Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Var Steingrímur ekki búinn að kanna þetta áður?

Veit ekki betur en fyrir rúmum mánuði hafi fjármálaráðherra og forsetisráðherra Noregs einmitt verið að segja að  þeir biðu eftir lánum frá AGS áður en þeir veittu okkur lán. Steingrímur fór þarna út m.a. áður en fór í ríkisstjórn. Eins hafa þeir marg oft verið spurðir um láns sitt sem þeir tengja alltaf við AGS.

Svo að ég kaupi þetta nú varla. Að það sé nóg að einhver þingmaður skreppi til þeirra og komi til baka með svona tilboð. Hefði nú haldið að á þeim mörgu fundum sem Össur hefur átt með þeim hefði þetta tilboð komið.

 En það getur verið a Noregur sjá þar með tækifæri á að seinka inngöngu okkar í ESB en það er ótrúlegt. 

Og ég ítreka að Noregur hefur neitað okkur um lán nema að við göngum frá Icesave. En kannski er Höskuldur kraftaverkamaður. Og kannski rétt að senda hann í leiðinni til Bretlands og Hollands og redda þessu Icesave. 


mbl.is Vilja lána 2000 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegir stjórnmálamenn!

Ef að það er rétt að nærri eina sem stendur út af varðandi Icesave málið sé hvað eigi að gera við eftirstöðvarnar árið 2024 þá finnst manni þessi læti nú alveg út í hött! Eins og fyrirvarinn um ríkisábyrgð var kynntur frá Alþingi var að ef það yrðu eftirstöðvar á þessu láni árið 2024 þyrfti að semja að nýju um þær eftirstöðvar. Sumir gengu með þá grillu að þá mundi greiðslur bara falla niður. Finnst það nú full mikil bjartsýni.

Minni fólk á að við eigum ekkert að borga af þessum lánum næstu 7 árin. Og því eru þessi lán ekki að íþyngja okkur nú næstu ár. Og því skil ég ekki hvað menn halda að vinnist með því að halda hér öllu í frosti næstu mánuði fyrir breytingu sem hljóðar í raun upp á að við semjum nú um eftirstöðvar í stað þess að bíða til 2024. Og eins að það veit enginn hvort það verða miklar eftirstöðvar þá. T.d. ef að gengi krónunnar leiðréttir sig um 30% sem sumir telja það sem krónan ætti skv. öllu að vera þá lækkar icesave skuldin um 250 milljarða. Og eins ef að kreppunni í Evrópu er að ljúka eins og margir spá, þá eru líkur á að það innheimtist mun meira af þessum eignum Landsbankans.

Skil ekki hvernig einhver ráðherra getur nú rétt þegar kynna á frumvarp til fjárlaga haldið að það hjálpi að segja sig úr stjórninni núna? Og það ráðherra sem er í heilbrigðismálum.


mbl.is Telur ríkisstjórnina lifa af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðuleg fréttaskýring

Svona miðað við allt og allt er 2,8% landsmanna er nú bara held ég um 7 til 8 þúsund manns.  Og miðað við að það fæðast hér um 5 þúsund á ári þá finnst manni þetta nú bara ágætt. Og um 18 þúsund manns reikna með að kaupa bíl hér á landi á næsta ári. Þetta er nú bara hátti þó nokkuð miðað við hér er kreppa og ótryggt ástand.

Þetta er eins og með gjaldþrot fyrirtækja. Að það sé aðeins um 17% aukning er náttúrulega furðulega lítið. Og rétt aðeins yfir venjulegu ári hér.

En það er um að gera fyrir fjölmiðla að reyna að gera úr þessu æsifréttir!


mbl.is Afar fáir ætla að kaupa íbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki skrýtið að erlendir aðilar efist um greind okkar og sér í lagi eignarfólk hér á landi.

Er það furða þó að fólk um allan heim furði sig á þeirri ráðstöfun að ráða mann sem almennt um allan heim er talin einn af helstu gerendum í hruninu. Mann sem að mótmælendur í janúar reyndu að bera út úr Seðlabankanum.

En svo eftir að hann hættir þar þá ráða eigendur Moggans hann sem ritstjóra. Þetta sýnir að þeim er alveg sama um þessa fjárfestingu sína í Mogganum og það sé fórnandi milljörðum til að koma Sjálfstæðisflokknum aftur til valda.

Reyndar væri gaman að vita hversu mikið af raunverulegum peningum núverandi eigendur hafa lagt Mogganum til. Væri ekki hissa þó þeir hafi fengið lán til þess og sé því sama hvort og hvað verður um Moggann þegar hann hefur lokið hlutverki sínu að koma Sjálfstæðisflokknum aftur til valda.


mbl.is Ráðning Davíðs vekur athygli ytra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn eru kannski að gleyma einu atriði þegar þeir deila á vandræðaganginn í þessu máli.

Það sem menn þyrftu að átta sig á er eftirfarandi:

  • Við höfum ekki að gang að fjármagni á kjörum sem gera virkjunarframkvæmdir arðbærar
  • Því virðist það stefna í það að þær virkjanir sem verða hér á landi á næstunni verði í formi þess að um þær verða stofnuð félög. En það er gert til að erlendir fjárfestar og fyrirtæki geti að hluta til eða öllu leyti fjármagnað þessar framkvæmdir. Sbr. þessa frétt af www.visir.is

Viljayfirlýsingin, sem brátt er úr sögunni, er milli ríkisstjórnarinnar, sveitarfélagsins Norðurþings og Alcoa. Í staðinn boðar iðnaðarráðherra nýja viljayfirlýsingu um orkunýtingu milli ríkisstjórnarinnar og viðkomandi sveitarfélaga. Sveitarfélagið Norðurþing áformar síðan í beinu framhaldi, samkvæmt heimildum fréttastofu, að gera nýja viljayfirlýsingu við Alcoa um álver á Bakka. Þannig verður í raun aðeins formbreyting án þess að undirbúningur nýs álvers þurfi að stöðvast.

Stjórnarsamþykkt Landsvirkjunar í síðasta mánuði styrkir enn frekar áformin en þar var forstjóra falið að undirbúa stofnun félags með Þeistareykjum og Alcoa um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum. Hugmyndin er að inn í félagið verði færður sá kostnaður sem aðilar þess hafa lagt og munu leggja í undirbúningsvinnu. Með því verður unnt að verðleggja framlag hvers og eins, sem auðveldar það að kaupa einhvern út síðar meir eða að hleypa öðrum að.

  • Eins var haft efti Friðrik Sófussyni svipað um daginn varaðndi virkjanaframkvæmdir á næstunni hjá Landsvirkjun. Þ.e. stofna um hverja virkjun sérstakt félag.
  • Og í framhaldi af þvi er rétt að minna fólk á lætin sem hafa verið í hring um HS ORKU.

Ekki það að ég hafi á móti því að útlendingar komi að virkjunum hér sem selja orku til stóriðju en áður en til þess kemur þurfum við að tryggja og takmarka hversu mikið þeir geta eignast og að fyrirtæki erlendra aðila eignist ekki nýtingarrétt auðlinda okkur um aldur og ævi.


mbl.is Samtök iðnaðarins gagnrýna vinnubrögð stjórnvalda harðlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andskotist nú til að klára þetta.

Við erum að tala um eftirstöðvar lánsins árið 2024. Við höfum 15 ár til að finna á þessu lausn! Alþingi verður að setjast niður hið snarasta og taka upp fyrirvarana og bæta við 10 ára ábyrgð í viðbót. Það gegnur ekki að hér sé allt í frosti lengur og Icesave er hluti af því sem hindrar okkur. Og ef rétt er að kreppunni sé að ljúka í Evrópu og uppsveifla sé á næsta leiti þá fáum við mun meira upp í lánin frá eigum Landsbankans og þó svo væri ekki þá töpum við umtalsvert meira á að draga það að ganga frá þessu máli.
mbl.is Vilja tryggingu fyrir eftirstöðvum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja nú er rétt að aflýsa greiðsluverkfalli!

Var búinn að heyra þetta fyrr í dag. Mér skilst að þetta nái til bæði íbúða og bílalána. Þ.e. að í raun verði um að hluti lána verði tekin út fyrir sviga. Kostnaður sem fellur til í framtíðinni vegna afskrifta á verðtryggð lán falla á ríkið en af gengistryggðu lánunum á bankanna.  En beðið verður með afskriftir í einhver ár á því sem hefur bæst við lánin. Því er þetta ekki kostnaður sem fellur núna á ríkið eða bankana.

Nú reiknar maður með að Hagmunasamtökinn aflýsi greiðsluverkfalli!


mbl.is Greiðslubyrði aftur fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tillögur Samfylkingarinnar varðandi vanda heimilanna

Var að heyra áðan undan og ofan á tillögum Samfylkingarinnar (eða ríkisstjórnarinnar?) um hvað á að gera í málefnum skuldugra heimila. Held að þær komi til með að koma betur á móts við heimili en fólk heldur. Ég ætla ekki að segja frá þeim að sinni við skulum bíða eftir að heyra í Árna Páli og Jóhönnu í dag á flokksráðsfundi Samfylkingarinnar.


Við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna!

Hlutstaði á Davíð á Skjá 1 í kvöld. Datt í hug nokkrar spurningar sem vantaði í viðtalið!

  1. Í framhaldi af því sem Davíð sagði um IceSave hefði Sölvi átt að spyrja hvort það hafi ekki verið nokkuð ljóst að upphaf þvingana Breta og Hollendinga hafi hafist einmitt eftir að Davíð mætti í Sjónvarpið og sagði m.a. eitthvað á þá leið að við ætluðum ekkert að borga skuldir óreiðumanna í útlöndum?
  2. Eins ef þetta voru óreiðumenn - Hversvegna í andskotanum var hann að selja þeim bankana?
  3. Eins var vitað að Neyðarlögin voru samin að hluta af starfsmönnum Seðlabankans og fleirum sem hann kallaði til þeirrar vinnu.
  4. Ef að Morgunblaðið ætlar að hefja andstöðu gegn ESB inngöngu og IceSave væri kannski rétt að hann skýrði frá því hvort að hann ætlist til að þeir blaðamenn sem hafa fjallað um kosti við ESB og um Icesave skipti um skoðun?
  5. Eins væri gott að hann skýrði af hverju að ríkisstjórn hans og þeirri næstu sem hann var utanríkisráðherra í settu bönkunum ekki stífari reglur og lög.
  6. Eins af hverju að ríkisstjórn hans var á móti því sem þeir kölluðu "eftirlitsiðnað" og töldu að fyrirtækin ættu að sjá sjálf um það með innra eftirliti. Og af hverju kerfisbundið var dregið úr mætti eftirlits eins og samkeppniseftirlits og FME?
  7. Og eins væri gott að hann og aðrir skýrðu okkur frá því af hverju að aðrar þjóðir sem eru í EES samstarfinu lentu ekki í að bankarnir blésu svona út eins og hér! Það er jú nokkuð ljóst að þeir höfðu alla burði til þess en voru með mun meira aðhald!
  8. Og eins væri gott ef að hann skýrði frá því ef hann vissi með löngum fyrirvara í hvert stefndi, hvíslaði hann því bara í símtölum við Geir og stundum Ingibjörgu? Af hverju gerði hann ekki eitthvað í því sem Seðlabankastjóri að koma þessu almennilega á framfæri.
  9. Eins hefði Sölvi mátt spyrja hvort að staðreyndin sé ekki sú að t.d. Bogi og Elín Hirst séu bæði sjálfstæðisfólk. Og meira að segja Útvarpsstjóri? Og eins hvort að allt fréttamat sem ekki er samþykkt af Valhöll sé áróður fyrir samfylkingu?

Var að hugsa um að hætta að blogga en sé maður yrði vitskertur að geta ekki tjáð sig þegar svona baunabyssur koma fram aftur.


mbl.is Davíð: Mun nýta reynslu úr fyrri störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband