Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Eru fjármálasnillingarnir okkar bara bólur?

Það er nú farið að læðast að manni að margar af þessum hugmyndum og fjárfestingum þessara snillingar okkar séu bara bólur. Þær virðast í upphafi vera sniðugar og margir koma að og fjárfesta í þessu. Þeir frumkvöðlarnir sjálfir virðast oftast ná einhverjum hagnaði í upphafi fyrir sig en síðan virðist fjara undan þeim. Gott dæmi er FL group. Nú er þetta dæmi með Nyhedsavisen að rúlla. Íslendingarnir voru að mestu búnir að losa sig úr þeim rekstri. Nú er bara að sjá hvað kemur næst.

Það er líka spurning þegar þetta tímabil frá því að DeCode kom á markað hér og fólk keypt á uppsprengdu verði og fram tíl dagsins í dag verður skoðað, hvort að það komi ekki ljós að þarna hafa menn vísvitandi með því að setja þessi fyrirtæki á markað verið að ná sér í peninga almennings og fleiri inn í reksturinn sem þessi snillingar hafa síðna náð út úr honum aftur og tekið fyrirtækin svo aftur af markaði og eru hægt og rólega að sigla þeim í strand. Búnir að skuldsetja fyrirtækin meira en góðu hófi gegnir og þeir peningar ekki runnið allir til fyrirtækjanna í raun og veru. Stundaður einhver leikur með sölum á milli fyrirtækja í eigu sömu manna til að hækka virði þeirra á pappírum en engar raunverulegar eignir á bak við þær.

Já það verður gaman þegar þetta verður skoðað niður í kjölinn.


mbl.is Útgáfu Nyhedsavisen hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hélt að menn væru að græða svo mikið á rafmagni til stóriðju!

En úps virkjanirnar eru fjármagnaðar með lánum erlendis og þegar gengi krónunnar fellur er bara dúndrandi tap. Fyrir nokkrum árum áður en OR fór að virkja eins og brjálæðingar til að selja til stóriðju þá skiluðu þeir milljörðum til borgarinnar í formi hagnaðs. Þrátt fyrir mikla eignir þá skuldar OR nú 146 milljarða.

Það er nokkuð ljóst að það verða almennir notendur sem bera að lokum kostnaðinn ef tapið heldur áfram. Og Reykvíkingar skildu athuga það að þessi stóriðja er ekki innan borgarmarkana.

 


mbl.is Tap OR 16,4 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu er verið að þrýsta á framkvæmdir?!

Finnst þetta náttúrulega ekki gott. En manni fyndist hreinlegra hjá fyrirtæki að tilkynna starx hverjir það verða sem verður sagt upp.

Finnst þetta t.d. skrýtin vinnubrögð:

Uppsagnirnar taka gildi 31. október n.k en uppsagnarbréfin hafa ekki verið send út. Flestir starfsmenn fyrirtækisins eru á mánaðaruppsagnarfresti en sumir eru með skemmri frest. Búist er við að starfsmenn fái uppsagnarbréfin í hendurnar fyrir 1. október.

Manni gæti dottið hug að verið væri að þrýsta á um nýjar framkvæmdir. Því á www.ruv.is segir:

Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístaks, segir ástæðu þessa vera almennan samdrátt í þjóðfélaginu sem bitni snemma á verktakmarkaði. Nokkrum stórum verkefnum ljúki á næstu mánuðum, bæði við Kárahnjúka og við tvöföldun Reykjanesbrautar. 150 starfsmönnum verður sagt upp á Austurlandi og svipuðum fjölda á höfuðborgarsvæðinu. Ístak hefur ekki starfað á íbúðamarkaði heldur einbeitt sér að annarri mannvirkjagerð. Loftur segir verkefnastöðu Ístaks sæmilega góða þrátt fyrir allt og fái Ístak fleiri verkefni vonast Loftur til að geta haldið starfsmönnunum í vinnu.


mbl.is Ekki liggur fyrir hverjum verður sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er kannski ekki við hæfi að gagrýna þetta daginn sem við fögnum

En ef maður hugsar að þetta eru nærri árslaun Ljósmóður eða tvöföld árslaun verkamanns. Þá er þetta nokkuð mikið. Skil ekki af hverju við borgum fyrir ferðir Kristjáns, ráðuneytisstjóra og hans konu  í þessar ferðir. Eins vil ég minna fréttir í dag frá Samgöngunefnd Alþingis sem þurfti gistingu á Hótel Kríunesi við Elliðavatn til að vilja skoða samgöngumál í Reykjavík. Finnst það eiginleg alveg svakalegt.
mbl.is Kínaferðir kostuðu 5 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo er fólk að biðja um fleiri virkjanir og álver

Skv. þessu eru um 25 þúsund erlendir verkamenn hér á landi. Sem þýðir að öll þenslan á landinu og vöxtur er drifin af erlendum verkamönnum sem þýðir líka að ef þeir færu á einu bretti vantaði í  um 25.000 störf. Þetta er um 12% af vinnumarkaðnum.

Síðan er nú uppi barlómur um atvinnuleysi og þrengingar. Það er að minnstakosti ekki af því að það vanti atvinnutækifæri.

Ef að þetta ástand hefur ekki verið uppskrift að þenslun þá er eitthvað skrýtið. Og hvað halda menn að gersit þegar virkjanir og bygging álvera í Helguvík og Bakka bætist við?


mbl.is Íslendingar voru 319 þúsund um mitt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrjar þessi barlómur aftur hjá þessu fólki

Það er bara eins og fólki sé fyrirmunað að skilja að borga eins og Reykjavík þróast ekki eðlilega með flugvöll innan við kílómeter frá miðbæ Borgarinnar.

Og innan við Kílómeter frá Ráðhúsi Reykjavíkur, Alþingi og fleiri stöðum og flugvélar í flugtökum og lendingum fara yfir miðju bæjarins.. Flugvöllurinn hefur þegar gert það að verkum að byggð í næsta nágreni hefur ekki þróast með eðlilegum hætti. Þessi völlur meira að segja hefur áhrif á hversu hátt megi reisa hús.

Bendi á að flugvélar koma til með að fljúga yfir nýja tónlistarhúsið líka. Það eins gott að það verði vel hljóðeinangrað.

Finnst það alveg makalaust að fólk utan að landi geti ekki sett sig í spor þeirra sem eru að reyna að gera borgina lífvænlegri.

Síðan er gott að benda þessu fólki á að flugvöllurinn verður a.m.k. þarna til 2024 eða í 16 ár í viðbót þannig að fólk ætti kannski að slappa aðeins af.


mbl.is VG í Skagafirði mótmælir flutningi Reykjavíkurflugvallar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn afhenti liðinu nú fyrir nokkrum mínútum Fálkaorðuna!

Var að heyra þetta á Rás 2 Reyndar sagði Heiða að forsetinn hefði afhent þeim Riddaraorðuna en hún er að mínu viti ekki til. Þannig að þetta er annað hvort Stór Riddarakrossinn eða Fálkaorðan. Flott hjá forsetanum því hann kemst víst ekki heim þar sem hann er í stjórn Ólympíuleika fatlaðra sem hefjast þar næstu daga.

Rétt er víst að hann tilkynnti um að hann hefði ákveðið að veita þeim orðuna. Þeir fá hana afhenta síðar.

 


mbl.is Ekið á vagni niður Laugaveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær árangur hjá strákunum! Nú þyrftu Frakkar að falla á lyfjaprófum

Um leið og ég óska Strákunum og Íslandi til hamingju með árangurinn, þá var mér að detta í hug að Frakka eins og allir sigurvegarar þurfa væntanlega að fara í lyfjapróf. Nú væri gaman ef einhver þar myndi falla á því.

En grínlaust þá var leikurinn i dag kannski engin skemmtun fyrir okkur. Íslendingar geta fyrst og fremst kennt því um að þeir voru duglegir við að skjóta Franska markmanninn í stuð. Sem og að samvinnan í vörninni var ekki eins og hún hefur verið best í mótinu. Þannig að það myndaðast oft stórt pláss fyrir þá að fara í geng á miðjunni.

23 varin skot hjá frökkum á móti 10 hjá okkur segir nokkuð. En samt náum við að halda Frökkum undir 30 mörkum.

En að 320 þúsund manna þjóð nái að mynda 15 manna hóp sem fer á Ólympíuleika og vinna silfur er frábært.  Á bakvið hver einstaklinga í liðinu hjá okkur eru um 22850 manns miðað við að við séum 320.00 en hjá Frökkum eru það 2.857.000 miðað við að þeir séu 40 milljónir: það þýðir að þeir hafa á 3 milljón manna hóp að velja úr hvern leikmann á meðan við erum að velja úr 23 þúsund manna hóp hvern einstakling í liðið.


mbl.is Íslendingar taka við silfrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært markvarðapar

Nú í síðustu leikjum Ísland hefur Björgvin blómstrað og verið í heimsklassa. En mér finnst að fólk mynd sem fylgir fréttinni á mbl.ismegi ekki gleyma því að Hreiðar Leví stóð sig vel í fyrstu leikjunum og þegar hann skipti við Björgvin í riðlakeppninni. Það er frábært fyrir landsliðið að geta nú treyst á að markverðir verji kannski 15 til 20 bolta í leik. Þetta byggist nú líka á því að frábær vörn tryggir þeim að þeir fá á sig færri opin færi og andstæðingar þurfa að skjóta úr verri færum. Þetta er bara allt að smella hjá okkur.

Ekki skemmir fyrir því að dóttir mín er alveg að rifna úr monti yfir bróður sínum en það er einmitt Björgvin Páll Gústavsson.

 

Hann er ný gengin til liðs við félag í Þýskalandi. Held að gjaldkeri þess liðs sé nú glaður því að fjárfestingin margfaldar sig vegna árangurs Björgvins. Eins held ég að Guðmundur þjálfari eigi eftir að fá girnileg tilboð um að byrja þjálfun aftur erlendis.

24helgalind


mbl.is Norski landsliðsþjálfarinn spáir Íslendingum sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband