Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011

Ég get orðið brjálaður

Ég get orðið brjálaður þegar fólk talar um samskipti milli landa eins og sumir gera í Silfrinu núna. Mestu framfarir á Íslandi hafa orðið með auknum samskiptum okkar við önnur lönd. T.d. vorum við svo fátæk þegar við gerðumst aðilar að EFTA að við þurftum gríðarlegan stuðning frá ríkjum í EFTA til að geta staðaið við okkar skuldbindingar. Við gerðum líka áður samning um aðgang okkar að samstarfi Norðurlandaþjóða. Og eftir inngöngu okkar í EES hafa lífskjör þrátt fyrir hrunið tekið stakkaskiptum. Fólk ætti að minnast þess að um 1960 vorum við með fátækustu þjóðum Vestur Evrópu.

Og alltaf þegar við höfum ætlað að ganga til samstarfs við aðrar þjóðir hafa komið hér menn sem hafa haldið þvi fram að strax myndu hér erlendir aðilar fylla miðin okkar og veiða allan fiskinn, kaupa upp allt land hér og við yrðum bara fátækir leiguliðar. Ekkert af þessu hefur staðist og við gert skv. sérfræðingum mjög gjóða samninga í öll skiptin.

Og það er alveg sama hvað horft er til varðandi samskipti við önnur lönd. Hér leggjast öfgamenn á google og finna einhverjar greinar sem þeir sjaldnast vísa beint til en oft skrifaðar af fólki með öfgaskoðanir sem sjaldnast standast skoðun. 

 


mbl.is Huang gagnrýnir Vesturlönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er þetta lausnamiðaður ráðherra.

Þó hann hafi flutt um það lærðar ræður á Alþingi 2008 sér í lagi 2009 að menn eigi að ræða sig niður á heppilegar lausnir.

Nokkrir punktar:

  • Ögmundur alveg búinn að gleyma því að það eru 6 einstaklingar sem eiga 75% af Grímsstöðum á Fjöllum og Ríkið 25%. Þannig að hann er að sýsla með land sem Hann hefur ekki yfir að ráða.
  • Skv. lögfræðiingum þá skiptir það ekki höfuð máli hvort það er hlutafélag eða einstakingum sem sækir um undanþágur frá þessum lögum.
  • Hefði það ekki verið sterkara hjá honum að reyna að vinna út þessu vandamáli t.d. með því að bjóða honum hluta ríkisins að leigu og undanþágu um leið því að útlendingar mega ekki leigja land nema með undanþágu.
  • Hefði ekki verið sterkara hjá ráðherra sem er í ríkisstjórn sem er að skera niður vegna lækkaðara tekna að leita eftir því hvort að um hugsaleg kaup  mætti semja þannig að kalla að borðinnu alla eigendur og svo Nubo og ræða um hugsanlega langtímaleigu og skilyrði. Í stað þess að liggja á þessu í nærri 3 mánuði og koma svo fram með neitun með skýringum sem standast ekki. Því sérfræðingar í eignarrétti og lögum segja að ráðherra sé sett í lögum sjálfdæmi um svona undanþágur þannig að þær skapi ekki fordæmi.
  • Heldu hann virkilega að þetta útspil hans hjálpi ríkisstjórninni eitthvað.
  • Hefur hann gert sér grein fyrir því að erlendir Fjárfestar hlutsta á og lesa fréttir nú eru kominn 2 mál Magma og svo þetta. Og næsta víst að þetta er ekki hvetjandi fyrir fjárfesta að koma með peninga inn í land þar sem þeir mæta óvild og þurfa að berjast í mánuði við að fá svar frá ráðherra sem talar þvert á aðra ráðherra.

Hélt að maður sem var vanur að leiða séttarfélag í samningaviðræðum gerði sér betri heildarmynd af hagsmunum okkar nú. 

  • Á Íslandi þarf að skapa um 5000 þúsuns ný störf á ári vegna þess að árgangar komandi á atvinnumarkað eru svo stórir og Íslendingar vinna lengi.
  • Við getum ekki ráðist í margar stórar framkvæmdir á eigin spýtur þar sem við höfum ekki almennilegt lánstraust.
  • Við höfum brennt okkur á því að halda hér uppi lífskjörum á lánum. 
  • Íslenskar krónur hér í bönkum gagnast okkur lítið þegar engum er treyst til að taka stórarupphæðir að láni.
  • Við þurfum hingað nýtt fé sem aðrir taka ábyrgð á.

Hefði Ögmundi ekki verið í lófa lagið að reyna að ræða við þennan fjárfesti um lausnir sem snéru að t.d. minna landsvæði, hugsanleg leigu, hugsanleg skilyrði sem Nubo hefði skirfað undir varðandi endursölu, nýtingu og fleira. 

Hvað hefði Ögmundur sagt ef hann hefði boðið í aðra Jörð minni? Hefði hann ekki komið með sömu svör. Minni samt á að frá 2007 hafa 24 útlendingar fengið svona undanþágur. Er Ögmundi illa við Kínverja sérstaklega. 


mbl.is Ekki hlutverk ráðuneytisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við nú ekki að bíða og sjá áður en fólk dæmir

Steigrímur sagði jú í viðtölum:

Í samtali við RÚV segir Steingrímur að farið verði gaumgæfilega yfir allar mótbárur og gagnrýni en staðreyndin sé engu að síður sú að skattlagning vegna kolefnis sé minni hér á landi en í nágrannalöndunum. Slík mengandi starfsemi sé orðin skattlögð víða og engir Íslendingar vilji að landið verði skattaparadís fyrir mengandi starfsemi.

Nú ekki vill ég að hingað streymi fyrirtæki sem sæki hér í að fá að menga ódýrt sem þeir fá ekki í öðrum löndum nema gegn gjaldi.


mbl.is Ekki starfi sínu vaxinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri nú ekki hægt að biðja um almennilega fréttamennsku?

Hvernig væri áður en fjölmiðlar gleypa upp svona upphrópanir frá öfga verkalýðsforingja á Akranesi og svo ELkem að kanna hvernig þeir reikna sig að þessari niðurstöðu. Bendi á vangaveltur Ingimars Karls Helgasonar http://blogg.smugan.is/ingimarkarl/

Þar segir hann:

Um hvað er verið að tala?

Fram kemur í umhverfismatsskýrslu kísilverksmiðjunnar í Helguvík að þar standi til að nota 3.000 tonn af kolarafskautum á ári. Ef málið snýst um þetta, eins og ritstjóri Fréttablaðsins fullyrðir í leiðaranum, hversu hár er þá hinn árlegi skattur?

Skatturinn á að nema 3,4 krónum á kíló af rafskautum árlega. 3.000 tonn eru 3.000.000 kíló. Reiknum nú: 3,4 kr./kíló x3.000.000 kíló =10.200.000 kr.

Tíu milljónir króna og tvö hundruð þúsund á ári.

Þetta er sumsé skatturinn sem setur kísliverksmiðju Helguvíkur í uppnám. Þessar tíu milljónir setja 17 milljarða fjárfestingu í uppnám. Fjárfestingu þar sem ætla má að árleg velta verði mæld í einhverjum milljarðatugum, mv. yfirlýsingar stjórnarformanns fyrirtækisins í viðtali á vef Reykjanesbæjar.

Hann fær þarna út að Kíslmálmsverksmiðja í Helguvík hefði þurft að borga 10,2 milljónir.

Svo hvernig fá Elkem það út að þeir þurfi að borga mörghundruð milljónir á ári? Megna þeir svona rosalega?

Elkem á Grundartanga, sem er í eigu fyrirtækjakeðju sem endar í Kína, segir ekki mikið um rekstur sinn eða kolaskautanotkun á vefnum. En þar segir aftur á móti að framleiðslugetan sé 120 þúsund tonn á ári. Það er um tvisvar sinnum það sem þeir ætla að framleiða þarna í Helguvík. Svo ég slumpa á að rafskautaskatturinn þeirra verði kannski 21 milljón, miðað við skilning ritstjóra Fréttablaðsins.

Thorsil á Húsavík þyrfti kannski að borga eitthvað svipað, líklega minna.

Einn leikskóli borgar meira

Ef málið er vaxið eins og ritstjóri Fréttablaðsins segir, þá eru þessar skattgreiðslur allt að því hlægilegar þegar umfang þessara fyrirtækja er haft í huga. Í tilviki Elkem er þessi skattur líklega álíka mikill og kostnaður þess við laun forstjórans á hálfu ári, ef marka má tekjublað Frjálsra verslunar. Einn starfsmaður í hálft ár!

Væri gaman að allir "rannsóknarblaðmenn" færu nú í stað þess að gleypa bara fréttatilkynningar af netinu óbreytta upp í fréttir hjá sér könnuðu málið. Hvað er rétt í þessu tilfelli?


mbl.is Afleiðingar skattsins skelfilegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Bjarnason vinnur fullnaðar sigur í Sjálfstæðisflokknum!

Fuðurlegt að Þorgerður Katrín samþykki tillögu sem hljóðar þannig.

Landsfundur ályktar að gera skuli hlé á aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þær ekki hafnar að nýju nema það verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Get reyndar ekki séð að þetta breyti neinu á þessu kjörtímabili nema að þeir þingmenns Sjálfstæðisflokksins sem hafa verið fylgjandi samningum við ESB breyti um áherslu nú. 

En þessi landsfundur sýnir okkur að Sjálfstæðisflokkuinn vill engu breyta frá því sem áður var hér á landi. Ekki einu sinni geta þeir samþykkt tillögur um framtíðarstefnu sem flokksmenn sjálfir hafa unnið að .  Og þess til viðbótar má ekki breyta:

  • Kvótakerfinu. Prófessor frá Oxford sagði nú í Silfrinu að þjóðinn væri geypilega gjafmild að gefa nokkrum mönnum allan nýtingarrétt og allan arð af þessari auðlind án endurgjalds. Svona svipað og í Afríku þar sem erlend fyrirtæki og spilt stjórnvöld leggja undir sig allan arðinn.
  • Það má ekki breyta stjórnarskránni.
  • Það á áfram að gefa orkuna til stóriðju svo að verktakar geti fengið smá bólu til að græða á.
Það eina sem þeir vilja breyta er að þeir komist aftur í valdastöður til að sinna vinum sínum í SA og LÍÚ. Lækka hjá þeim skatta, minnka hjá þeim gjöld og færa byrgðarnar til baka á lægstu launin. 
mbl.is Björn og Friðrik hjuggu á hnútinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er svo barnalegur málflutningur að það er þyngra en tárum taki.

að ríkisstjórnin sæi háa skatta og ríkisafskipti í hillingum. Stjórnin byggði á löngu úreltum hugmyndum úr gömlum sænskum plöggum. (úr ræðu Hönnu Birnu)( Gæti líka verið úr ræðu Bjarna Ben)

Og hvað skildir Hanna Birna hafa lækkað skatta mikið þegar hún var Borgarstjóri. Veit að hún hækkaði þá ekki mikið en borgin var jú rekin með bullandi tapi bæði þá og fyrirsjáanlega. Og hvað er hún að vísa til Svíþjóðar? Nú eru Svíar nokkuð ánægðir með sína skatta og Danir meira að segja á móti skattalækkunum hjá sér. Þetta bull í ræðum Sjálfstæðismanna minnir mig á árin milli 1993 og 2000 þegar okkur var sagt árlega að skatta hefðu jú bara víst lækkað en þegar rukkað var eftir því hvaða skattar það voru þá voru það skattar á fyrirtæki og þá sem mestar höfðu eignirnar og tekjunar en skattfrelsismörkin voru rifinn úr sambandi þannig að láglauna fólkið tók á sig gríðarlegar hækkanir. 

Og það er jú hagfræði sem sjálfstæðismenn m.a. Hannes Hólmsteinn hefur boðað að gera þá ríku ríkari og við almúgin munum síðan fitna í framtíðinni á brauðmolum sem falla af borði þeirra. Ekki viss um að meirihluti þjóðarinnar vilji þetta. Ef fólk trúir mér ekki skoðið þá myndina hér að neðan þar sem sést hvernig skattar þróuðustu hér. Á tímabili var staðgreiðslan hér 42% og hverjir voru þá við stjórnvölinn. Jú flokkurinn sem talaði þá um að þeir hefðu víst lækkað skatta en gleymdu að segja okkur að það var ekki hjá almenningi heldur vinum og vildarfyrirtækjum Sjálfstæðisflokksins

throun_sta_grei_slu.png


mbl.is Stjórnin sér háa skatta í hillingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og á hverjum ætli Sjálfstæðismenn drífi sig að lækka skatta?

Ætli það verði ekki eins og síðast þegar þeir höfðu öll völd hér þegar að Framsókn var jú varaskeifa þeirra í hvað 12ár.

Þá var umtalað:

  • Skattar hér á auðmenn voru með því lægsta hérlendis miðað við nær öll lönd í Vestur Evrópu
  • Skattar á fyrirtæki voru með því lægsta sem gerðist í heiminum
  • Skattar á láglaunfólk var með því hæsta sem geriðst í löndum í kring um okkur
  • Bætur voru langt undir framfærslu fólk með lág laun og á bótum
Held að fólk þurfi að athuga þetta þegar þeir halda svon fram. Þeir hafa jú stjórnað hér áður um langan tíma og sporin hræða. Man fólk virkilega ekki eftir þeirri ógurlegu baráttu sem öryrkjar og láglaunafólk átti hér í áratugin fyrir og eftir aldarmót. Eins að hér voru atvnnuleysisbætur til háborandi skammar. En hér var t.d. um 5% atvinnuleysi um 1995 þannig að hér hefur aldrei verið 0% atvinnuleysi eins og fólk virðist nú halda. Og hvað geturm við sagt um tekjur sem þessir skattlitlu fyrirtæki og eigendur þeirra hafa haft á þessum tíma. Hann hefur jú eftir að þeir hafa fengið fólk til að kaupa hluti í þeim á Hlutabréfamarkaði, flutt hagnað sinn sem mest þeir máttu út en notað síðan ótakmarkað lánsfé í frekari fjárfestingar. Þannig að aðeins lítið af hagnaði þessa hóps eins og útgerðamanna og annarra fjárfesta hafa nýst okkur nema kannski í endalausar glerhallir og lúxus sem skapa engar tekjur að ráði fyrir okkur.
mbl.is Fyrsta verk að lækka skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna er blessuð krónan ykkar að sýna sitt rétta eðli

Þarf að hafa fleiri orð um þetta.

 Á þessum tímum hafði kaupmáttur launa fallið nýlega um meira en 10%. Brottflutninginn á þessum árum má því að miklu leyti rekja til minni kaupmáttar en hann féll um 13% árin 1968-1969, 12% árið 1975, 17% árið 1983, 15% á tímabilinu 1988-1994 og 11% árin 2008-2009, segir á vef SA

Svo eru menn að segja að hér að hér hafi aldrei verið meiri kaupmáttarrýrnu, eða erfiðleikar áður. En bendi fólki á að fólksflutningar héðan eru í beinu línulegu sambandi við fall krónunar og kaupmáttarlækkanir. 


mbl.is Tveir og hálfur árgangur fluttur burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef að gjaldmiðillinn [krónan] er eins og hitamælir.......

Þá er ljóst að Íslensk stjórnvöld hér á landi hafa ekki ráðið við það að halda úti sjálfstæðri peningastefnu frá upphafi. Krónan hefur þá skv. því að hún sé hitamælir lækkað um 99,9%. Og þetta á við nær alla stjórnmálamenn sem hafa komist til valda og lýst yfir að þeir ætluð sko að beita aga og aðhaldi. Svo segja sérfræðingar að örhagkerfi sé dæmt til að vera hávaxtasvæði til að koma í veg fyrir peningaflótta. Hér hafa verið höft í í 70% af líftíma krónunar til að koma í veg fyrir útstreymi gjaldeyris. Og fram til 1990 þá höfðu verið hér samfellt höft í marga tugi ára. Höftum var aflétt í um 20 ár með hörmulegum afleiðingum í lokin og hafa nú verið í 3 ár. Hér eru 2 krónur verðtryggð og óverðtryggð. Ef ekki væru verðtryggingar værí hér allt á hliðinni vegna hárra vaxta sem koma vegna verðbólgu. Svo ég held að ef að krónan sé hitamælir þá þurfum við að fá okkur nýjan mæli.
mbl.is Eigum að halda í krónuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og áfram heldur Vigdís Hauksdóttir áfram að rugla og rugla!

Hvað á blessuð konan við með að Steingrímur fari með rangt mál og blekkingar þegar hann vísar í skýrslu frá 2004?  Hann sagði aldrei að þessar upplýsingar væru unnar eins. Og hvað með það að Indriði Þórláksson hafi verið í nefndinni 2004. Hann var ef ég man rétt þá Ríkisskattstjóri og því mjög eðlilegt að hann væri í þessari nefnd sem rannsakaði þetta. Minni Vigdísi á að þá var Steingrímur óvart ekki fjármálaráðherra og ef ég man rétt var Framsókn og Sjálfstæðisflokkur þá í Ríkisstjórn og báðu um þessa skýrslu.  Er ekki hægt að svipta fólki þingmennsku sökum heimsku? Held að blessuð konan sé ekki að skilja íslensku almennilega né hlutverk sitt. Né nokkuð það mál sem hún kynnir sér. Hefur það fyrir sið að tala fyrst og hugsa svo. En seinni hlutinn þ.e. að hugsa kemur dálítið seint.

Svo væri gott að einhver benti henni á að tíðni skattsvika nú er svipuð og á öðrum Norðulöndum og því bendir allt til þess að þau hafi verið svipuðu og á öðrum Norðulöndum árið 2004


mbl.is Sagði fjármálaráðherra fara með rangt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband