Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Bíddu Bjarni er það ekki frekar þú sem átt að víkja?

„Verði fyrirvörunum við ríkisábyrgð á Icesave-samning ríkisstjórnarinnar hafnað, verði ekki fallist á skilaboðin frá Alþingi, er ég jafnframt þeirrar skoðunar að ríkisstjórnin eigi að segja af sér,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins á opnum fundi í Valhöll í morgun

Bíddu var það  ekki Alþingi sem  setti þessa fyrirvara? Og m.a. farið að stórumhluta að tillögum stjórnarandstöðunar. Er það ekki þá stjórnarandstaðan sem hefur gjörsamlega vanmetið möguleika okkar varðandi þessa samninga? Og er það ekki ljóst að það eru sér í lagi þessir auka fyrirvarar sem settir voru inn allra síðast sem eru að ergja menn þarna erlendis?Sbr:

Sérstaka gremju vekja fyrirvarar sem tengja afborganir hagvexti og fyrirvari þar sem segir að sé skuldin ekki fullgreidd 2024 verði eftirstöðvarnar afskrifaðar. Blaðamaðurinn skrifar að með fyrirvörum Alþingis sé allsendis óvíst hvort skuldin fáist nokkurn tíma að fullu innheimt. 

Þarna segir líka

Frans Weekers, frjálslyndur demókrati sem situr á þingi fyrir Flokk fólksins, segir að upphæðin verði öll að skila sér til baka til hollenskra skattgreiðenda. Það sé óásættanlegt að þeir borgi brúsann.

Og svona skil ég ekki:

Bjarni sagði að sjálfstæðismenn hefðu tekið ákvörðun um að starfa með nýjum meirihluta í Icesave-málinu. Hann hafi samanstaðið af stjórnarandstöðu og nokkrum úr andspyrnuhreyfingunni í Vinstri grænum. Ekki hafi komið til greina að veita ríkisábyrgð á Icesave-samning ríkisstjórnarinnar.

Sér í lagi þegar hann segir svo síðar:

Andspyrnuhreyfingin og aðrir stjórnarliðar hefðu náð saman að lokum og það hefði leitt til miklu verri niðurstöðu á frumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Og hvar ætlar hann að finna "Hlutlausan dómsstól"

Þá ættum við að lýsa því yfir að Íslendingar ættu ekki að sæta þvingunarskilmálum heldur fara fram á hlutlausa dómsmálameðferð.

Og hvað ætlar hann að gera ef að dómstóll ákveður að við eigum að borga allar innistæður eða á harðari kjörum en við höfum í dag? Verður það þá viðbrögð Sjálfstæðisflokksins að "Íslendingar eiga ekki að hlýta neinum dómstól heldur"

Held að vanti í stjórnarandstöðuna raunveruleikagenin. Því í dag láta þeir eins og þetta sé einhver stjórnmálaleikur. Þeir verða að gera sér grein fyrir að þetta er dauðans alvara og getur haft gríðarlegar afleiðingar fyrir okkur næstu mánuði ef allt fer á versta veg.


mbl.is Víki verði fyrirvörum hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amen!

Nú höfum við frí frá þvessu icesave í 7 ar og getum snúið okkur að öðru. En maður veltir fyrir sér afhverju að 14 þingmenn sátu hjá! Halda þeir virkilega eftir það sem þeir hafa sagt að það að sitja hjá sé eitthvað sem fyrri þá ábyrgð á málinu. Frumvarpinu var jú breytt eftir þeirra óskum en svo vilja þeir ekki standa með ábyrgðinni.

P.s. Krónan hefur hækkað um 3% á tveimur dögum. Markaðurinn bregst strax við því að við skulum vera að klára einhver mál.


mbl.is Icesave-frumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bendi á eftirfarandi staðreynd

Sigumundur Davíð talaði í dag um að Icesave væri mesta hneyksli Íslandssögunar. En honum væri holt að lesa eftirfarandi eftir Egil Helgason:

Stóra hneykslið

Icesave er ekki mesta hneyksli íslenskrar stjórnmálasögu.

Það er alveg rangt hjá Sigmundi Davíð.

Icesave er hins vegar afleiðing mesta hneykslis íslenskrar stjórnmálasögu.

Sem er að stjórnvöld skyldu horfa aðgerðalaus upp á klíkur “óreiðumanna” taka völdin í landinu – nei, beinlínis hjálpa þessum klíkum að ná völdum – og aðhafast ekki neitt þegar fjármálakerfi þjóðarinnar var fór gjörsamlega úr böndunum uns ekki varð komist hjá huni.

Sigmundur Davíð mætti gefa þessu gaum, en kannski ekki von til þess


mbl.is Icesave-umræðu að ljúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þar með er komin friður fyrir þessu Icesave og hægt að snúa sér að öðru

Held að 80% af þjóðinni verði fegin að þetta mál sé komið í farveg og ætti í sjálfu sér ekki að trufla okkur meira næstu mánuði og ár. Og því hægt að snúa sér að öðrum áríðandi málum.

Held að þessi lausn sé sú sem þjóðin er búin að sætta sig við að sé eina lausnin. Sbr. að aðeins 300 manns mættu á Austurvöll í dag en um 100 þúsund mættu í bæinn um síðustu helgi að horfa á flugeldasýningu.


mbl.is Atkvæðagreiðsla um Icesave á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegir Íslendingar!

  • Við vorum ekki að æsa okkur svo yfir að Geysir Green væri að kaupa hluta í Hitaveitu Suðurnesja. Við vorum ekki að æsa okkur yfir því þó að Orkuveita Reykjavíkur væri að kaupa hluta í Hitaveitunni þó að fólk ætti að gera sér grein fyrir að OR var að kaupa hluta í samkeppnisaðila.
  • Við erum búin að setja lög sem tryggja að orkuauðlindir eru í almannaeign. HS orka hefur aðeins nýtingar rétt í afmarkaðan tíma.
  • Við erum til í selja Álverum orku sem er alveg sambærilegt því t.d. öll orka Kárahnjúka er bundin Reyðaráli í 30 til 40 ár.
  • Við erum að vonast eftir erlendum fjárfestingum en við við bönnum að það sé í sjávarútvegi, er verið að reyna að koma í veg fyrir að það verði í landbúnaði.  Hvað mundir fólk segja ef að einhver vildi kaupa Eimskip. Þá held ég að menn yrðu brjálaðir.
  • Man fólk eftir því þegar að:
    • Irvin olíufélagi vildi koma hingað?
    • Hvernig að allir neituðu Bauhaus um lóð hér í lengri tíma?
  •  Það eins sem útlendingar hafa virkilega fengið að fjárfest í er stóriðja. En það gengur ekki til lengdar.
  • Fólk vill kannski frekar að snillingarnir sem settu hér allt á höfuðið séu þeir einu sem fjárfesta hér til framtíðar.
  • Fólk búið að gleyma að GeysirGreen á nú meirihluta í HS orku. Og það skilgetin afurð snillingana í bönkunum hér fyrir hrun.

Get ekki skilið ef að Magma er fyrirtæki sem við skoðun reynist almennilegt og með raunhæfar áætlanir sé eitthvað verra en hálf sturlaðir Íslenskir fjárfestar. Eða að ríkið þurfi að skaffa um 12 milljarða til að kaupa þennan hlut OR.

Ef að málið er að útlendingar megi bara fárfesta hér á einhverjum sviðum sem við höfum ekki áhuga á þá kemur ekkert fjármagn hingað eða við þurfum að gefa þeim eitthvað í staðinn eins og orku til stóriðju.

Er ekki frekar ráð að tryggja hagsmuni almennings með lögum reglum. Gera ríkar kröfur til fjárfesta um orðspor og reynslu og hætta þessari sveitamennsku.

Auðvita á ekki að leyfa þeim að vaða hér yfir okkur á skítugum skónum en fyrr má nú aldeilis fyrr vera.

Síðan má benda fólki á að það telur ekkert óeðlilegt að Íslensk fyrirtæki fari í framkvæmdir á orkusviðinu í öðrum löndum.


mbl.is Segir óraunhæft að ríkið kaupi hlut í HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já var það ekki!!!!!!!!!!!!!!!!

 Segja sjálfstæðismenn m.a. að það sé fáheyrt, að ríkisstjórn sjálfstæðs og fullvalda ríkis skuli afsala sinni eigin þjóð jafn mikilsverðum og sjálfsögðum rétti eins og íslenska ríkisstjórnin hefur gert með undirritun sinni undir lánasamningana við Bretland og Holland

Þarna mæla fulltrúar flokks sem leiddi þetta Icesave mál fram til febrúar 2009. Flokkur þar sem fulltrúar hans skrifuðu undir viljayfirlýsingu um samning þar sem átti að borga 6,7% vexti og að afborganir hefðust eftir 3 ár. Um leið og fulltrúar þessa flokks skrifuðu undir samkomulag um að fara samningaleiðina. En nú þegar þeir eru í stjórnarandstöðu þá hefðu þeir getað gert þetta svo miklu betur. Minni líka á að samninganefndin fyrir utan Indriða og Svavar var sú sama og Geir og Árni skipuðu í þetta mál í upphafi.


mbl.is Gegn hagsmunum Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á hún við með bæði fimmtudag og föstudag?

Nú var þessir ræða Sigmundar á fimmtudag. En hvað gerðist á föstudag í þingsal sem var þinginu ekki samboðið? Hef alveg misst af því.
mbl.is Ragnheiður: Ekki þinginu sæmandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru menn að flýja sökkvandi skip?

Nei maður er bara að velta þessu fyrir sér! En sennilega þurfa skjólstæðingar Sjálfstæðismanna á öllum þeim lögfræðingum að halda sem bjóðast. Þannig að það verður uppgrip á lögmannastofum næstu árin
mbl.is Árni hættir hjá Sjálfstæðisflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú ættu að vera allar forsendur fyrir þessum skaðbótamálum

Nú gildir að hraða þessari vinnu! Gögnin eiga að liggja fyrir. Ef að þarf lagabreytingu til að lögmenn ríkisins fái aðgang að gögnum sérstak saksóknara ef þeir þurfa, þarf að hraða henni. Allt er betra en að fólk fari að taka lögin í eigin hendur.

Finna út hverjir þetta eru, hvaða tjón þeir hafa valdið okkur og koma þeim fyrir dóm. Byrja bara á einhverju auðsannanlegu til að koma þessu í gang.

Og í þessu sambandi vill ég að endurskoðunarskrifstofur verði lögsóttar. Mér finnst engin hemja að starfsmenn þessara endurskoðunarfyrirtækja sitja í flestum af öllum vafasömu skúffufyrirtækjum sem notuð voru til að fela peninga. Þannig hef ég séð lista á netinu þar sem þeir eru skráðir í stjórn um 50 fyrirtækja hver.  Þessar skrifstofur eru sennilega hönnuðir að þessari spilaborg sem nú er að hrynja. M.a. hvernig átti að fela peninga erlendis og fleira.

 


mbl.is Höfða einkamál gegn hrunfólkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andskotans pakk

Ég veit ekki hvað þetta fólk heldur að það sé að græða með þessum skemmdarverkum. Andskotans pakk sem er búið að finna sér ástæður til að fá útrás fyrir skemmdarfíkn sína. Og eins sem vinnst er að eignir þessara manna rýrna um það sem nemur kostnaði við hreinsun og lagfæringar. Og það hefur engin beðið þetta fólk um að gerast dómarar og böðlar. Vona að þessi skríll náist og verði sett inn svona til að átta sig.
mbl.is Málningu úðað yfir bíl Björgólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband