Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Nokkuð ljóst hver ástæðan er á bak við þessa hugmynd um "Þjóðstjórn" í Reykjavík

Það bíða borgarstjórnarmanna alveg ógurlega erfiðar aðgerðir næstu árn vegna skuldsetningar og Sjálfstæðisflokkurinn vill eðlilega að hann verði ekki látinn bera það einn. Þetta gildir um fleiri skuldsett sveitarfélög. Þessar ógurlegu skuldir hljóta að kalla á erfiðar aðgerðir næstu árin.
mbl.is Útiloka ekki „þjóðstjórn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott framtak hjá Ólafi Þór!

Ég trúi ekki öðru en að Samfylkingin taki undir þetta og fylgi þessu eftir. Það er ýmislegt skrítið sem hefur gerst í Kópavogi síðustu áratugina. Eins hefði ég viljað að það yrði skýrt almennilega fyrir okkur almenningi í Kópavogi hvernig nákvæmlega við erum lent í því að skulda nú yfir 40 milljarða.

Eins vill ég að hér í Kópavogi verði formlega hætt að mæla lífsgæði í því hversu ört það fjölgar í bænum og hversu mikið sé byggt.  Ég vill fá bæjarfélag sem hugar fyrst og fremst að því að veita fólki fyrirmyndar þjónustu sem þegar býr í bæjarfélaginu. Ég hef ekki séð í gegnum tíðina að þessi öra fjölgun hér í bæjarfélaginu hafi skilað t.d. lækkun á útsvari eða öðrum gjöldum. Man ekki eftir því að útsvar hér í Kópavogi hafi alltaf verið í hámarkinu. Og manni finnst hart að hluti af útsvari mínu hafi farið í hina ýmsu greiða við byggingaóða verktaka og ýmis gæluverkefni bæjarstjóra.


mbl.is Rannsóknarnefnd fari yfir stjórnsýslu í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðuleg ályktun!

Það er furðulegt að Ungir VG séu nú fyrst að fatta að Samtök Iðnaðarins séu hagsmunasamtök. Og eins þá væri kannski rétt fyrir þau að átta sig á í hvað þessi gjöld voru notuð!

Iðnaðarmálagjald er lagt á flest iðnfyrirtæki í landinu og hefur verið 0,08% af veltu. Peningarnir hafi verið nýttir til iðnþróunar en einnig til menntamála, nýsköpunar og verkefna á borð við Veljum íslenskt og aðgerðir gegn svartri atvinnustarfsemi. Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að óvíst sé hvort framhald verði á þessum verkefnum

Furðulegt að Vg sé á móti þessu!


mbl.is Segja SI pólitísk hagsmunasamtök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er stjórnlagaþing það sem bjargar hér öllu?

Hef síðustu daga verið að velta fyrir mér ummælum allra þeirra snillinga sem kallaðir eru líka álitsgjafar á góðum stundum. Í síðustu viku voru allir að tala um leyndarhyggju. Nú eru allir að tala um stjórnlagaþing. Og fólk lætur mata sig á því að slíkt þing reddi bara öllu. En ég spyr hvernig á þetta þing að leysa vandamálin sem við stöndum frami fyrir í dag.

Ég veit að þessi stjórnarskrá okkar er meingölluð:

  • Í henni er viðhaldið mismunun varðandi kosningar þar sem að atkvæði hafa mismunandi vægi eftir því hvaða landshluta er um að ræða.
  • Ég veit að það þarf að endurskoða kafla um forsetan
  • Það þarf að setja inn ákvæði um eign þjóðarinnar á auðlindum.

En ég sé ekki hvaða ákvæði í henni koma til með að stuðla að friði hér milli hópa. Ég sé ekki hvaða ákvæði í nýrri stjórnarskrá leysir úr skuldavanda heimila, lækkar þjóðarskuldir eða þessháttar.

Auðvita vantar líka í stjórnarskrá skýrari ákvæði um ábyrgð fólks (t.d. ráðherra) og sitthvað en ég sé ekki hvaða brýna vanda ný stjórnarskrá leysir.

Eins sé ég ekki hvernig á að velja á þetta stjórnlagaþing? T.d. handahófsval úr þjóðskrá myndi þýða að þar veldust kannski fólk þar sem meirihlutinn hefur ekkert velt þessu fyrir sér. Og reynsla mín af hópstarfi er að þeir sem hafa áhuga móta allar tillögur sem svo þeir í hópnum sem ekki  hafa áhuga samþykkja. Er það besta leiðin.

 

Eins er að angra mig umræða um styrki og dauðalista Hreyfingarinnar sem m.a. varaþingmaður þeirra leiðir vinnu við að hrinda í framkvæmd sbr þetta hér.

Á lista þeirra eru þingmenn sem hafa þegið styrki yfir ákveðinni upphæð árið 2006. En af hverju eru allir þingmenn sem þegið hafa styrki í prófkjör frá fyrirtækjum tilgreindir. Er einhver sem getur dæmt um hvort að 500 þúsund kr. hafi haft áhrif á störf þingmanns frekar enn annars sem fékk 2 milljónir? Fer það ekki eftir því hverju fólk eyddi í prófkjörið og hvernig fjárhagsstaða þeirra er hugsanlega? 

Í framhaldi af því að allir þingmenn sem hafa fengið styrki til prófkjara myndu segja af sér hvaða þingmenn yrðu eftir? Og myndum við treysta þeim til að leysa þau brýnu vandamál sem þarf að vinna næstu mánuði?  Og ef við bætum við þeim sem hafa hlotið dóma fyrir að taka sér opinbert fé, stórskuldugum útgerðamönnum, þingmönnum sem verið hafa ráðherrar síðustu 6 árin og svo framvegis. Þá verður því miður ekki mjög gáfulegt líð eftir að mínu mati. Og það myndi skipta um nærri helming þingmanna. Og flestir þeirra þyrftu að læra inn á þingstörfin og ekkert myndi gerast næstu mánuði. Og hvaða fólk er að koma í staðinn? T.d. Sigurður Kári, Óli Björn eru það skárri kostur?

Væri ekki betra að einbeita sér að því að koma á þessu stjórnlagaþingi og semja nýja Stjórnarskrá, taka á brýnustu málunum næstu misseri og boða svo til kosninga eftir t.d. ár. Jú sennilega þarf hvort eð er að kjósa eftir 2 ár vegna ESB samninga.

Eða ætla menn að einbeita sér að því að því að finna einhverja patent lausn eins og Stjórnlagaþing, afsagnir, brotrekstur embættismanna, að allir á Alþingi verði vinir, afnám leyndiarhyggju og svo framvegis leysi málin? Þetta eru allt góð mál en leysa ekki vandamálin núna eða á næstunni.


Leyndarhyggja!

Alveg makalaust hvað umræðan hér á Íslandi er makalaus. Nú keppast menn hver um annan þveran að tala um "Leyndarhyggju" Og flestir taka undir þetta. Tala um að leyndarhyggja sé nú komin í hæstu hæðir eins og Sigmundur Davíð orðar það í dag.

En um hvað eru menn að tala?

Væntanlega er Sigmundur Davíð að tala um Icesave! Eða hvað annað gæti hann verið að tala um. Kannski upplýsingar frá bönkunum?

Síðan eru menn af fabúlera um að samráð eigi að vera um alla hluti og ná samkomulagi um þessi mál. HALLÓ! Af hverju heldur Sigmundur að það séu ólíkir flokkar hér á landi? Það er vegna þess að fólk aðhyllist mismunandi sýn á það hvernig hagsmunum þjóðarinnar sé best fyrir komið. Og hann ætti sem best að vita það að hann og hans flokkur er á móti því sem réttbær stjórnvöld vilja gera. Hann og hans flokkur með aðstoð Sjálfstæðismanna hafa gert í því að hamla á móti öllum stærri málum sem ríkisstjórnin vill koma til framkvæmda. Og því minnka líkurnar á því að stjórnarmeirihluti vilji hafa samvinnu við minnihlutann.

Leyndarhyggja er bara tískuorð um ekki neitt. Það er gjörsamlega vonlaust að ætla að ná árangri í samningum við nokkurn ef að allar hugmyndir þurfa að fara hér í almenna umræðu í marga mánuði eða misseri. Auk þess sem að allar ákvarðanir verða þá útþynntar og jafnvel orðnar verri en ef ekkert hefði verið gert. Það er auðvita fullt af atriðum sem allir flokkar geta unnið saman að, en ég hef ekki heyrt af neinu lýðræði þar sem meirihluti ræður ekki ákvörðunum að lokum. Og hér á landi höfum við fulltrúalýðræði. Og hér höfum við stjórn sem hefur meirihluta þingmanna á bak við sig. En stjórnin þarf að bera stærri mál undir þingið og jafnvel þjóðina.

Draumur Ögmundar og fleiri um að Alþingi geti rætt sig saman um niðurstöður þar sem allir eru sammála um stærstu mál sé draumsýn. Því að á meðan að einn flokkur talar fyrir sem mestu frelsi einstaklingsins og minnis samneyslu eru aðrir sem ræða um jöfnuð með sköttum og tryggja öllum jafna þjónustu. Þessar lífsskoðanir fara bara ekki saman.

Eins hefur Sigmundur Davíð  og síðar Sjálfstæðismenn talað fyrir lausnum í Icesave sem ekki hafa reynst framkvæmanlegar. Ríkisstjórnin hefur talið að við eigum ekki annarra kosta en að semja. Ríkisstjórnin byggir það á áliti stjórnkerfisins og sérfræðinga erlendis. Sem og stöðu okkar. Þessar skoðanir eru ekki sambærilegar og mér sýnist að hugmyndir Sigumundar um samráð sé að ríkisstjórnin gefi bara eftir og hann fái að ráða þessu.


mbl.is Framsóknarflokkur biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef að fólk fer inn á vef Ríkisendurskoðunar þá sjá menn að ýmsir eru að sleppa vel í umræðunni.

T.d má sjá þetta úr uppgjöri þingmanna vegna prófkjara og kosninga 2007

Frambjóðandi: Guðlaugur Þór Þórðarson
Sjálfstæðisflokkur
Reykjavík
Framlög Skýr. 2007
Framlag frá lögaðilum ........................................................................... 1 17.730.000
Framlög einstaklinga ............................................................................. 2 7.100.000
24.830.000
1 Framlög lögaðila 2007
Óskar nafnleyndar..............................................500.000
Óskar nafnleyndar............................................. 750.000
Óskar nafnleyndar............................................. 1.000.000
Óskar nafnleyndar..............................................1.000.000
Óskar nafnleyndar............................................. 1.000.000
Óskar nafnleyndar..............................................1.000.000
Óskar nafnleyndar............................................. 1.500.000
Óskar nafnleyndar............................................. 1.500.000
Óskar nafnleyndar............................................. 2.000.000
Óskar nafnleyndar..............................................2.000.000
Óskar nafnleyndar............................................. 2.000.000
Framlög lögaðila undir 500 þús.kr. hvert.............3.480.000
Framlög lögaðila samtals 17.730.000
2 Framlög einstaklinga
NN.............................................................500.000
NN.............................................................500.000
NN............................................................ 1.000.000
NN............................................................ 1.000.000
NN..........................................................   1.000.000
NN............................................................ 1.000.000
NN............................................................ 1.500.000
Framlög einstaklinga undir 500 þús. kr. hvert................. 600.000
Framlög einstaklinga samtals 7.100.000

Og þó nokkrir þingmenn með mjög háa styrki.

Steinun Valdís er með á þessum tíma:

1 Framlög lögaðila
Landsbanki Íslands......................................2.000.000
Baugur.......................................................1.000.000
Fl Group hf.................................................1.000.000
Framlög lögaðila undir 500 þús.kr. hvert......650.000
Framlög lögaðila samtals 4.650.000

En síðan bætast við styrkir sem hún fékk vegna sveitastjórnakosninga árið áður.

Skrítið að engin sé að mótmæla hjá öllum hinum. Margir fengu háa styrki en komast upp með að stíla þá á góðkunningjana "Óskar nafnleyndar" og "NN"

En það sem mér finnst skrítið er að þessar upplýsingar lágu frami fyrir síðustu kosningar. Og fjallað um þær þá. Hvað verður þess að verkum að þessi óþjóðalýður byrjar að ráðast að Steinunni nú? Það er hlýtur að vera skipulagt. T.d. af hverju frekar hún en t.d. Árni Johnsen sem ráðstafaði ríkiseignum eins og þær væru sínar eigin eða Ásbjörn Óttarsson sem er á þingi og á fyrirtæki sem á skuldsettan kvóta upp á milljarða og borgar sér úr arð af tapi. Og af hverju komust t.d. þessir ekki á dauðalista Hreyfingarinnar.

Hvet fólk til að lesa pistil Þráins Bertelssonar og eins þessa grein

P.s. Gleðilegt sumar!

Gleiðilegt Sumar


mbl.is Segir ásakanir á hendur sér rangar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki hægt að smúla þessu í burtu?

Hef verið að hugsa! Mér var að detta það í hug hvort ekki sé möguleiki  á að gera lífvænlegra þarna á þeim bæjum sem verst urðu úti með því að beina þangað tækjum frá slökkviliðum og haugsugum og fleiri og hreinlega byrja að múla öskunni frá bæjarstæðunum a.m.k. ef ekki túnunum líka. Það var jú reynt að kæla hraun í Vestmannaeyjum til að stoppa það. Af hverju ekki að reyna að hjálpa rigningunni að skola þetta í burtu. Slökkviliðin eiga bíla með háþrýstidælum og við eigum nóg vatn. Er ekki hægt að reyna þetta?

A.m.k. Þannig að fólk geti farið þarna milli húsa án þess að verða á kafi í ösku. Og jafnvel til að hjálpa túnum að taka við sér aftur.


mbl.is Svifryk mælt á Suðausturlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ég að trúa því að Ólafur skilji þetta ekki?

Ólafur Ragnar hlýtur að sjá að það er nauðsynlegt að upplýsingar um stöðu mála séu samræmdar sem héðan koma. Hann er ekki eins og hver annar álistgjafi. Og ekki er hann hér einvaldur. Hann hlýtur að sjá að hann verður að ráðfæra sig við stjórnvöld áður en hann fer með skilaboð frá Íslandi tíl útlanda.

 T.d. hefur verið bent á að í þeim tilfellum sem Katla hefur gosið í tengslum við gos í Eyjafjallajökli hafa þau gos ekki verið mikið stærri en gosið sem er nú í Eyjafallajökli. Eins þá er aðalhætta af Kötlu flóðahætta. Og hann sem reyndur stjórnamálamaður og ráðherra hlýtur í ljósi undangengina atburða að sjá nauðsyn þess að fara nú ekki fram úr sér og bera svona mál undir sérfræðinga að minnsta kosti áður en hann ræðir við alþjóðlega fjölmiðla.


mbl.is Óábyrgt að draga fjöður yfir goshættuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara að benda á eftirfarandi frétt um Óla Björn

Las eftirfarandi á www.dv.is

Óli Björn Kárason er varamaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem hefur ákveðið að láta af þingmennsku tímabundið. Hann skuldaði, síðla árs 2005, 478 milljónir króna en á þeim tíma var hann eigandi útgáfustjóri Viðskiptablaðsins. Lánin voru öll veitt frá Kaupþingi og voru flest veitt til ÓB-fjárfestingar (í eigu Óla Björns) og félaga í meirihlutaeigu þess félags. Eitt þeirra gaf út Viðskiptablaðið.

Og kannski þetta líka af www.dv.is

Það vakti nokkra athygli í gær þegar tilkynnt var á vefnum amx.is að báðir ritstjórarnir, Jónas Haraldsson og Óli Björn Kárason, hefðu hætt. Vangaveltur eru uppi um það hvort Óli Björn hafi sett þennan „fremsta fréttaskýringarvef“ Íslands á hausinn.

Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, er oddviti þeirrar kenningar: „Er ÓBK þá líka búinn að setja AMX ,sem kallar sig „fremsta fréttaskýringamiðil landsins“ á hausinn ? Það er vissulega afrek , – eða þannig,“ bloggar Eiður á Eyjunni. Vísar Eiður þarna væntanlega til fortíðar kappans í viðskiptum


mbl.is Óli Björn tekur sæti Þorgerðar á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áskorun til þingmanna Hreyfingarinnar

Það á náttúrulega ekki að þurfa að benda þessu fólki í Hreyfingunni að þau þurfa kannski að skoða stöðu sína líka fyrst að þau eru að hnýta í aðra.

  • Fyrir það fyrst þá kaus enginn kjósandi í síðustu kosningum Hreyfinguna
  • Því má segja að þessi flokkur þeirra sé umboðslaus á þingi.
  • Þau sitja þar fyrir mörg atkvæði sem stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar fékk. En þau klufu sig úr henni innan nokkra mánaða.
  • Þannig að þau sitja nú með stefnu sem þau mótuðu eftir að hafa verið kosin á þing á öðrum forsendum.
  • Þetta er ekki akkúrat eitthvað sem styrkir trú fólks á lýðræði.

Ekki það að ég tel að það sé gott að fólk taki ábyrgð á sínum gerðum og segi af sér ef þau hafa ekki staðið sig.

En einhverstaðar verður að stoppa og nýir þingmenn á Alþingi hafa ekki vakið traust hjá mér. Þeir halda uppi gjörsamlega ómálefnalegri gangrýni í stað þess að vinna að því að koma landinu til bjargar. Málflutningi sem snýst um "að allt sem kemur frá stjórnvöldum er slæmt og þarf að berjast gegn".  Ekki komið neitt til móts við stjórnvöld þó menn viti að flestar lausnir eru og verða málamiðlanir á milli ólíkra skoðana.

Ekki endilega að segja að Hreyfingin far fremst í því en framkoma þeirra sl. sumar þegar þau ætluðu að nota ESB aðildarviðræður sem þvingun á stjórnvöld það var svik við það sem þau höfðu staðið fyrir og Borgarahreyfingin hafði sagt og þá bar þeim að segja af sér og hleypa varamönnum að.


mbl.is Þingmenn Hreyfingar skora á þingmenn að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband