Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Framsókn á flugi í auglýsingagerð - En hvað á þetta að þýða?

Eru þau kannski að fagna stöðunni í skoðanakönnunum síðustu mánuði? 

 

sivogsammi

NV-kjördæmi: Frjálslyndir kæmu ekki manni inn

Samfylkingin er að hægt og sígandi á leiðinni í það fylgi sem hún á skilið. Sterkasta vígi Frjálslyndara að falla.

 

www.ruv.is

Frjálslyndi flokkurinn kemur ekki manni inn á þing Í Norðvesturkjördæmi samkvæmt Gallup en þeir höfðu tvo menn áður, anna kjördæmakjörinn en hinn er jöfnunarþingmaður. Þetta þýðir að formaður flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson, kemst ekki inn á þing.

Úrtakið var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá og í því voru 800 manns. Nettósvarhlutfall var 64,5%.



Vinnubrögð Allsherjarnefndar!

Þetta mál með afgreiðslu Allsherjarnefndar á umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt kemur held ég til með að skapa umræður um störf þessarar nefndar og því hvort að hún hafi í störfum sínum gætt jafnræðis. Var að lesa grein í Fréttablaðinu eftir Falasteen Abu Libdeh En hún segir m.a. í greininni:

Hingað var gott að koma, þó það skuli engum detta í hug að Ísland hafi verið hluti af framtíðar­draumum sextán ára unglings frá Palestínu. Koma mín hingað var liður í þeirri viðleitni móður minnar að reyna að finna okkur börnunum öruggt umhverfi til að búa í.

Eftir að hafa verið hluti af íslensku samfélagi í þrjú ár, verið við nám, eignast barn og starfað á íslenskum vinnumarkaði fannst mér tímabært að sækja um að öðlast í fyrsta sinn á ævinni þann rétt sem fylgir því að tilheyra sjálfstæðu ríki – að fá raunverulegt ríkisfang.

Þrátt fyrir að það væri fullljóst að ég væri komin hingað til að vera, þrátt fyrir að hafa lært tungumálið, þrátt fyrir að ég væri farin að gefa íslenska ríkinu hlutdeild í tekjum mínum og þrátt fyrir að ég væri orðin móðir, þá sá allsherjarnefnd ástæðu til að hafna ósk minni um að gerast íslenskur ríkisborgari. Einu rökin sem lögð voru til grundvallar ákvörðun nefndarinnar voru þau að ég væri ekki búin að búa hér í full sjö ár.

Lucia Celeste Molina Sierra er án efa hin álitlegasta tengdadóttir og eflaust hefur hún sínar forsendur fyrir þeirri ákvörðun sinni að sækja um íslenskt ríkisfang en mér finnst að bæði ég og aðrir sem hafa gengið í gegnum þá reynslu á undanförnum árum að þurfa að leggjast á hnén og biðja um að fá að tilheyra þessu samfélagi og vera hafnað, eigi skilið frekari útskýringar.

Þetta vekur náttúrulega spurningar um afgreiðslu þessarar nefndar og hversu vönduð vinnubrögð hennar eru. Fólk man ekki eftir ástæðum fyrir að ein umsókn er samþykkt en öðrum hafnað. Spurning hvort að þessir þingmenn séu að valda starfi sínu? Hér býr fullt af fólki sem hefur verið látið bíða í 7 ár eftir að verða íslenskir ríkisborgarar og annað fólk hefur þá væntanlega jafnvel hrakist héðan. Þetta verður náttúrulega að laga. Og það verður að vinna að nýjum starfsreglum


Ég hef nú ekkert á móti háum húsum - en er þetta ekki að verða of mikið?

Ég bjó um tíma á 5 hæð í Engihjalla í Kópavogi. Þar var staðan sú að ef það var gola úti þá gat maður varla opnað svalarhurð ef að gluggi var opinn. Nú stendur yfir keppni í kring um Smáralind að byggja eins hátt og hægt er. Þar er þegar í byggingu rúmlega 20 hæða turn sem verður hæsta hús á Íslandi og við Smáralind er annar aðeins minni að fara að rísa. Nú er farið að tala um einn enn sem verður yfir 100 metra hár. Það sem veldur mér vangavelturm er t.d. er búið að kanna hverning veður er þarna. Efstu 10 til 15 hæðirnar verða opnar fyrir öllum áttum og mér finnst þegar að þarna sé mikill næðingur? Þá er ég að velta fyrir mér byggingarkröfum sem gerðar eru til þessara turna. Sá sem þegar er farinn að spretta upp er að mínu mati furðulega byggður. Hann virðist vera með með alla útveggi sem steypueiningar sem hífðar eru sinn stað. Síðan eru bara steyptar súlur sem binda hæðirnar saman. Tek kannski mynd af þessu seinna í dag til að sýna. En þetta er náttúrulega bara pælingar hjá mér hvað gerist ef að almennilegur jarðskjálfti ríður yfir hjá okkur.

En fyrst og fremst eru það umferðamálin. Eins og venjulega er skipulagið í Kópavogi þannig að til að komast að þessu hverfi þarf á 3 vegu að keyra í gegn um Íbúðahverfi. Og hver svona turn táknar umferð upp á þúsundir bíla. Og þar sem ég bý í hverfi ekki langt frá Smáralind þá hræðist ég þetta mjög.

Frétt af mbl.is

  Hæsti turninn 100 metrar
Innlent | Morgunblaðið | 28.4.2007 | 5:30
Horft yfir Reykjanesbraut til suðvesturs. Turninn við... Fasteignafélag Íslands ráðgerir að reisa 28 hæða turn á lóð félagsins sunnan við Smáralind, skv. heimildum Morgunblaðsins. Turninn yrði yfir 100 metra hár og þar með hæsta hús á Íslandi. Fleiri turnar munu einnig rísa á lóðinni gangi áætlanir félagsins eftir.


mbl.is Hæsti turninn 100 metrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóg að gera hjá Þorgerði

Skrifar undir samninga þvers og kruss núna nokkrum dögum fyrir kosningar. Í dag var hún á Akureyri að lofa nokkrum hundruða milljóna í stækkun þar og svo skaust hún á húsavík og skrifaði undir samning við öll sveitarfélög á NA landi um menningarmál og menningatengda ferðaþjónustu. Og þessu fylgir: Framlög ríkisins til samningsins verða 25 milljónir á árinu 2007, 30 milljónir árið 2008 og 31 milljón árið 2009

Þetta eru sjálfsagt hin mætustu verkefni en það er tímasetning þeirra sem pirrar mig. Ég er ekki hress með að ráðherrar séu að skreyta sig með skrautfjöðrum  síðustu dag fyrir kosningar sem þeir þurfa svo kannski ekki að fylgja eftir. Þetta vekur alltaf grunsemdir og spurningar eins og afhverju var ekki búið að gera þessa samninga fyrir löngu.

Frétt af mbl.is

  Ríki og sveitarfélög á Norðurlandi eystra semja um menningarsamstarf
Innlent | mbl.is | 27.4.2007 | 17:57
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Björn Ingimarsson... Skrifað var í dag í Hvalasafninu á Húsavík undir samning um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 16 sveitarfélög á Norðurlandi eystra um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins en Björn Ingimarsson, formaður sveitarfélaganna í Eyþingi, undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna.


mbl.is Ríki og sveitarfélög á Norðurlandi eystra semja um menningarsamstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessar kannanir eru hálf skrýtnar

Hvað hefur framsókn t.d. gert í síðustu viku sem eykur fylgi hans. En svona ef maður pælir í þessum könnunum þá er nær hún bara til 23. apríl sem var síðasti mánudagu  Og eftir það hefur eftirfarandi gerst:

  • Landspítalinn sendir út neyðarkall. Reksturinn þar kominn í bullandi erfiðleika
  • Páll Magnússon ráðinn í Landsvirkjun og ekki samkomulag um það í Framsókn
  • Jónina og tengdadóttirin
  • Barna og unglinga geðdeild í bullandi vandræðum og langir biðlistar.

Þannig að það kæmi mér mjög á óvart að framsókn ætti eftir að hækka meira í næstu könnun. Ég trúi ekki að fólk sé að kaupa þessar auglýsingar með honum Jóni Sig. 426973A

Eins þá skil ég ekki þessar sveiflur á fylgi milli Vg og Samfylkingar því að það er ekkert í þessari viku sem könnunin stóð yfir sem skýrir það.  Fer að halda að það náist illa í ákveðna kjósendahópa sumar vikurnar þannig að þessvegna séu þessarsveiflur

Síðan er skrítið að birta niðurstöður ekki fyrr en á föstudagi þegar könnuninni líkur á mánudeg. Við erum ekki að fá stöðuna eins og hún er í dag.

  

  

Frétt af mbl.is

  Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið
Innlent | mbl.is | 27.4.2007 | 19:11
Mynd 426973 Fylgi Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs er jafnmikið, eða 21,2%, samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 39,1%, Framsóknarflokksins 10%, Frjálslynda flokksins 5,7%, Íslandshreyfingarinnar 2,3% og Baráttusamtakanna 0,6%.

 


mbl.is Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsvirkjun verður að muna að fyrirtækið er eign þjóðarinnar ekki starfsmanna LV

 Landvirkjun væri holt að athuga að þeir eru að öllu leyti í eigu þjóðarinnar. Og það er með öllu ólíðandi að þeir taki þátt í að gera aðför að læknum og verkalýðsfélögum vegna þess að þessir aðilar eru að vekja athygli á sæmum aðbúnaði verkamanna. Mér finnst þetta það alvarlegt að ráðherra sem fer með eignarhald okkar í Landsvirkjun þurfi alvarlega að tala við forsvarsmann Landsvirkjunar (ef hann er ekki í Suður Afríku) og láta hann vita að starfsmenn LV eru að vinna með gögn sem var stolið af læknastofu í Kárahnjúkum sem og að Landsvirkjun ber að sjá til þess að verk sem hún stendur að séu unnin við bestu vinnuskilyrði sem hægt er. Skortur á hreinlætisaðstöðu, matareitranir eitrað loft er ekki eitthvað sem við sættum okkur við að fólki sé gert að vinna við þó það komi erlendis frá.

ASÍ: LV hætti að verja Impregilo

Verktakafyrirtækið Impregilo er þekkt fyrir að brjóta reglur og er það alvarlegt ætli Landsvirkjun með einhverjum hætti að verja gjörning þeirra, segir Halldór Grönvoldt aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambandsins. Ljóst sé að aðstæður á Kárahnjúkasvæðinu séu með öllu óásættanlegar.

Landsvirkjun sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem sagt var að aðeins brot þeirra 180 sem leituðu til heilsugæslunnar við Kárahnjúka 12. til 24. apríl hafi veikst vegna loftmengunar í göngunum. Þeim sé aðeins kunnugt um átta sem hafi leitað læknisaðstoðar vegna slíkra einkenna. Halldór segir að í sjálfu sér engu máli skipta hve margir hafi greinst með eitrunareinkenni, aðeins þurfi einn til svo þörf sé á aðgerðum.


Er þetta ekki fullmikil bjartsýni. Er spítalinn ekki kominn í vandræði nú þegar á þessu ári?

Vissulega metnaðarfullt markmið og yrði gott ef að það tækist. En ég held að það sé nokkuð ljóst að með nú verandi stjórnvöld sem hafa á hverju ári skorið niður framlög til LSH og látið spítalan safna skuldum, verður þessu markmið ekki náð. Þannig var forstjórinn í fréttum í gær og fyrradag og sagði spítalann kominn upp að vegg. Það væru gerðar kröfur um þjónustu en um leið kröfur um niðurskurð þannig að spítalinn væri rekinn með dúndrandi tapi.

Frétt af mbl.is

  LSH komist í hóp fimm bestu
Innlent | Morgunblaðið | 27.4.2007 | 5:30
Landspítalinn í Fossvogi. Landspítalinn hefur sett sér það markmið að vera árið 2012 eitt af fimm bestu háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndum hvað varðar árangur og afköst í vísindarannsóknum. Magnús Pétursson, forstjóri LSH, segir öflugt vísindastarf forsendu góðrar heilbrigðisþjónustu og menntunar heilbrigðisstétta.


mbl.is LSH komist í hóp fimm bestu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo ætlum við að reisa hátæknisjúkrahús en getum nú ekki rekið það gamla.

Þetta eru nú eitt af því sem fólk ætti að hugsa til áður en það setur x við B í maí. Framsóknarflokkurinn hefur farið með þetta ráðuneyti í 12 ár og staðan hefur verið svona nær allan tíman. Fjárveitingar alltaf skornar niður í fjárlögum þó að allir viti að sú þjónusta sem við ætlumst til af sjúkarhúsinu er alltaf að aukast. Og því eru flest öll ár mörkuð af því að ríkið er að senda smá summur á haustin og á aukafjárlögum en samt aldrei nóg þannig að rekstrarhalli fylgir með í byrjun næsta árs.

Þetta er alfarið á ábyrgð Framsóknar. Það þýðir ekki að benda á Sjálfstæðisflokkinn því að ef framsókn var óánægð með fjárveitingar og fjárheimildir frá fjármálaráðuneytinu þá bar þeim að slíta stjórn eða að heilbrigðisráðherra bar að segja af sér þar sem hann gat ekki tryggt LSH nægjanlegt fjármagn til að sinna skildum sínum

Frétt af mbl.is

  Fjárveitingar til LSH í engum takti við þróun eftirspurnar eftir þjónustu
Innlent | mbl.is | 26.4.2007 | 18:56
Frá ársfundi Landspítala háskólasjúkrahúss í dag. Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna og upplýsinga á Landspítalanum, sagði á ársfundi sjúkrahússins í dag, að hún teldi fjárveitingar til spítalans á undanförnum árum vera í engum takti við þróun eftirspurnar eftir þjónustu hans. Sú eftirspurnar ætti eftir að aukast á næstu árum, m.a. vegna þróun sjúkdóma og fjölgun aldraðra


mbl.is Fjárveitingar til LSH í engum takti við þróun eftirspurnar eftir þjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þetta skýrir kannski ummæli sem ég heyrði í dag

Ég heyrði einhversstaðar haft eftir Bjarna Ármannssyni að efla þyrfti fjármálaeftirlitið til muna. Og svo las ég þetta hjá Jóni Axel:

Litla frjálsa fréttastofan hefur áræðanlegar heimildir fyrir því að mikil uppstokkun verði hjá Glitni í framhaldi af hluthafafundi á mánudaginn kemur.  Er næsta víst að Bjarni Ármannsson hætti störfum og hverfi til annarra verkefna, samkvæmt þessu sömu heimildum.

Hefur því verið fleygt að Kristín Pétursdóttir, f.v. fjármálastjóri Kaupþings og f.v. aðstoðarforstjóri Kaupþings í London, taki við forstjórastarfi Glitnis af Bjarna

Maður er bara svona að velta þessu fyrir sér.


mbl.is Fimm nýir menn í stjórn Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband