldbinding" hræðir súkkulaði ekki í burtu.
    10. Þú getur fengið þér súkkulaði í vinnustólnum/við vinnuborðið á vinnutíma án þess að koma vinnufélugunum í uppnám.
    11. Þú getur beðið ókunnugan um súkkulaði án þess að eiga það á hættu að vera löðrungaður.
    12. Þú færð ekki hár í munninn af súkkulaði.
    13. Með súkkulaði er engin þörf á að þykjast.
    14. Súkkulaði gerir þig ekki ólétta.
    15. Þú getur fengið þér súkkulaði á hvaða tíma mánaðarins sem er.
    16. Það er auðvelt að finna gott súkkulaði.
    17. Þú getur fengið þér eins margar tegundir af súkkulaði eins og þú ræður við.
    18. Þú ert aldrei of ungur eða of gamall til að fá þér súkkulaði.
    19. Þegar þú færð þér frábært súkkulaði þá heldur það ekki vöku fyrir nágrönnunum

*lol*----------------------------------------*lol*

 


Nokkrir brandarar í viðbót

 

Það var heitt í veðri og ljóskan var á rölti um bæinn þegar
hún sá gossjálfsala og ákvað að nota tækifærið og fá sér
ískalt gos. Hún gengur upp að sjálfsalanum og setur pening
í raufina.

Peningurinn rennur út aftur. Þetta gerist í hvert skipti
hjá henni þegar hún setur pening í raufina, en alltaf gerir
hún þetta aftur og aftur-pening í og hann rennur úr, pening
í og hann rennir út...

Þar sem það var mjög heitt í veðri og margir að hugsa það
sama og ljóskan, að fá sér kalt að drekka var komin röð
fyrir aftan hana. Einn ungur maður sem var orðin ferlega
þreyttur og þyrstur segir ljóskunni að fara drífa sig því
það séu fleiri sem þurfi að komast að.

“Ekki að ræða það,” segir ljóskan um hæl og bætir
við....”Ég er að vinna fullt af pening, sérðu það ekki?” 
 

*lol*-------------------------------------------------------------------*lol*
 
Lögreglumaður nokkur starfaði á Vestfjörðum við löggæslu að vetri til. Í brjáluðu veðri og blindsnjókomu var hann í eftirlitsferð um sveitina í mikilli ófærð.

Þegar lögreglumaðurinn var að nálgast einn sveitaveginn sér hann hvar gamall Land Rover jeppi er á kaf í skafli. Lögreglumaðurinn fer út og athugar með ökumanninn og sér jafnframt að hjólin á bílnum snúast á mikilli ferð. Lögreglumaðurinn áttar sig á hver sá gamli sé og bankar í gluggann.

Bóndanum bregður mjög en rennir gluggahleranum og segir við lögregluna, "Hva...þú hér...og ég sem er á 60." (60 km).
 

*lol*-------------------------------------------------------------------*lol*

 


Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband